Áhrif nýrra laga á starfsemina rædd á umdæmisstjórafundi

9.1.2009

Umdæmisstjórar ÞSSÍ ásamt framkvæmdastjóra
Umdæmisstjórar ÞSSÍ ásamt framkvæmdastjóra
Á myndinni eru t.f.v. Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri, Tumi Tómasson (Srí Lanka), Stefán Jón Hafstein (Malaví), Vilhjálmur Wiium (Namibíu), Geir Oddsson (Níkaragva), Árni Helgason (Úganda) og Jóhann Pálsson (Mósambík).

Áhrif nýrra laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu á starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands var meðal dagskráratriða á árlegum tveggja daga fundi umdæmisstjóra ÞSSÍ sem haldinn var í vikunni. Fundurinn var að þessu sinni haldinn hér heima en hann sátu umdæmisstjórar í sex samstarfslöndum Íslands auk fulltrúa á aðalskrifstofunni í Reykjavík.

Af öðrum málum sem rædd voru á fundi umdæmisstjóranna má nefna horfur í rekstri Þróunarsamvinnustofnunar árið 2009 og næstu ár, handbók um meðhöndlun skjala, nýtt ráðningaferli og undirbúningsfræðslu starfsfólks og brottförina frá Srí Lanka, en sem kunnugt er hefur verið tekin ákvörðun um að hætta þróunarsamvinnu þar á þessu ári.

Síðasti fundur umdæmisstjóranna fyrir rúmu ári var haldinn í Kampala í Úganda og þar áður var umdæmisstjórafundurinn haldinn í Mapútó, Mósambík.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica