Trúðar og sögur heyrnarlausra á fjölum Þjóðleikhússins í Namibíu
Leikhús heyrnarlausra, Draumasmiðjan, setti fyrir nokkru upp tvö leikrit í Namibíu, í samvinnu við leiklistardeild Listaskólans í Windhoek og Þjóðleikhússins í Namibíu. Sýningar á verkunum voru liður í táknmálsverkefni Þróunarsamvinnutofnunar í Namibíu en eitt af markmiðum verkefnisins er að stuðla að vitundarvakningu um menningu og stöðu heyrnarlausra í landinu. Fyrir grunnskólabörn var sett á svið leikverkið Bring on the Clowns og fyrir fullorðna leikritið Deaf Stories. Báðar leiksýningarnar fengu afskaplega góðar viðtökur.
„Við vissum einfaldlega ekki við hverju við ættum að búast við af ókunnugum nemendum í ókunnugu landi með enga reynslu af „Döff” leikhúsi og því gerðum við okkur hæfilegar væntingar í byrjun,” segir Elsa Björnsdóttir en hún leikstýrði verkunum ásamt Jan Fiurasek og Margréti Pétursdóttur. „Árangurinn kom okkur hins vegar verulega á óvart því okkur hefði aldrei órað fyrir að 2700 skólabörn myndu garga af gleði og innlifun á Bring on the Clowns sýningunni, né að fólk myndi hreinlega tárast, hlæja og skemmta sér á Deaf stories. Fólk kom til okkar eftir sýningar á Deaf stories og dásamaði hana og taldi sig skilja menningarheim heyrnarlausra svo miklu betur eftir að hafa séð hana.“
Að sögn Davíðs Bjarnasonar verkefnisstjóra er meginmarkmið þessa starfs frá sjónarhóli ÞSSÍ að bæta getu heyrnalausra til byggja upp eigin menningu og miðla henni, jafnhliða því að stuðla að vitundarvakningu um menningu og stöðu heyrnarlausra í Namibíu. “Þannig var hugmyndin að veita áhorfendum innsýn í heim og menningu heyrnarlausa og stuðla að auknum tengslum milli heyrandi og heyrnarlausra með því að tengja táknmálið og hið talaða mál á leiksviðinu. Íslenska leikhúsfólkið ásamt Árnýju Guðmundsdóttur túlki vann í þrjár vikur með níu heyrandi og átta heyrnarlausum leikurum. Allt tókst þetta með eindæmum vel til og þau fræ sem sáð hafi verið með þessu starfi munu spíra áfram."
Davíð segir að leiklistardeild Listaskólans hafi fullan hug á því að styðja við „Döff” leikhús í framtíðinni. Nú þegar sé leikhópurinn með áætlanir um að sýna verkin í sveitahéruðum Namibíu, og vekja þannig athygli á málefnum heyrnarlausra víðar í landinu með þessum áhugaverða hætti. “Það var einstaklega gaman að vinna með leikhúsfólkinu frá Draumasmiðjunni og ný reynsla fyrir okkur hér, þau unnu afskaplega gott starf á þessum stutta tíma.”
Grein Davíðs Bjarnasonar um ferð Draumasmiðjunnar til Namibíu




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is