Sjö fulltrúar Alþingis kosnir í þróunarsamvinnunefnd

10.11.2008

Um 40 þúsund barshafandi á hverju ári
Sjö fulltrúar kosnir í þróunarsamvinnunefnd
Nefndin á að taka þátt í stefnumarkandi umræðu og ákvörðunum ráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu til lengri tíma. Myndin er frá Malaví, einu af sex samstarfsríkjum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Alþingi hefur kosið nefndarmenn í þróunarsamvinnunefnd en hlutverk hennar, samkvæmt nýlegum lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, er að tryggja aðkomu fulltrúa þingflokka að stefnumarkandi umræðu og ákvörðunum ráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu til lengri tíma. Aðalmenn í nefndinni eru Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur, Haukur Már Haraldsson kennari, Sigfús Ólafsson viðskiptafræðingur, Drífa Hjartardóttir framkvæmdastjóri, Katrín Ásgrímsdóttir garðyrkjubóndi, Guðrún Ögmundsdóttir fyrrverandi alþingismaður og Ásgerður Jóna Flosadóttir stjórnmálafræðingur.

Varamenn í þróunarsamvinnunefndinni eru Margrét Sigurgeirsdóttir kennari, Guðrún Erlingsdóttir, Maríanna Traustadóttir mannfræðingur, Anna Þóra Baldursdóttir lektor, Helga Sigrún Harðardóttir verkefnisstjóri. Árni Gunnarsson, fyrrv. framkvæmdastjóri og Pétur Bjarnason framkvæmdastjóri.

Fulltrúar í þróunarsamvinnunefnd eiga einnig sæti í samstarfsráði um alþjóðlega þróunarsamvinnu en í því verða sautján fulltrúar. Utanríkisráðherra skipar fulltrúa í samstarfsráðið, formanninn án tilnefningar, en auk fulltrúa þróunarsamvinnunefndar eiga sæti í ráðinu fimm frá íslenskum mannúðarsamtökum, tveir frá háskólasamfélaginu og tveir frá aðilum vinnumarkaðarins.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica