Þróunarstofnun Belgíu í samstarf við ÞSSÍ í Úganda

17.11.2008

Samstarf við Belga
Samstarf við Belga
Árni Helgason umdæmisstjóri ÞSSÍ í Úganda skrifaði undir fyrir hönd Íslands og Jan de Bruyne sendiherra Belgíu í Úganda fyrir hönd Þróunarstofnunar Belgíu. Ljósmynd: Gunnar Þórðarson.

Þróunarstofnun Belgíu hefur óskað eftir aðkomu að frumkvöðlaverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda en verkefnið er unnið er í samstarfi við Fjárfestingastofu Úganda. Belgar munu leggja verkefninu til fjárhæð sem nemur 500 þúsund evrum. Með þessum auknu fjármunum verður unnt að lengja verkefnistímann fram til árins 2011, fjölga námskeiðum víða um landið og veita fleiri frumkvöðlum þjálfun.

Frumkvöðlaverkefninu var hleypt af stokkunum sumarið 2006. Að sögn Gunnars Þórðarson verkefnisstjóra á skrifstofu ÞSSÍ í Kampala er megin tilgangur verkefnisins að byggja upp sjálfbæran og samkeppnishæfan einkarekstur í Úganda. "Það er langtímaverkefnið," segir hann, "en til skemmri tíma litið er verkefninu ætlað að bæta aðgengi frumkvöðla í smærri og meðalstórum fyrirtækjum að þjálfun og nauðsynlegri þekkingu í viðskiptum. Einnig er því ætlað að auka getu og þekkingu í núverandi rekstri, bæði fjárhagslegum og tæknilegum, og bæta aðgengi að upplýsingum."

Gunnar segir að meginþáttur verkefnisins sé námskeiðahaldið sjálft sem fram fari víða um Úganda með sérstaka áherslu á norðurhéruð landsins sem farið hafi illa út úr stríðsátökum seinni ára. "Það er ánægjulegt að geta þess að nemendafjöldinn er mun meiri í dag en gert var ráð fyrir og þar sem annar kostnaður hefur orðið minni hefur stjórnendum verkefnisins tekist að endurraða kostnaðarliðum með meiri áhersla á námskeiðin sjálf," bætir hann við.

Skrifað var undir samninginn við Þróunarstofnun Belgíu 4. nóvember síðastliðinn í sendiráði Belgíu í Kampala. Árni Helgason umdæmisstjóri ÞSSÍ í Úganda skrifaði undir fyrir hönd Íslands og Jan de Bruyne sendiherra Belgíu í Úganda fyrir hönd Þróunarstofnunar Belgíu.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica