Gagnasöfn

Vefsíðan www.hvar.is gefur aðgang að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Síðan hefur aðgang að 30 gagnasöfnum, meira en 8.000 altexta tímaritum, 350.000 rafritum engilsaxneskra bókmennta, 3 alfræðisöfnum og 1 orðabók. Aðgangurinn er bundinn við notendur sem eru tengdir íslenskum vefveitum.


Norræna Afríkustofnunin, www.nai.uu.se , er sjálfstæð samnorræn stofnun sem stundar rannsóknir, útgáfustarf og margvíslega upplýsingaþjónustu um málefni Afríku fyrir Norðurlöndin.  Stofnunin rekur sérfræðibókasafn um Afríku og er lögð áhersla á efnisflokkana: þróunarmál, efnahagsmál, stjórnmál, samfélagsmál, jafnréttismál, o.fl.  Hægt er að leita að efni bókasafnsins í NOAK og einnig er hægt að frá úrdrætti úr tímaritagreinum.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica