Breyta viðhorfum og tryggja gæðaeftirlit
- skrifað undir samning um fiskgæðaverkefni í Úganda
Ætlunin er að breyta viðhorfum og tryggja gæðaeftirlit með fiski til neyslu í Úganda og til útflutnings með nýju verkefni sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands og stjórnvöld í Úganda skrifuðu undir á dögunum. Að sögn Gunnars Þórðarsonar verkefnisstjóra fiskimála í Úganda er gert ráð fyrir endurskipulagningu á gæðaeftirliti og þjálfun eftirlitsmanna sem munu sjá um eftirlit og kennslu í fiskveiðihéruðum og við löndunarstaði við Viktoríuvatn, Albertsvatn og Koyoga. Náin samvinna verður við héraðsstjórnir og samtök fiskimanna.
Stjórnvöld í Úganda leituðu eftir stuðningi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands til að taka á gæðamálum í fiski þar sem vandamál blöstu við útflutningmörkuðum þeirra, einkum innan Evrópusambandsins, að sögn Gunnars. "Það var vel tekið í þessa málaleitan enda fellur slíkt verkefni að öðrum verkefnum sem ÞSSÍ hefur unnið með yfirvöldum í Úganda, s.s. fullorðinsfræðslu og uppbyggingu stjórnsýslu á Kalangala eyju í Viktoríuvatni. Hluti af verkefni í fullorðinsfræðslu er þjálfun í gæðamálum í fiski, en kunnátta í lestri og reikningi er forsenda fyrir því að koma slíkri þekkingu til skila. Ákveðið er að verkefnastjórinn verði heimamaður enda er það í samræmi við nýjar áherslur í þróunarsamvinnu," segir hann.
Fiskframleiðsla er mikilvæg fyrir efnahag Úganda eða um 6% af vergri þjóðarframleiðslu. Um 300 þúsund manns hafa beint atvinnu af fiskveiðum og vinnslu en um 1.2 milljónir manna hafa lífsviðurværi sitt af greininni. Mikilvægustu útflutningsmarkaðir eru í Evrópu sem setja greininni kröfur sem verður að uppfylla.
Samningurinn milli Íslands og stjórnvalda í Úganda um verkefnið nær til ársins 2013. Sighvatur Björgvinson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands en Chris Kassam ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu fyrir hönd Úganda.




Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is