Þróunarsamvinnustofnun eingöngu í Afríku síðar á árinu

- samstarfslöndum fækkar um tvö

19.3.2009

Samstarfslöndum fækkar
Samstarfslöndum fækkar
Á þessu ári fækkar samstarfslöndum ÞSSÍ um tvö, Srí Lanka og Níkaragva. Myndin er frá Camoapa, þorpi í Níkaragva þar sem Íslendingar styrktu mæðrahús. Ljósmynd: Gunnar Salvarsson.

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að loka í sumar sendiskrifstofu Íslands í Níkaragva sem jafnframt er umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Áformað er að lokað verði frá og með 1. ágúst. Áður hafði verið tilkynnt að starfsemi ÞSSÍ á Srí Lanka ljúki um mitt ár. Samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu fækkar því um tvö á þessu ári og starfsemin verður síðari hluta ársins á ný eingöngu bundin við Afríkuríki, eins og hún var allar götur fram til ársins 2004.

Að sögn Sighvats Björgvinssonar framkvæmdastjóra ÞSSÍ er ástæðan fyrir fækkun samstarfslanda niðurskurður í framlögum til Þróunarsamvinnustofnunar og fall íslensku krónunnar. Sighvatur bendir á að umsvif ÞSSÍ í samstarfslöndunum dragist a saman um 36% eða úr 22 milljónum bandarískra dala á síðasta ári niður í 13 milljónir dala á þessu ári. “Þessi mikli samdráttur hefur það í för með sér að ÞSSÍ mun á þessu ári aðeins geta staðið við þær skuldbindingar sem stofnunin hafði undirgengist fyrir þann tíma en hvorki sett fjármuni í ný verkefni né í kostnað við undirbúning nýrra verkefna.”

Sighvatur segir að fátækar Afríkuþjóðir hafa alla tíð verið mikilvægustu viðtakendur þróunaraðstoðar Íslendinga og að samstarfslöndin tvö í Asíu og Mið-Ameríku hafi aðeins verið í samvinnu við okkur í fáein ár. “Stuðningur við Afríkuþjóðir er í samræmi við áherslur alþjóðasamfélagsins og stefnu íslenskra stjórnvalda um að starfa með fátækustu þjóðum heims að því að draga úr fátækt og bæta lífsafkomu. Fækkun samstarfsþjóða er í fullu samræmi við áherslur í þróunarmálum um aukna skilvirkni í þróunarsamvinnu,” bætir hann við.

Að sögn Sighvatar verður staðið við skuldbindingar um jarðhitaverkefni í Níkaragva sem samið hefur verið um til ársins 2012 þótt formlegri viðveru ÞSSÍ í landinu ljúki í sumar. Hann segir að stjórnvöldum hafi fyrir nokkru verið tilkynnt um ákvörðun Íslendinga og að viðræður við stjórnvöld og samstarfsaðila í landinu fari fram á næstu dögum um það hvernig að framkvæmd lokunarinnar verði staðið.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica