Erfið staða barna í Malaví

23.9.2008

Staða barna í Malaví
Staða barna í Malaví
Tvær skýrslur um stöðu barna í Malaví draga upp dökka mynd en þó er víða merkjanlegur árangur. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Staða barna og ungmenna í Malaví fer á sumum sviðum batnandi en á öðrum hafa engar breytingar orðið og því þarf að herða róðurinn ef Malaví á að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2015, að því er fram kemur í tveimur nýútkomnum skýrslum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, ársskýrslu ársins 2007 og stöðuskýrslu um afrísk börn árið 2008.

Í skýrslunum kemur fram að lífslíkur malavískra barna hafa aukist umtalsvert á síðustu 15-20 árum og ef þróunin heldur áfram eru allar líkur á að Malaví nái þúsaldarmarkmiði S.þ. um lækkun á tíðni barnadauða um tvo þriðju fyrir árið 2015. Þrátt fyir þennan árangur deyr samt sem áður eitt barn af hverjum átta börnum fyrir fimm ára aldur, úr sjúkdómum og kvillum sem auðveldlega má koma í veg fyrir s.s. lungnabólgu, niðurgangi, malaríu og sjúkdómum tengdum HIV. Útbreiðsla vannæringar er einnig mikil og viðvarandi, en frá árinu 1992 hefur engin breyting orðið á næringarástandi barna í Malaví. Rekja má um það bil helming allra dauðsfalla barna til vannæringar, en um 46% barna undir 5 ára aldri þroskast ekki eðlilega sökum hennar. Útbreiðsla HIV/alnæmis meðal fullorðinna hefur þó staðið í stað í Malaví undanfarin ár og nú eru um 14% þjóðarinnar smituð af veirunni, en konur/stúlkur eru þar í meirihluta, eða um 60% smitaðra.

Niðurstöðurnar sýna einnig fram á að menntamálin í Malaví þarf að bæta því þrátt fyrir skráningu 86% barna í grunnskóla eru ekki nema 26% sem ljúka grunnskólanámi. Brottfall nemenda á sér ýmsar ástæður s.s. fátækt, fjarlægð skóla frá heimilum, snemmbúnar barneignir ásamt lélegri menntun og námsumhverfi.

Staða barnaverndarmála er einnig skoðuð enda skapa fátækt, hungur, HIV/alnæmi og ófullnægjandi félagsleg þjónusta aðstæður sem auka hættu á misnotkun og ofbeldi. Þetta á sérstaklega við um munaðarlaus og varnarlaus börn en þeim fer fjölgandi. Þá telur malavíska ríkisstjórnin telur að 1,4 milljón barna vinni við skaðlegar aðstæður.

Fleiri niðurstöður skýrslanna tveggja má lesa hér, í samantekt Ásdísar Bjarnadóttur, starfsnema í Malaví.



Skýrslan: The State of Africa´s Children 2008



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica