Hrein orka: Vegvísir til framtíðar
„Reynsla okkar Íslendinga við að nýta náttúruauðlindirnar á skynsamlegan hátt færir þróunarríkjum heim sanninn um hvernig unnt er að ná árangri,” segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands í grein sinni Hrein orka: Vegvísir til framtíðar, í nýútkomnu tímariti Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Ólafur Ragnar segir það von sína að margar þjóðir muni fylgja fordæmi okkar og skilja að það sem í fyrstu hafi reynst erfið áskorun geti á fáeinum árum orðið að árangursríkum veruleika ef réttri stefnu sé fylgt.
Tímaritið „Þróunarmál” kemur út árlega og birtir að þessu sinni tíu áhugaverðar greinar um þróunarmál eftir innlenda og erlenda höfunda. Tímaritið er gefið út bæði á íslensku og ensku.
Auk forseta Íslands skrifa eftirfarandi höfundar greinar í tímaritið:
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur fjallar um nýtt skipulag þróunarsamvinnu Íslands, Nick Mabey forstjóri 3EG, Third Generation Environmentalism, fjallar um loftslagsbreytingar og þróun Afríku, Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði skrifar greinina „Þegar Ísland var Gana”, Inga Dóra Pétursdóttir sérfræðingur á umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Malaví skrifar um menningu, framandleika og HIV í Afríku, Héðinn Halldórsson fréttamaður spyr: Hverjum er ekki sama um Afríku og skoðar ímynd álfunnar í norrænum fjölmiðlum, Gerður Gestsdóttir verkefnisstjóri félagslegra verkefna hjá ÞSSÍ í Níkaragva fjallar um Mæðrahús, Stefán Jón Hafstein umdæmisstjóri ÞSSÍ í Malaví skrifar greinina „Að neðan og upp: kenningar um breyttar áherslur í þróunarmálum og hvernig þær eiga við tvö raunveruleg dæmi”, Þórarinna Söebech útgáfu- og kynningarfulltrúi á aðalskrifstofu ÞSSÍ fjallar um byggðaþróun í Kalangala í Úganda og Þráinn Friðriksson jarðefnafræðingur fjallar um miðlun á íslenskri jarðhitareynslu til Níkaragva.
Hægt er að nálgast tímaritið á skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Þverholti 14 eða óska eftir því að fá ritið sent í pósti með því að hringja í síma 545-8980 eða senda tölvupóst á netfangið iceida@iceida.is.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is