Tíu ára afmæli Sjávarútvegsskólans
Um þessar mundir fagnar Sjávarútvegsskól Háskóla Sameinuðu þjóðanna 10 ára starfsafmæli. Af því tilefni er efnt til ráðstefnu um sjálfbærni í sjávarútvegi, eða "Sustainble Fisheries" í sem víðustum skilningi. Á ráðstefnunni verða rædd þau atriði sem skipta munu máli í framtíðarþróun, sér í lagi í þróunarlöndum, s.s. veiðar, vinnsla og viðskipti með fisk og fiskafurðir. Innlegg ráðstefnunnar mun einnig styrkja undirstöður þeirrar fræðslu og þjálfunar sem Sjávarútvegsskólinn veitir.
Ráðstefnan verður haldin 24.-25. október á Hótel Loftleiðum. Fyrri daginn flytja kunnir vísindamenn lykilerindi um framtíð sjávarútvegs og fiskiðnaðar í heiminum, en seinni daginn verða framtíðarhorfur í eftirfarandi þremur málaflokkum krufnar:
1. Mat á fiskistofnum og fiskveiðistjórnun
2. Gæðastjórnun í fiskiðnaði og viðskipti með fisk
3. Fiskveiðar og fiskeldi




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is