Íslenska verkefnið getur rutt brautina fyrir áþekk verkefni að mati ráðherra
Sidik Mia ráðherra vatnsmála í Malaví telur að íslenska vatns- og hreinlætisverkefnið í Mangochihéraði geti rutt brautina fyrir áþekk verkefni á öðrum svæðum í framtíðinni. Ráðherrann kynnti sér á dögunum áhrif verkefnisins á daglegt líf íbúa og ræddi við starfsmenn til að kanna framvindu mála. Greint var frá heimsókn ráðherrans og fylgdarliðs hans í öðru tveggja stærstu dagblaða Malaví.
Þróunarsamvinnustofnun stýrir í samvinnu við malavísk stjórnvöld vatns- og hreinlætisverkefni á Nankumbaskaganum við Malavívatn í Mangochi héraði. Að sögn Glúms Baldvinssonar verkefnisstjóra er höfuðmarkmið verkefnisins að veita íbúum aðgengi að neysluhæfu vatni og bættri hreinlætisaðstöðu til að koma í veg fyrir útbreiðslu vatnstengdra sjúkdóma eins og kóleru. “Kólerufaraldrar hafa verið tíðir á svæðinu á síðustu árum með þeim afleiðingum að tugir þúsunda íbúa hafa smitast og hundruð týnt lífi,” segir Glúmur.
Íbúar á Nankumbaskaga eru um 110 þúsund og Glúmur segir stefnt að því að sem flestir þeirra hafi aðgang að vatnsbólum með neysluhæfu vatni og bættri hreinlætisaðstöðu fyrir árslok 2010.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is