Ný fiskverkunaraðstaða í þorpinu Madzedze
“Aðstaðan sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sett upp í Madzedze þorpinu við Malavívatn í samvinnu við heimamenn gæti hugsanlega orðið að fyrirmynd fleiri slíkra umhverfis Malavívatn, en framtíðin verður að dæma um hvort vel hafi til tekist og hvort þetta verði fiskimannafjölskyldum til framdráttar með aukinni fæðuöflun,” segir Stefán Kristmannsson verkefnastjóri fiskimála hjá ÞSSÍ í Malaví.
Að sögn Stefáns er uppbyggingarverki lokið og nýlega hafin þurrkun og reyking á fiski frá smábátum sem koma af miðum í nágrenninu. Lokafundur með nefnd heimamanna og höfðingja hafi verði haldinn fyrir nokkru og efnt var til hátíðar að viðstöddu fjölmenni úr nágrenninu með ræðuhöldum og þjóðlegum dönsum.
Verkefnið er hluti af stærra verkefni um tækniþróun smábáta við Malavívatn sem nær til fimm ára og hófst árið 2005. “Þetta er samstarfsverkefni við fiskimálayfirvöld í Malaví en einnig við fátæka fiskimenn við Malavívatn í Namkumba héraði,” segir Stefán og bætir við að það séu einmitt fátæku fiskimennirnir sem eiga að uppskera árangurinn með öruggari bátum og með betri og hentugri veiðafærum til að fiska á dýpra vatni.
Að sögn Stefáns felst verkefnið í þremur þáttum: tækniþróun veiðafæra og smábáta, fiskirannsóknum og þjálfun. Hann segir að þjálfunin feli í sér námskeiðahald fyrir fiskmenn og konur, uppbyggingu á aðstöðu fyrir fiskverkun, eflingu þekkingar hjá fiskirannsóknafólki og fleira.
Hlusta á raddir heimamanna
“Í upphafi þessa verkefnis fór fram vettvangskönnun um væntingar heimamanna um útkomuna,” segir Stefán. “Árið 2005 var fundað í fiskimannaþorpunum á því svæði sem verkefnið tekur til. Þetta eru strandsvæði umhverfis Monkey Bay þar sem íslensk þróunarsamvinna hefur verið í gangi undanfarin mörg ár. Það kom fljótt í ljós að aðstaða fyrir alla fiskverkun og vinnslu var afar bágborin en verkkunnátta fyrir hendi. Í verkefnum á þessum vettvangi er mjög nauðsynlegt að hlusta á raddir og væntingar heimamanna ef vel á til að takast með útkomuna. Ekki hefur alltaf gefið góða raun að hugsa upp og afhenda heimamönnum hluti sem þeir hafa takmarkaða getu til að nýta sér, þótt áhugann skorti ekki. Mun líklegra til árangurs er að velja verkefnisþætti samkvæmt óskum heimamanna, og ekki bara það, heldur fá þá í samvinnu til að láta hlutina rætast. Þetta var sem vakti fyrir okkur fyrr á þessu ári þegar tekið var til við að klára þann verkefnisþátt sem sneri að uppbyggingu á aðstöðu til fiskverkunnar í þorpinu Madzedze í Malaví. Aðstaðan verður notuð í framtíðinni til þjálfunar fyrir fiskverkunarfólk úr nágrenninu og nýjar aðferðir útfærðar eftir getu og áhuga.”
Að sögn Stefáns stofnuðu heimamenn framkvæmdanefnd um uppbygginguna. Nefndin fékk þjálfun í stjórnun í tengslum við fullorðinsfræðsluverkefni ÞSSÍ í Malaví. Þá var tekið til við að hreinsa og girða svæðið, lagðir frárennslisstokkar, fyrirliggjandi húsnæði lagfært og byggðar þurrkgrindur og reykofnar fyrir fiskverkun. Einnig var lagt rafmagn til stöðvarinnar.
“Þetta mun þykja frumstætt á þessari öld en í almennu rafmagnsleysi hafa fáir eða engir efni á kælingu fisks á nokkurn hátt enn sem komið er,” segir Stefán og væntir þess að aukin fæðuöflun og ný fiskverkunaraðstaða verði lyftistöng fyrir fiskimannasamfélagið í Madzedze.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is