Félagsleg staða fátækra kvenna og barna bætt

Nýr samningur til fjögurra ára

25.10.2004

Enskukennsla í Mósambík
Enskukennsla fyrir fullorðna
Enskukennsla fyrir fullorðna í Mósambík.

Nýr rammasamningur til fjögurra ára hefur verið undirritaður á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og ráðuneytis kvenna-og félagsmála í Mósambík. Samningurinn miðar að því að styrkja enn frekar það samstarf sem ÞSSÍ og ráðuneytið hafa verið að móta undanfarin ár, en sú vinna hefur einkum falist í því að styrkja innri uppbyggingu í ráðuneytinu sem og bæta félagslega stöðu fátækra kvenna og barna, auk þess að efla jafnréttisvitund með markvissu fræðslu- og uppbyggingarstarfi.

Samningurinn var undirritaður í Mapútó, höfuðborg Mósambík, nýverið. Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ, skrifaði undir hann fyrir hönd Íslands, en Virgilía dos Santos Matabele, ráðherra, af hálfu Mósambík.

 

Undirritun samnings

Frá undirritun samnings ÞSSÍ og
ráðuneyti kvenna- og félagsmála í
Mósambík.

Í samstarfi við kvenna- og félagsmálaráðuneytið í Mósambík hefur ÞSSÍ stutt ýmis félagsleg verkefni í Mapútó og nærliggjandi héruðum, auk þess sem íslenskur ráðgjafi er starfandi í ráðuneytinu og er leiðbeinandi um uppbyggingu verkefna. Félagslegu verkefnin eru flest smá í sniðum en hafa skilað mjög góðum árangri. Hundruð fátækra kvenna, einkum ekkjur og einstæðar mæður, hafa stundað námskeið í lestri, skrift og saumaskap, fengið leiðsögn í ræktun matjurta og fræðslu um heilbrigðismál og forvarnir vegna HIV smits. Þátttaka kvennanna í hinum ýmsu verkefnum hefur sýnilega bætt lífskjör þeirra sjálfra og fjölskyldna þeirra og gefið þeim möguleika til að auka tekjur sínar.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica