Staðið verði við skuldbindingar um þróunarsamvinnu

13.10.2008

Auglýst eftir starfsnemum
Ríkisstjórnir hvattar til hvika ekki frá yfirlýstum stuðningi við fátæk ríki.
Myndin er af skólabörnum í Mapútó, höfuðborg Mósambík, sem er eitt af sex samstarfslöndum Íslands. Ljósm. Gunnar Salvarsson.

Stjórnendur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa fullvissað fulltrúa þróunarlandanna um að yfirstandandi fjármálakreppa verði ekki látin bitna á fátækasta fólkinu í heiminum. Þessar tvær stóru alþjóðlegu fjármálastofnanir heita því sameiginlega að veita fjármagni til fátækra ríkja til að styrkja efnahag þeirra ásamt greiningu og ráðgjöf. Þær hvetja jafnframt ríkisstjórnir iðríkjanna til að gleyma ekki þróunarlöndunum og standa við skuldbindingar um þróunarsamvinnu.

Staða þróunarlandanna í fjármálaumróti síðustu vikna var meginefni fundar í Bandríkjunum um helgina. Robert Zoellick bankastjóri Alþjóðabankans segir fjármálakreppuna í heiminum dæmi um hamfarir af mannavöldum. Hann segir að þjóðir heims sem hafi nýlega skuldbundið sig um framlög til fátækra ríkja megi ekki leggja þau áform til hliðar vegna skyndilegs lausafjárskorts eða niðursveiflu í hagkerfinu. Dominique Strauss-Khan, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, bendir á hættuna á því að fátækjum ríkum verði að ósekju refsað á tvennan hátt, bæði með erfiðleikum um öflun á erlendu fjármagni og lækkandi verði á útflutningsvörum.

Í yfirlýsingunni eru þjóðir sem veita þróunaraðstoð hvattar til þess að standa við skuldbindingar sínar um framlög til alþjóðegrar þróunarsamvinnu.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica