Bókasafn ÞSSÍ var gefið Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur gefið Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni safn fræðirita um þróunarmál og hefur samningur þess efnis verið undirritaður. Einnig leggur ÞSSÍ safninu til fjárveitingu sem nemur 1 milljón króna árlega í 4 ár, sem ætluð er sem stuðningur við kaup fræðibóka á þróunarsviði og til aðstöðusköpunar.
Ákvörðun um bókagjöfina var tekin á stjórnarfundi vorið 2005, en tilgangur hennar er að auka aðgengi bæði almennings og fræðimanna að ritum sem tengjast þróunarmálum. Var það einnig mat stjórnar að betra aðgengi að ritum um þróunarmál gæti orðið til þess að styrkja og styðja við kennslu í þróunarfræðum, en í undirbúningi er að bjóða upp á þverfaglegt nám í greininni við HÍ í haust.
Samkvæmt samningi mun Landsbókasafnið taka við bókunum til varðveislu.



Rauðarárstígur 27, 125 Reykjavík, sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is