Ný samstarfslönd skoðuð
Fjögur ríki koma til álita
Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) skoðar nú fjögur ný ríki með hugsanlegt samstarf í huga. Um er að ræða Mið - Ameríkuríkið Nikaragúa, Afríkuríkin tvö Ghana og Madagaskar, auk Sri Lanka. Eitt af meginviðmiðum í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslendinga er að vinna gegn fátækt og er áhersla lögð á samstarf við lönd þar sem lífskjör eru lökust að mati alþjóðlega viðurkenndra stofnana.
19 ríki hafa óskað eftir samstarfi við ÞSSÍ fyrir næstu ár, en til viðbótar hafa sex önnur lönd komið til álita og því hafa alls 25 ríki verið skoðuð með þróunarsamvinnu í huga. Stofnunin fól alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins að leggja pólitískt mat á hugsanleg ný samstarfslönd og lá fyrir skýrsla þess efnis í maímánuði. Á grundvelli skýrslunnar og út frá forsendum sem tiltekin eru í stefnuskrá ÞSSÍ var tekin ákvörðun um að skoða 4 ofangreind ríki sérstaklega. Stefnt er svo að því að velja sem ný samstarfslönd eitt eða tvö þessara ríkja að skoðun lokinni.
Ákveðið var að senda tvo fulltrúa ÞSSÍ til þess að skoða aðstæður í hverju hinna fjögurra ríkja og leggja á mat. Annars vegar reyndan starfsmann ÞSSÍ úr þróunaraðstoð og hins vegar sérfræðing á því sviði, þar sem viðkomandi ríki hafði sérstaklega óskað eftir þróunaraðstoð frá Íslandi. Nikaragúa var fyrsta ríkið, sem skoðað var. Þangað fóru Árni Helgason, fyrrum umdæmisstjóri ÞSSÍ í Afríkuríkjum, og núverandi skrifstofustjóri stofnunarinnar og Benedikt Steingrímsson, aðstoðarforstjóri Íslenskra orkurannsókna, en Nikaragúa hafði sérstaklega óskað eftir þróunaraðstoð í jarðhita. Nú fer fram sambærileg könnunarheimsókn til Sri Lanka, en þar eru á vegum ÞSSÍ Árni Helgason og Tumi Tómasson, skólastjóri Sjávarútvegsskóla SÞ á Íslandi. Sri Lanka hafði sérstaklega óskað eftir þróunaraðstoð á sviði sjávarútvegsmála.
Hér á eftir fara nokkur atriði sem liggja til grundvallar þeirri ákvörðun að litið er til Nikaragúa, Ghana, Madagaskar og Srí Lanka. Þrjár forsendur eru einkum hafðar að leiðarljósi. Í fyrsta lagi að þörf sé fyrir þróunarsamvinnu samkvæmt mælivogum um fátækt, í öðru lagi að stjórnarhættir og efnahagsstjórn sé viðunandi og í þriðja lagi að um tiltöulegar smá ríki séu að ræða, því líklegra er talið að Ísland eigi samleið með minni þjóðum.
Íbúafjöldi í Mið - Ameríkuríkinu Nikaragúa er 5,2 milljónir og draga tæp 95 prósent landsmanna fram lífið á tekjum sem nema 2 Bandaríkjadölum eða minna á dag. Fátækt er því útbreidd og hagvöxtur er staðnaður. Ný þróunaráætlun ríkisstjórnar landsins hefur það þó að meginmarkmiði að auka samkeppnishæfni og atvinnu. Jarðhiti er til staðar í landinu og gætu Íslendingar meðal annars lagt til sérfræðiþekkingu á því sviði.
Ghana er í Vestur - Afríku og þar er áætlað að búi um 20 milljónir manna. Fátækt er gífurleg í landinu, en um 45 prósent þjóðarinnar hefur tekjur sem nema einungis einum bandaríkjadal á dag. Í Ghana er sagður ríkja efnhagslegur og pólitískur stöðugleiki. Mikil áhersla er lögð á félagsleg- og heilbrigðismál hjá hinu opinbera og baráttan við fátækt hefur verið ofarlega á baugi hjá stjórnvöldum, sem samrýmist vel grundvallarmarkmiðum ÞSSÍ um samstarf.
Madagaskar er eyja undan strönd Austur - Afríku. Um 83 prósent þjóðarinnar lifir á tekjum sem nema tveimur Bandaríkjadölum eða minna á dag, en í landinu búa um 16 og hálf milljón manna. Pólitískt jafnvægi er að komast á að hluta eftir áralangan óstöðugleika og síðasta endurskoðun Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um ástand efnahagsmála er jákvæð.
Á Srí Lanka ríkti borgarastyrjöld um árabil. Átökin höfðu alvarlegar afleiðingar fyrir efnhag landsins, jafnvel þótt skærurnar færu einkum fram í norðurhluta landsins. Vopnhlé var gert árið 2002 og voru bundnar vonir við að varanlegur friður kæmist á í landinu. Friðarferlið hefur reynst brothætt og pólitískur óstöðugleiki er enn viðvarandi, einkum vegna bakslags í friðarviðræðum við aðskilnaðarsinna (Tamíl tígra). Þrátt fyrir þetta er auknum hagvexti spáð í landinu og ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir efnahagsumbótum í landinu. Stuðningsríki hafa sýnt landinu mikinn áhuga og töluverðu fé hefur verið safnað til enduruppbyggingar.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is