Nýr verkefnastjóri félagslegra verkefna í Malaví

3.4.2009

Fullorðinsfræðsla
Fullorðinsfræðsla
Verkefnisstjórinn hefur m.a. yfirumsjón með stuðningi ÞSSÍ við fullorðinsfræðslu í Monkey Bay.

Jo Tore Berg hefur verið ráðinn verkefnastjóri félagslegra verkefna í Malaví og tekur hann við starfinu í byrjun maí.

Jo er með BA gráðu í mannfræði og MA gráðu í mannfræði og þróunarfræði frá Háskóla Íslands. MA ritgerð hans “Við erum á þróunarbraut” byggir á vettvangsathugun sem hann gerði í Malaví árið 2006 og fjallar um orðræður og upplifun þátttakenda af fullorðinsfræðsluverkefni því sem ÞSSÍ styður í Monkey Bay. Jo starfaði á aðalskrifstofu ÞSSÍ árið 2008 og áður sem starfsnemi í Malaví. Jo hefur auk þess starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands og kennt námskeið um kenningar í þróunarfræði.

Verkefnastjóri félagslegra verkefna hefur umsjón með verkefnum ÞSSÍ á sviði fullorðinsfræðslu og félagsmála. Hann hefur aðsetur í Monkey Bay.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica