Þróunarsamvinnustofnun Íslands og ABC barnahjálp undirrita samstarfssamning
Aðstoð við fátæk og munaðarlaus börn
Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) og ABC barnahjálp hafa gert samning um samstarf í þróunaraðstoð. Einkum verður unnið að framgangi mála er varða fátæk og munaðarlaus börn í þróunarlöndum.
Samstarfið mun fyrst og fremst taka til þeirra fjögurra landa sem ÞSSÍ starfar í nú þegar, Malaví, Úganda, Mósambík og Namibíu, en einnig kemur til álita stuðningur við verkefni í nærliggjandi ríkjum. Samvinna ÞSSÍ og ABC barnahjálpar lýtur að einstökum afmörkuðum uppbyggingarverkefnum.

ÞSSÍ vinnur nú þegar með ABC barnahjálp að verkefni í Kitetikka í Úganda, en stuðningur stofnunarinnar er fólginn í fjárframlögum sem notuð hafa verið til byggingar heimavistar fyrir munaðarlaus börn.
ABC barnahjálp eru íslensk samtök sem eru starfrækt í Úganda, á Indlandi og Filippseyjum. Styrktaraðilar hér á landi eru um 3.300 og hafa þeir veitt rúmum 93 milljónum íslenskra króna til verkefna sem miða að því að veita börnum í lægstu stigum þjóðfélagsins húsnæði, skólagöngu, fæði og heilbrigðisþjónustu. Skjólstæðingar samtakanna eru alls um 4.300.



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is