Ráðstefna um sjávarútveg og fiskeldi í Namibíu
Dagana 24.-26. september var haldin ráðstefna um sjávarútveg og fiskeldi í Namibíu. Að sögn Vilhjálms Wiium umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Namibíu var tilgangur ráðstefnunnar að líta yfir farinn veg og að horfa til framtíðar. „Namibísk stjórnvöld vilja tryggja að viðskiptaumhverfi sé eins gott og mögulegt er til að tryggja að namibíska þjóðin njóti ávaxtanna af náttúrurauðlindum landins og ráðstefnan var hugsuð sem skref í þá átt,” segir Vilhjálmur.
Sigurgeir Þorgeirsson, ráðuneytisstjóri sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis ávarpaði ráðstefnuna en sjávarútvegsráðherra Namibíu bauð íslenska ráðuneytinu að senda fulltrúa á ráðstefnuna. Vilhjálmur Wiium flutti einnig erindi á ráðstefnunni.
Íslendingar hafa í gegnum Þróunarsamvinnustofnun Íslands stutt við sjávarútveg í landinu á ýmsan hátt allt frá sjálfstæði Namibíu fyrir átján árum. Stuðningurinn hefur verið við hafrannsóknir, sjómannaskóla og ýmsa uppbyggingu innan sjávarútvegsráðuneytis landins. Nú er að hefjast stuðningur við rannsóknir um það hvernig koma megi vistkerfisnálgun að í fiskveiðistjórnun undan ströndum Namibíu, Suður-Afríku og Angóla. Margir Namibíumenn hafa verið studdir til náms af ÞSSÍ og þeir hafa síðan lagt sitt að mörkum til þróunar í sjávarútvegi landsins.
„Á ráðstefnunni kom margoft fram ánægja með framlag Íslands og fulltrúum Íslands voru færðar þakkir fyrir veittan stuðning,” segir Vilhjálmur.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is