Ættbálkur í útrýmingarhættu leitar aðstoðar

Viðvarandi vatnsskortur hjá Himbum í Norður - Namibíu

26.10.2004

Kona af Himba ættbálki
Brosandi Himba kona
Konur þurfa oft að fara langan veg til að ná í vatn.

Höfðingi af ættbálki Himba, kona og stúlkubarn, auk túlks lögðu nýverið upp í þriggja daga ferðalag til að hitta Sighvat Björgvinsson, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), og samstarfsfólk hans í Windhoek í Namibíu. Tilgangurinn var að kynna þann vanda sem ættbálkurinn stendur frammi fyrir og leita aðstoðar ÞSSÍ við uppbyggingu vatnsbóla og félagslegra verkefna í Veripaka héraði í Norður - Namibíu.

Himbar kynna mál fyrir ÞSSÍ

Himbar kynna áætlun sína fyrir ÞSSÍ.

Ættbálkur Himba er ævagamall, þar fer hirðingjaþjóð sem heldur í fornar hefðir og eigin trúarbrögð. Síðustu ár hafa vestræn gildi hins vegar sótt fast að þessu fallega fólki og ógna nú menningu þess og lifnaðarháttum. Að auki hefur tíðarfarið orðið þess valdandi að lítið er um vatn á þeim svæðum sem Himbarnir halda til á og þurfa þeir því að leita vikum og stundum mánuðum saman að nýtanlegum vatnsbólum þar sem unnt er að brynna búfénaðinum.

Í Veripaka - héraði búa um 2000 manns, en talið er að Himbarnir séu alls um 46 þúsund. Stærstur hluti ættbálksins lifir enn við frumstæðar aðstæður í þorpum eða ferðast með búfénað sinn um Namibíu norðanverða. Vatnsleysi hefur hrjáð heimahaga Himbanna um alllangt skeið og eru þeir víða orðnir úrkula vonar um að betri tíð sé í nánd. Grafa þarf djúpt í jörðu til að finna vatn og oft leggja konurnar sig í stórhættu við vatnsöflunina. Nokkrir brunnar, jafnvel aðeins einn, gætu skipt sköpum í Veripaka - héraði að sögn höfðingjans, sem útskýrði í löngu máli hvernig komið væri fyrir fólkinu hans á svæðinu.

Himba konur ná í vatn

 Himba konur leggja sig oft í mikla
 hættu við vatnsöflun.

Vatnsskorturinn og ýmis annar félagslegur vandi gerir Himbum í Veripaka svo erfitt fyrir að fólkið flýr héraðið. Margir flytja í þéttbýlið þar sem Himbanna bíður jafnan eymd og volæði, líf í lægstu stigum þjóðfélagsins. HIV smituðum hefur hin síðari misseri fjölgað hratt, áfengissýki er vaxandi vandamál og dæmi eru um að kornabörn séu vanin á að drekka bjór. Himbar eru ginnkeyptir fyrir þessum skrítna miði og taka í grandaleysi sínu við áfengi sem greiðslu fyrir handverk sitt meðal annars af þeim fjölda ferðamanna sem flykkist til Norður - Namibíu í skoðunarferðir, en einnig af bændum af öðrum ættbálkum. Afleiðingin er vægast sagt skelfileg,  betlarar úr röðum Himba sjást víða í heimasveitunum og þeim fjölgar einnig stöðugt í fátækrahverfum í útjöðrum borga og bæja.

 

Himba börnum gefinn bjór

Áfengi er notað í viðskiptum við Himba.
Jafnvel börnum er gefinn bjór að drekka.

Til að snúa vörn í sókn hefur höfðingi Himba í Veripaka - héraði leitað liðsinnis ÞSSÍ. Áætlun sem gerð hefur verið til þriggja ára miðar að því að koma upp að minnsta kosti einum lokuðum vatnsbrunni þar sem fólk getur alltaf gengið að fersku vatni. Konurnar vilja fá aðstoð við ræktun matjurta og einnig er stefnt að því að koma upp færanlegu barnaheimili, sem myndi nýtast fátækri hirðingjaþjóð á stöðugum þvælingi. Félagsmiðstöð hefur verið byggð en þar á að fara fram öflugt kennslustarf í ensku, reikningi, einföldum verslunarrekstri, leður- og saumavinnu og ekki síst verður þar veitt fræðsla um heilbrigðismál og kynhegðun. Tölvunámskeið eru einnig fyrirhuguð fyrir yngra fólkið, en fræðslan miðar öll að því að gera Himbana færa um að taka framtíðina í sínar eigin hendur og gera þá sjálfstæða í nútímalegra þjóðfélagi.

 

Málið verður lagt fyrir stjórn ÞSSÍ á næstu vikum, sem tekur ákvörðun um framhaldið að teknu tilliti til óska stjórnvalda í Namibíu. 





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica