Museveni býður íslenskum frumkvöðlum að fjárfesta í Úganda

19.9.2008

Opinberri heimsókn lokið
Opinberri heimsókn lokið
Museveni á tali við Ágústu Gísladóttur fyrrverandi umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar í Úganda.

Yoweri Museveni forseti Úganda hélt af landi brott í morgun eftir þriggja daga opinbera heimsókn til Íslands í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Í ferðinni bauð Museveni íslenskum frumkvöðlum að koma til Úganda og fjárfesta í þeim sviðum efnahagslífsins sem sett væru í forgang af hálfu stjórnvalda, þróun innviða samfélagsins, orkumálum og landbúnaðarframleiðslu til útflutnings. Einnig bauð hann forseta Íslands í opinbera heimsókn til Úganda.

Í fréttum dagblaða í Úganda segir að Museveni hafi í kvöldverði á Bessastöðum þakkað íslensku þjóðinni og ríkisstjórninni fyrir stuðning í þróunar- og mannúðarmálum sem Íslendingar veita á sviði fullorðinsfræðslu, orkumála, fiskimála og vísindarannsókna.

Úganda er sem kunnugt er eitt af fjórum afrísku samstarfslöndum Íslendinga í tvíhlíða þróunarsamvinnu og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur verið starfandi í landinu frá árinu 2001. Stærsta verkefni Þróunarsamvinnustofnunar er unnið í Úganda en það er byggðaþróunarverkefni í eyjahéraðinu Kalangala á Viktoríuvatni sem nær til um 45 þúsund íbúa eyjanna. Þróunarverkefnið byggir á þróunaráætlun héraðsins og nær einkum til fjögurra sviða, stjórnsýslu, sjávarútvegs, menntunar og heilbrigðismála.

Í heimsókninni til Íslands kynnti Museveni sér einkum nýtingu jarðhita, þróun sjávarútvegs og upplýsingatækni. Fram kemur í fréttum frá Úganda að forsetinn hafi einnig fullvissað gestgjafa sína um stuðning við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Frétt forsetaskrifstofunnar í Úganda

Frétt New Vision

Um Úganda

Starfsemi ÞSSÍ í Úganda

Viðtal RUV við Ágústu Gísladóttur fyrrv. umdæmisstjóra í Úganda





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica