Níkaragva: Neyðarástand í orkumálum en miklir möguleikar á nýtingu jarðvarma

24.9.2008

Miklir möguleikar
Miklir möguleikar
Í Níkaragva er mikið af óbeislaðri orku í jarðvarma. Ljósmynd: Þóra Bjarnadóttir.
Mynd 1 af 2
1 2

Neyðarástand ríkir í orkumálum í Níkaragva en möguleikar landsins til nýtingar jarðvarma eru mjög miklir, að sögn Geirs Oddssonar umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar í landinu. Hann segir umframeftirspurn gífurlega og að skömmtun rafmagns sé daglegt brauð.

Fyrr í mánuðinum fór rúmlega 25 manna hópur úr orku- og námumálaráðuneyti og umhverfis og auðlindaráðuneyti Níkaragva til El Salvador í boði ÞSSÍ til að taka þátt í námskeiði um umhverfisáhrif jarðvarmavirkjana. Námskeiðið var skipulagt og haldið af LaGeo, þarlendu fyrirtæki sem er það eina á sviði jarðhita í El Salvador. Námskeiðið er hluti af fimm ára verkefni ráðuneytanna og ÞSSÍ sem miðar að uppbyggingu þekkingar og aukinni nýtingu jarðvarma í Níkaragva. Athygli vakti að allir fyrirlesarar LaGeo á námskeiðinu hafa lokið námi í Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Gioconda Guevara, verkefnisstjóri ÞSSÍ í jarðhitamálum í Níkaragva, segir mikilvægt að nýta sér þekkingu nágrannalanda sinna. Í El Salvador, sem býr við svipaðar aðstæður og Níkaragva, hefur nýting jarðhita verið til fyrirmyndar með ríka áherslu á verndun umhverfis og náttúru. LaGeo rekur nú tvær jarðvarmavirkjanir í El Salvador sem framleiða 24% af orkuþörf landsins en hlutfall jarðhita í orkuframleiðslu Níkaragva nær aðeins tæplega 8% þrátt fyrir miklar jarðhitaauðlindir. Samhliða orkuverunum stendur LaGeo einnig fyrir ýmsum félagslegum verkefnum þar sem unnið er með íbúum virkjanasvæðanna.

Geir Oddsson segir að yfirgnæfandi meirihluti orkuframleiðslu landsins komi frá díselstöðvum með tilheyrandi mengandi útblæstri, háum rekstrarkostnaði og óöryggi. "Möguleikar landsins til nýtingar jarðvarma eru mjög miklir," segir hann, "en helsta vandamálið er skortur á getu stjórnkerfisins til þess að þróa jarðhitaauðlindir landsins á ábyrgan hátt. Það hefur hamlað þróun þessara mála um langt skeið."

Geir segir að aukin þekking hafi verið skilgreind sem megináhersla stjórnvalda í þá átt að auka hlutfall endurnýjanlegrar orku í orkubúskap landsins. Verkefni ÞSSÍ sé einmitt ætlað að vinna að lausn þessa vanda. "Óvissa um framboð orku og hár kostnaður við framleiðslu núverandi orku er að mati stjórnvalda í Níkaragva helsti þrándur í götu allrar þróunar í landinu," bætir hann við.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica