
Beint í leiðarkerfi vefsins.
„Núna að fimm árum loknum þá virðist verkefnið hafa tekist mjög vel,” segir Vilhjálmur Wiium sem er nýkominn frá Namibíu en hann var síðasti umdæmisstjóri ÞSSÍ í landinu. „Allar vatnsveiturnar 39 eru í lagi og útvega íbúum og búfénaði langþráð vatn.
Lesa meiraÞar sem áður stóð kofi fyrir stopula lyfjadreifingu er nú stór og velbúinn spítali. Fyrir um áratug hófu Íslendingar að byggja upp heilsugæslu við Apaflóa í Malaví, sem smátt og smátt hefur tekið á sig mynd. Myndin sem blasir við í dag er af stórum spítala með fjölbreytta þjónustu og 120 manna starfslið.
Lesa meira„Loftslagsbreytingar hafa mest áhrif á þá sem fátækastir eru. Vegna þess að stór meirihluti þeirra sem eru fátækir eru konur þarf að taka sérstakt tillit til þarfa þeirra þegar kemur að aðlögun að breyttum aðstæðum sem tilkomnar eru vegna loftslagsbreytinga," segir María Nandago, yfirverkefnisfulltrúi hjá Þróunarsamvinnustofnun í Úganda. Þar hefur verið komið á fót nýju samstarfsverkefni við innlend stjórnvöld í samvinnu við Noreg og Danmörku, sem ætlað er að auka þekkingu á kynbundnum áhrifum loftslagsbreytinga í Úganda og getu til stefnumótunar sem tekur tillit til þessa.
Lesa meira