Nýtt smárit um Malaví komið út

22.12.2008

Nýtt rit um Malaví
Nýtt rit um Malaví
Fimmta smárit ÞSSÍ um samstarfslönd Íslendinga í þróunarsamvinnu fjallar um Malaví sem hefur verið stærsta samstarfsland ÞSSÍ um langt árabil.

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gefið út smárit um Malaví, eitt af sex samstarfslöndum Íslands í þróunarsamvinnu. Ritið er ætlað almenningi og skólafólki til fróðleiks um samstarfslöndin. Fyrsta smárit ÞSSÍ um Malaví kom út árið 1999 en hefur verið ófáanlegt um langt skeið.

Í ritinu er í stuttu máli fjallað um land og þjóð, sögu, menningu, þjóðfélags- og umhverfismál í Malaví og leitast er við að varpa ljósi á lífskjör og aðstæður íbúa landsins. Ennfremur er gefið stutt yfirlit yfir þróunarsamstarf Íslands og Malaví sem hófst árið 1989.

Höfundar og ritstjórar eru Þórdís Sigurðardóttir, Gunnhildur Guðbrandsdóttir og Jó Tore Berg. Smáritið er 40 bls. að stærð, prentað á umhverfisvænan pappír hjá prenstmiðju GuðjónsÓ.

Hægt er að nálgast ritið á aðalskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Þverholti 14 í Reykjavík eða óska skriflega í tölvupósti eftir að fá ritið sent, netfang ÞSSÍ er iceida@iceida.is.

Ritið er einnig hægt að lesa á rafrænu formi hér.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica