Fréttir

Umdæmisstjóraskipti í Mósambík og Úganda - 25.6.2010

Í júní áttu sér stað skipti á umdæmisstjórum í tveimur samstarfslöndum ÞSSÍ, Mósambík og Úganda. Ágústa Gísladóttir tók við starfi umdæmisstjóra í Mósambík og Gísli Pálsson í Úganda.  

Lesa meira
 

Ársskýrsla 2009: Samstarfsþjóðum Íslendinga fækkaði um tvö á árinu 2009 - 23.6.2010

Ársskýrsla Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2009 er komin út. Hún er gefin út bæði á íslensku og ensku og greinir ítarlega frá starfseminni í samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu.

Lesa meira
 

Svona er að búa í fátæku landi: Stefán Jón Hafstein skrifar frá Malaví - 10.6.2010

"Hvernig birtist fátækt í daglegu lífi í landi eins og Malaví? Götur höfuðborgarinnar eru skörðóttar og holóttar, þar eru gangstéttar fátíðar og götulýsing næstum engin. Byggðir eru dreifðar og mest kofar á mismunandi stigum, þótt sæmileg millistéttarhverfi birtist inni á milli. Símkerfi virkar illa, rafmagnsskortur setur svip á daglegt líf, enda er heildarframleiðsla í 13 milljóna manna landi minni en nemur hálfri Kárahnjúkavirkjun; sex prósent íbúa hafa aðgang að rafmagni.

Lesa meira
 

Auður í Afríku og systur hennar: Setja ætti skilyrði um þátttöku kvenna í öllum verkefnum - 7.6.2010

"Þar sem rík áhersla er nú lögð á eignarhald heimamanna á öllu þróunarstarfi má færa gild rök fyrir því að setja þurfi skilyrði um þátttöku kvenna í öllum þróunarverkefnum og á öllum stigum þróunarstarfsins," segja þær Þórdís Sigurðardóttir og Ágústa Gísladóttir í grein í ÞRÓUNARMÁl, upplýsingariti Þróunarsamvinnustofnunar.
 

Lesa meira
 

Höfðinginn vill koma til Íslands og þakka fyrir sig - 2.6.2010

"Fólkið hér nýtur nú betri heilsu en nokkru sinni fyrr vegna hreins og ómengaðs vatns og betrumbættra hreinlætisvenja og aðstöðu. Ólæsi er að þurrkast út vegna skólanna sem hafa verið byggðir og börnin okkar njóta nú menntunar. ÞSSÍ hefur byggt sjúkrahús og heilsugæslustöðvar og fólk fær þar aðhlynningu. Mannslífum er bjargað. Svo við sjáum árangurinn afar greinilega. Það er þess vegna sem ég vil ekki fyrir nokkra muni að ÞSSÍ yfirgefi okkur," segir Welemu Masina, höfðingjann af Nankumba í viðtali við Levi Soko, aðstoðarverkefnisstjóra ÞSSÍ í Malaví.

Lesa meira
 

Búið að bora síðustu sjö vatnsbólin í þágu Ovahimba - 31.5.2010

Boraðar hafa verið sjö síðustu holurnar fyrir Ovahimba, hirðingaþjóðflokkinn í Norður-Namibíu, sem fær frá Íslendingum 33 vatnsból áður en Þróunarsamvinnustofnun kveður landið eftir tuttugu ára samvinnu. Síðustu vatnsbólin verða afhent síðar á árinu. Gunnar Salvarsson kynningarstjóri ÞSSÍ fór með Davíð Bjarnasyni verkefnastjóra í Namibíu á fund Himbanna, eins og þeir kallast í daglegu tali, og hitti m.a. Kanjokatungu Tjiumbua sem er starfandi vatnsnefndarformaður í Etara.

Lesa meira
 

"Engin þjóð hefur rétt til að halda að sér höndum" - 27.5.2010

"Hnitmiðuð þróunarsamvinna er hluti af einbeittri viðleitni okkar til að byggja upp traust á Íslandi á nýjan leik og sýna í verki, að við látum okkur varða um hag þeirra verst settu í heiminum," segir Össur Skarphéðinsson utanríkis-ráðherra í grein í upplýsingariti Þróunarsamvinnustofnunar sem fylgdi Fréttablaðinu í morgun.
 

Lesa meira
 

Auglýst eftir starfsnemum til Malaví og Mósambík - 25.5.2010

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir tvær stöður starfsnema lausar til umsóknar. Um er að ræða fjögurra mánaða starfsþjálfun í Malaví og Mósambík tímabilið 16.ágúst til 15.desember. Starfsnemar fá tækifæri til að kynnast starfsemi stofnunarinnar á vettvangi og fá innsýn í ólíkar hliðar starfsins. Umsóknarfrestur er til 7.júní.

Lesa meira
 

Óendanleg tækifæri til þess að nýta þekkingu okkar til framfara fyrir heimsbyggðina - 20.5.2010

„Íslendingar standa vissulega framarlega í þekkingu á nýtingu endurnýjanlegra orkulinda - einkum jarðhita. Það er hins vegar í ætt við steigurlæti þjóðrembunnar, sem varð okkur að falli, að halda að við stöndum þar framar öllum öðrum þjóðum. Vissulega er þekking okkar og reynsla af virkjun jarðhita mikil en aðrar þjóðir svo sem Japanir, Bandaríkjamenn, Nýsjálendingar og Ítalir, hafa þar einnig yfir mikilli þekkingu að búa. Tækifæri okkar til þess að nýta þekkingu okkar til framfara fyrir heimsbyggðina eru óendanleg," segir Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsavminnustofnunar Íslands.

Lesa meira
 

AidData - nýr vefur með upplýsingum um framlög til þróunarmála - 29.4.2010

Nýr vefur með upplýsingum um framlög til þróunarmála hefur verið opnaður: http://www.aiddata.org/. Vefurinn heldur utan um upplýsingar um fjárframlög til þróunarsamvinnu og er ætlað að veita yfirgripsmeiri og ítarlegri upplýsingar um þróunarverkefni en áður hefur þekkst. Síðan gerir þar með tilraun til að kortleggja þróunarsamvinnu og auka gagnsæi í því skyni að bæta samstarf og áætlanagerð framlagsríkja og samstarfslanda þeirra.

Lesa meira
 

Tækifæri að skapast til að koma táknmálskennslu á háskólastig - 28.4.2010

Um þrjátíu nemendur í Kennaraskólanum í Windhoek, höfuðborg Namibíu, hafa valið táknmál sem valgrein í námi sínu við skólann. Boðið var í fyrsta sinn á síðasta ári upp á þennan möguleika í skólanum fyrir áeggjan og stuðning umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í landinu en stærsta verkefni ÞSSÍ í Nambíu er á sviði menntunar fyrir heyrnarlausa. Um fimmtán nemendur eru á fyrsta ári í táknmáli og svipaður fjöldi á öðru ári.

Lesa meira
 

„Tækifæri til að breyta lífi fólks" - 20.4.2010

„Þeir sem starfa að þróunarmálum hafa tækifæri til að taka þátt í því að breyta lífsskilyrðum fólks til hins betra og það er bæði mjög heillandi hugmynd og mögnuð upplifun. Í gegnum starfið sérðu verða breytingar á lífi fólks og það er ótrúlega góð tilfinning að eiga hlutdeild í auknum lífsgæðum," segir Drífa Hrönn Kristjánsdóttir í viðtali en hún er stýrir stærsta verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, þróunarverkefni í Kalangala héraði úti á eyjum í Viktoríuvatni í Úganda. Verkefnið hófst árið 2006 og lýkur árið 2015.

Lesa meira
 

Yfir helmingur íbúa HIV smitaður í sumum fiskimannaþorpum - 19.4.2010

Rúmlega 50% íbúa í sumum fiskimannaþorpum á Ssese eyjum í Úganda eru smitaðir af HIV veirunni og almennt fer hlutfall smitaðra hækkandi, að sögn Dr. Hillary Mitakalamire, sem stýrir heilbrigðismálum á héraðsskrifstofunni á Buggala eyju. Lífshættir farandverkamanna sem flytja frá einni verbúð til annarrar eru stór orsakavaldur í útbreiðslu HIV veirunnar. Landfræðileg lega eyjanna og samgönguerfiðleikar leiða til þess að fæstir HIV smitaðir eru í lyfjameðferð, eða aðeins einn af hverjum tíu.

Lesa meira
 

Stuðningur við samþættingu fullorðinnafræðslu í Úganda - 17.4.2010

Fullorðinnafræðsla hefur lengi verið snar þáttur í starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda. Framkvæmd hennar hefur tekið nokkrum breytingum á síðustu misserum að sögn Geir Oddssonar sem fer með þann málaflokk á umdæmisskrifstofunni í Kampala.

Lesa meira
 

Íslendingar og Norðmenn taka þátt í aðgerðum gegn ólöglegum fiskveiðum - 22.3.2010

Ólöglegar fiskveiðar, bæði við strendur Afríku og í vötnum álfunnar, fela í sér stórkostlegan tekjumissi fyrir fátæka íbúa. Í nýrri grein eftir Guðmund Val Stefánsson verkefnisstjóra fiskimála í Mósambík gerir hann grein fyir umfangi vandans og leiðum sem ákveðið hefur verið að fara til að bregðast við þessari rányrkju. Verkefnastuðningur ÞSSÍ í samvinnu við utanríkisráðuneyti Noregs í Mósambík er hluti af þessari viðspyrnu gegn ólöglegum og óskráðum fiskveiðum við strendur Afríku.

Lesa meira
 

"Erum að gera mjög góða hluti í þróunarmálum fyrir Úganda" - 19.3.2010

"Ég hef tekið eftir því þá fáeinu mánuði sem ég hef starfað með Þróunarsamvinnustofnun Íslands að verklagið mótast afskaplega mikið af árangri og ábyrgð," segir Leah Sepuya skrifstofustjóri umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Kampala en hún tók við því starfi seint á síðasta ári. "Ég er þeirrar skoðunar að við séum að gera mjög góða hluti í þróunarmálum fyrir Úganda og hópurinn er einbeittur og telur ekki eftir sér að leggja á sig aukalega til þess að ná árangri í starfi með grasrótinni, jafnvel í afskekktustu héruðum landsins."
Lesa meira
 

Innlendir verkefnisfulltrúar ráðnir í auknum mæli - 18.3.2010

Innlendir verkefnisfulltrúar hafa í auknum mæli verið ráðnir til starfa til starfa á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda. Aðeins einn íslenskur verkefnastjóri, Geir Oddsson auðlindafræðingur, er starfandi á umdæmisskrifstofunni í Kampala, en Drífa H. Kristjánsdóttir er verkefnastjóri þróunarverkefna í fiskimannasamfélögum úti á eyjum Kalangala héraðs í Viktoríuvatni. Bæði Drífa og Geir sinna fyrst og fremst eftirliti og eftirfylgni fremur en beinni framkvæmd verkefna. 
Lesa meira
 

Við eigum að sinna fiskimannasamfélögum - 11.3.2010

„Almennt talað tel ég að auðlindamál, umhverfismál og þar með talin loftslagsmál eigi að vera þungamiðja í þróunarsamvinnu okkar. Ég er líka hlynntur því að við styðjum samfélagsþróun og ef við veljum að einbeita okkur að tilteknum svæðum í því sambandi er nærtækast fyrir okkur Íslendinga að líta til fiskimannasamfélaganna.

Lesa meira
 

Fjármálamisferli í Mósambík til rannsóknar - 1.3.2010

 

Um miðjan janúar síðastliðinn lét umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í Mósambík af störfum þar eð ráðningartímabili hans var lokið og nýr umdæmisstjóri tók við starfinu. Við umdæmisstjóraskiptin komu í ljós nokkur dæmi um fjármálamisferli sem fráfarandi umdæmisstjóri viðurkenndi.

Lesa meira
 

Tungumál San fólksins færð í fyrsta sinn í letur með útgáfu námsbóka - 19.2.2010

“San börn geta nú sökkt sér ofan í eigin menningu í gegnum miðil sem skrifaður er á þeirra eigin móðurmáli, þökk sé San höfundum og tungumálanefndum sem að verkefnu komu til að veita innsýn í menningu og umhverfi San fólksins. Námsefnið mun efalítið hjálpa til við að skapa undirstöðu fyrir framtíðarmenntun þeirra, menningarlega vitund og stolt."

Lesa meira
 

Afar gagnleg verkefni fyrir uppbyggingu og þróun í Apaflóa - 4.2.2010

Nýkjörinn þingmaður Apaflóa (Monkey Bay) kjördæmis í Mangochi héraði í Malaví, Ralph Jooma, heimsótti nýverið starfsfólk ÞSSÍ á svæðinu og kynnti sér þróunarverkefnin sem þar eru unnin í samstarfi við heimamenn. Við það tækifæri sagðist þingmaðurinn hafa orðið var við mikla ánægju íbúa á svæðinu með störf ÞSSÍ sem hann taldi ekki bara sýnileg heldur afar gagnleg fyrir uppbyggingu og þróun í Apaflóa.

Lesa meira
 

Norræni Þróunarsjóðurinn skoðar samstarf við Íslendinga í jarðhitamálum - 27.1.2010

"Sendinefndin hreifst mjög af getu Íslendinga á sviði jarðhitamála og miklum árangri jarðhitaverkefnis Jarðhitaskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna," segir Helge Semb framkvæmdastjóri Norræna þróunarsjóðsins.

Lesa meira
 

Úganda: Gott dæmi um árangursríkt samstarf að mati heimamanna - 16.12.2009

Samstarfsverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og stjórnvalda í Úganda í fullorðinnafræðslu í eyjasamfélögum á Viktoríuvatni var sérstaklega nefnt sem gott dæmi um árangursríkt samstarf á árlegri ráðstefnu um samfélagsþróun í Úganda sem haldin var á dögunum. Að sögn Geirs Oddssonar verkefnastjóra ÞSSÍ í Kampala eru stjórnvöld að breyta áherslum í fullorðinnafræðslu og ætla að leggja aukna áherslu á samþættingu þeirrar fræðslu við sem flesta geira samfélagsins. Lesa meira
 

Fullorðinnafræðsla fær aukið vægi í Malaví - 9.12.2009

Átta hundruð milljónir manna í heiminum eru ólæsar að því er fram kemur í nýrri alþjóðlegri skýrslu um fullorðinnafræðslu. Skýrslan kom út á CONFINTEA ráðstefnununni í Brasilíu á dögunum en um er að ræða alþjóðaráðstefnu á vegum UNESCO sem haldin er á tólf ára fresti um fullorðinnafræðslu. Í skýrslunni kemur fram að í Afríku eru 164 milljónir manna ólæsar þar af 102 milljónir kvenna. Lesa meira
 

Mæðrahúsið í Engela tekið í notkun - 7.12.2009

Penehupifo Pohamba forsetafrú Namibíu tók á dögunum formlega í notkun nýtt mæðrahús í Engela í Ohangwena-sýslu en Íslendingar, bæði Þróunarsamvinnustofnun Íslands og gestir á Ljósanótt í Reykjanesbæ, lögðu fram fjármagn fyrir þriðjungi kostnaðarins. Fjáröflun var hleypt af stokkunum snemma árs 2007 eftir að Vilhjálmur Wiium umdæmisstjóri ÞSSÍ í Namibíu ók fram á þungaðar konur sem höfðust við undir tveimur trjám við þjóðveginn við óboðlegar aðstæður. Lesa meira
 

Tölvubúnaður afhentur til að bæta upplýsingar um löndun sjávarfangs - 18.11.2009

Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti á dögunum sjávarútvegsráðuneyti Namibíu tuttugu og fimm lófatölvur ásamt fylgihlutum. Markaði afhendingin formleg lok á samstarfsverkefni ÞSSÍ og ráðuneytisins, en verkefnið fólst í að bæta öflun löndunarupplýsinga á fiski veiddum undan ströndum Namibíu. Lesa meira
 

Íslendingar og Norðmenn skrifa undir þríhliða samning við stjórnvöld í Mósambík - 13.11.2009

Fulltrúar mósambískra, norskra og íslenskra stjórnvalda endurnýjuðu í morgun samkomulag um samvinnu í fiskimálum til næstu fjögurra ára. Samkomulagið felur í sér fyrstu samfjármögnun Íslendinga í þróunarsamvinnu en bæði Norðmenn og Íslendingar hafa stutt við fiskimál í Mósambík um langt skeið með tæknilegri og fjárhagslegri aðstoð. Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd í Mapútó, höfuðborg Mósambík. Lesa meira
 

Stórstígar framfarir á tíu árum að mati íbúa í Monkey Bay - 5.11.2009

Heilbrigðisþjónustan í Monkey Bay hefur að mati íbúa á svæðinu tekið stórstígum framförum og þeir telja að svæðissjúkrahúsið veiti næstum jafngóða þjónustu og hérðaðssjúkrahúsið í Mangochi. Á morgunverðarfundi ÞSSÍ og Háskólans í Reykjavík 3. nóvember var staða heilbrigðisverkefnis ÞSSÍ í Malaví til umræðu. Lesa meira
 

Þrjú skref áfram - eitt afturábak - 29.10.2009

Í tilefni af 20 ára samstarfi Íslands og Malaví á sviði þróunarsamvinnu og 10 ára samstarfi við heilbrigðisyfirvöld í landinu efnir Þróunarsamvinnustofnun Íslands til morgunverðarfundar í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Unnið hefur verið að lýðheilsuverkefnum fyrir íslenskt þróunarfé í einn áratug. Lesa meira
 

Forseti Malaví kynnti sér starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar - 22.10.2009

Bingu wa Mutharika forseti Malaví og Joyce Banda varaforseti landsins kynntu sér á dögunum verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í sunnanverðu landinu í tilefni af hátíðahöldum sem fram fóru á alþjóðlegum degi kvenna í strjálbýli, fimmtudaginn 15. október. Þema dagsins var: Mæður eru mikilvægar í öllu: virðum þær!

Lesa meira
 

Öryggisnámskeið ÞSSÍ fækka slysum á Malavívatni - 19.10.2009

Námskeið í öryggismálum í fiskiþorpum við Malavívatn sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur staðið fyrir á undanförnum árum hafa leitt til þess að slysum á vatninu hefur fækkað verulega. Að sögn Stefáns Kristmannssonar verkefnisstjóra liggja engar tölur fyrir um drukknanir fiskimanna á Malavívatni en hluti af verkefninu hefur verið að bæta úr skráningu. Hann segir að nú sé upplýsingum um slys safnað og þau skrásett hjá yfirvöldum. “Hvarvetna þar sem við höfum verið með þjálfun í öryggismálum fiskimanna eru menn á einu máli um fræðslan hafi fækkað slysum verulega, þar með talið dauðaslysum,” segir Stefán. Lesa meira
 

Verksamningur við ÍSOR um jarðhitaverkefni í Níkaragva - 25.9.2009

Skrifað hefur verið undir verksamning milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og Íslenskra orkurannsókna (ÍSOR) um jarðhitaverkefni í Níkaragva. Samningurinn felur í sér að ÍSOR veitir sérfræðiaðstoð á sviði jarðhita í Níkaragva á tímabilinu frá 2009 til 2012. Verkið er hluti af þróunaraðstoð Íslendinga í samvinnu við stjórnvöld og hefur það markmið að byggja upp færni og þekkingu innan ríkisstofnana sem koma að þróun jarðhitaauðlinda í landinu.

Lesa meira
 

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra stofnuð í Namibíu að íslenskri fyrirmynd - 16.9.2009

Menntamálaráðuneyti Namibíu hefur úthlutað lóð fyrir nýja Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og verið er að teikna húsnæði og ráða fólk til starfa. Stefnt er að því að starfsfólk námibísku samskiptamiðstöðvarinnar, sem hlotið hefur nafnið Center for Communication and Deaf studies (CCDS), komi til Íslands í þjálfun á næsta ári hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Lesa meira
 

Úttekt á stuðningi ÞSSÍ við kvenna- og félagsmálaráðuneytið í Mósambík - 3.9.2009

Lokaskýrsla vegna úttektar á stuðningi Þróunarsamvinnustofnunar við kvenna- og félagsmálaráðuneytið í Mósambík sýnir að verkefnið hefur haft jákvæð áhrif bæði hvað varðar uppbyggingu á tækjakost ráðuneytisins og þjálfun starfsmanna á ýmsum sviðum. Lesa meira
 

Rýniskýrsla um vatns- og hreinlætisverkefni ÞSSÍ í Malaví - 27.8.2009

Nýlega var gefin út rýniskýrsla um vatns- og hreinlætisverkefni sem ÞSSÍ styður á Monkey Bay svæðinu í Mangochi héraði í Malaví. Niðurstöður rýninnar eru afar jákvæðar og segir m.a. í skýrslunni að ef hún eigi að skila einu áliti, séu það tilmæli til hluteigandi aðila um að nota verkefnið sem fyrirmynd í að byggja upp vatns- og hreinlætismál á landsvísu í því skyni að auka efnahagslega þróun, draga úr fátækt og auka heilbrigði meðal íbúa landsins. Lesa meira
 

Úttekt á fullorðinsfræðsluverkefni ÞSSÍ í Úganda - 26.8.2009

Út er komin lokaskýrsla vegna úttektar sem gerð var á fullorðinsfræðsluverkefni sem ÞSSÍ styður í Mukono héraði í Úganda. Niðurstöður úttektarinnar sýna að fullorðinsfræðsla skiptir máli fyrir samfélögin sem í hlut eiga, og landið í heild. Hún hefur jákvæð áhrif á aðra þætti samfélagsins og er mikilvæg í baráttu þeirra við fátækt. Lesa meira
 

Opið hús á Menningarnótt - 22.8.2009

Þróunarsamvinnustofnun Íslands verður með opið hús á Menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst. Opið verður á aðalskrifstofu ÞSSÍ í Þverholti 14, 2. hæð, frá klukkan 14-18. Starfsfólk ÞSSÍ býður alla hjartanlega velkomna í heimsókn til að kynna sér starfsemi stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Siðareglur starfsmanna ÞSSÍ gefnar út - 18.8.2009

Nýsamþykktar siðareglur starfsmanna ÞSSÍ hafa nú verið gefnar út í litlu broti, starfsmönnum til hægðarauka. Við undirritun þeirra skuldbindur hver starfsmaður sig til að framfylgja reglunum, en þær kveða á um framkomu þeirra heima og erlendis í þeim tilgangi að tryggja gott orðspor ÞSSÍ. Lesa meira
 

Unnið að stofnun Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra í Namibíu - 6.8.2009

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi ætlar að styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfsrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi. Undanfarin ár hefur Samskiptamiðstöðin unnið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við að bæta kennslu heyrnarlausra í Namibíu með áherslu á táknmál og þjálfun táknmálstúlka.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun afhendir skólastofur í nýjan grunnskóla heyrnarlausra barna - 31.7.2009

Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti í vikunni sýsluyfirvöldum í Ohangwena-sýslu í Namibíu þrjár nýjar skólastofur í nýjan grunnskóla fyrir heyrnarlaus börn. Skólastofurnar eru þær fyrstu í Usko Nghaamwa skólanum í bænum Eenhana.

Lesa meira
 

Samið við Háskólann í Reykjavík um heilbrigðisverkefni í Malaví - 30.7.2009

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur samið við Háskólann í Reykjavík um sérfræðiaðstoð með framkvæmd heilbrigðisverkefnis í Malaví sem lýtur m.a. að starfsemi sjúkrahússins í Monkey Bay sem byggt var fyrir íslenskt þróunarfé. Aðgerðaáætlun um stuðning við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á þessu svæði var upphaflega gerð við heilbrigðisráðuneytið í Malaví árið 2000. Lesa meira
 

Norræn samvinna í verki - 28.7.2009

Skrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkaragva hefur fengið starfsaðstöðu í sendiráði Finna í höfuðborginni Managua en umdæmisskrifstofu ÞSSÍ og sendiráði Íslands verður lokað um næstu mánaðamót. Vegna skuldbindinga Íslands um samstarf við stjórnvöld í Níkaragva um jarðhitamál fram til 2012 verður rekin skrifstofa í landinu og Finnar tóku þeirri málaleitan vel að hýsa fulltrúa Íslands. Lesa meira
 

Tuttugu ára þróunarsamvinnu Íslendinga í Namibíu að ljúka - 21.7.2009

Tuttugu ára þróunarsamvinnu Íslendinga og Namibíumanna lýkur í lok næsta árs. Íslensk stjórnvöld hafa formlega tilkynnt stjórnvöldum í Namibíu að ekki sé unnt að verða við óskum þeirra um framlengingu á samstarfssamningi milli þjóðanna um þróunarsamvinnu. Samstarfsþjóðum Íslendinga í tvíhliða þróunarsamvinnu fækkar því um helming á tveimur árum, úr sex í þrjár, en þegar hefur umdæmissskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands á Srí Lanka verið lokað og þessa dagana er verið að loka skrifstofunni í Níkaragva. Lesa meira
 

Malaví með tæplega fjórðung framlaga Þróunarsamvinnustofnunar - 29.6.2009

“Þróunarsamvinnustofnun Íslands endurspeglar lífskjör íslensku þjóðarinnar á sama hátt og allar aðrar íslenskar stofnanir, fyrirtæki og heimili. Þegar vel árar ríkir velmegun meðal landsmanna og sú velmegun hefur jákvæð áhrif á allt umhverfið. „Það er fallegt við Breiðafjörð þegar vel veiðist,“ var sagt á Íslandi hér á árum áður þegar fiskgengd á miðunum við landið réði því hvort þjóðinni farnaðist vel eða illa. Þeir dagar eru nú löngu liðnir þegar fiskurinn einn réði hvort íslenska þjóðin hefði í sig og á.” Lesa meira
 

Úgandabúar sækja frumkvöðlanámskeið í HR - 16.6.2009

Tólf verðandi leiðbeinendur á frumkvöðlanámskeiðum í Úganda eru komnir hingað til lands á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og sækja þjálfunarnámskeið í Háskólanum í Reykjavík. Hópurinn dvelur hér á landi í tvær vikur og fær leiðsögn um það hvernig fanga á viðskiptatækifæri og hvernig unnt er að gera viðskiptahugmynd að veruleika. Eftir námið hér á landi heldur hópurinn heim og miðlar þessari þekkingu áfram. Lesa meira
 

Búseta kringum ný vatnsból Himba þrefaldaðist - 5.6.2009

Talið er að búseta Himba í grennd við ný vatnsból sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands byggir í samstarfi við hirðingjaþjóðflokkinn í Namibíu hafi þrefaldast á síðasta þurrkatíma. Það sýnir mikilvægi vatnsbólanna fyrir hirðingjana sem oft að flakka langar leiðir með hjarðir sínar í leit að beitarlandi og vatni. Að sögn Davíðs Bjarnasonar verkefnisstjóra ÞSSÍ í Namibíu herja alvarlegir þurrkar á svæðið og valda miklum búsifjum. Lesa meira
 

Íslendingar í kosningaeftirliti í Malaví - 20.5.2009

Fimm Íslendingar, starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, voru meðal kosningaeftirlitsmanna í Malaví við forseta- og þingkosningarnar sem fram fóru í gær. Fyrstu tölur benda til yfirburðasigurs Bingu wa Mutharika, forseta landsins. Lesa meira
 

Námskeiði um þróunar- og mannúðarmál lokið - 18.5.2009

Lokið er vel heppnuðu námskeiði um verksvið innlendra og alþjóðlegra stofnana sem koma að alþjóðlegri þróunarsamvinnu, friðarstarfi og neyðaraðstoð. Námskeiðið var haldið í samvinnu Rauða kross Íslands, Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, utanríkisráðuneytisins og Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands. Námskeið sem þetta hefur ekki áður verið haldið á Íslandi. Lesa meira
 

Áhrif efnahagskreppunnar á ríki Afríku - 29.4.2009

Málþing á vegum Norrænu Afríkustofnunarinnar, utanríkisráðuneytisins, Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Félags- og mannvísindadeildar Háskóla Íslands verður haldið fimmtudaginn 7. maí næstkomandi. kl. 14.00 – 17.00 í Háskóla Íslands, Öskju, Sturlugötu 7, Reykjavík.

Lesa meira
 

Trúðar og sögur heyrnarlausra á fjölum Þjóðleikhússins í Namibíu - 15.4.2009

Leikhús heyrnarlausra, Draumasmiðjan, setti fyrir nokkru upp tvö leikrit í Namibíu, í samvinnu við leiklistardeild Listaskólans í Windhoek og Þjóðleikhússins í Namibíu. Sýningar á verkunum voru liður í táknmálsverkefni Þróunarsamvinnutofnunar í Namibíu en eitt af markmiðum verkefnisins er að stuðla að vitundarvakningu um menningu og stöðu heyrnarlausra í landinu. Fyrir grunnskólabörn var sett á svið leikverkið Bring on the Clowns og fyrir fullorðna leikritið Deaf Stories. Báðar leiksýningarnar fengu afskaplega góðar viðtökur Lesa meira
 

Nýr verkefnastjóri félagslegra verkefna í Malaví - 3.4.2009

Jo Tore Berg hefur verið ráðinn verkefnastjóri félagslegra verkefna í Malaví og tekur hann við starfinu í byrjun maí. Jo er með BA gráðu í mannfræði og MA gráðu í mannfræði og þróunarfræði frá Háskóla Íslands. MA ritgerð hans “Við erum á þróunarbraut” byggir á vettvangsathugun sem hann gerði í Malaví árið 2006 og fjallar um orðræður og upplifun þátttakenda af fullorðinsfræðsluverkefni því sem ÞSSÍ styður í Monkey Bay. Jo starfaði á aðalskrifstofu ÞSSÍ árið 2008 og áður sem starfsnemi í Malaví. Jo hefur auk þess starfað sem stundakennari við Háskóla Íslands og kennt námskeið um kenningar í þróunarfræði. Lesa meira
 

Breyta viðhorfum og tryggja gæðaeftirlit - 30.3.2009

Ætlunin er að breyta viðhorfum og tryggja gæðaeftirlit með fiski til neyslu í Úganda og til útflutnings með nýju verkefni sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands og stjórnvöld í Úganda skrifuðu undir á dögunum. Að sögn Gunnars Þórðarsonar verkefnisstjóra fiskimála í Úganda er gert ráð fyrir endurskipulagningu á gæðaeftirliti og þjálfun eftirlitsmanna sem munu sjá um eftirlit og kennslu í fiskveiðihéruðum og við löndunarstaði við Viktoríuvatn, Albertsvatn og Koyoga. Náin samvinna verður við héraðsstjórnir og samtök fiskimanna.

Lesa meira
 

Sendiráði Íslands í Managua lokað 1. ágúst - 26.3.2009

Samuel Santos utanríkisráðherra Níkaragva og Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands áttu fund í Managua á þriðjudag vegna þeirrar ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að loka sendiráði Íslands í landinu sem jafnframt er umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Auk þeirra sátu fundinn Valdrack Jaentschke aðstoðarutanríkisráðherra þróunarmála, Roberto Leal framkvæmdastjóri skrifstofu Evrópumála, Geir Oddsson umdæmissstjóri ÞSSÍ í Níkaragva og Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri félagslegra verkefna.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun eingöngu í Afríku síðar á árinu - 19.3.2009

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að loka í sumar sendiskrifstofu Íslands í Níkaragva sem jafnframt er umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Áformað er að lokað verði frá og með 1. ágúst. Áður hafði verið tilkynnt að starfsemi ÞSSÍ á Srí Lanka ljúki um mitt ár. Samstarfslöndum Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu fækkar því um tvö á þessu ári og starfsemin verður síðari hluta ársins á ný eingöngu bundin við Afríkuríki, eins og hún var allar götur fram til ársins 2004. Lesa meira
 

Íslenska verkefnið getur rutt brautina fyrir áþekk verkefni að mati ráðherra - 19.2.2009

Sidik Mia ráðherra vatnsmála í Malaví telur að íslenska vatns- og hreinlætisverkefnið í Mangochihéraði geti rutt brautina fyrir áþekk verkefni á öðrum svæðum í framtíðinni. Ráðherrann kynnti sér á dögunum áhrif verkefnisins á daglegt líf íbúa og ræddi við starfsmenn til að kanna framvindu mála. Greint var frá heimsókn ráðherrans og fylgdarliðs hans í öðru stærsta dagblaði Malaví.

Lesa meira
 

Namibía: Fullorðinsfræðsla meðal heyrnarlausra og táknmálsnám í kennaraskólanum - 15.1.2009

Í þessum mánuði verður hleypt af stokkunum fullorðinsfræðslu fyrir heyrnarlausa í Namibíu en það er hluti af táknmálsverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í samvinnu við menntamálaráðuneyti Namibíu. Ennfremur hefur verið ákveðið að ÞSSÍ styðji Kennaraskólann í höfuðborginni Windhoek í viðleitni hans við að bjóða táknmál sem valgrein fyrir kennaranema. Ráðið hefur verið í stöðu lektors sem tekur til starfa í þessum mánuði. Lesa meira
 

Áhrif nýrra laga á starfsemina rædd á umdæmisstjórafundi - 9.1.2009

Áhrif nýrra laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu á starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands var meðal dagskráratriða á árlegum tveggja daga fundi umdæmisstjóra ÞSSÍ sem haldinn var í vikunni. Fundurinn var að þessu sinni haldinn hér heima en hann sátu umdæmisstjórar í sex samstarfslöndum Íslands auk fulltrúa á aðalskrifstofunni í Reykjavík. Lesa meira
 

Ný fiskverkunaraðstaða í þorpinu Madzedze - 6.1.2009

“Aðstaðan sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur sett upp í Madzedze þorpinu við Malavívatn í samvinnu við heimamenn gæti hugsanlega orðið að fyrirmynd fleiri slíkra umhverfis Malavívatn, en framtíðin verður að dæma um hvort vel hafi til tekist og hvort þetta verði fiskimannafjölskyldum til framdráttar með aukinni fæðuöflun,” segir Stefán Kristmannsson verkefnastjóri fiskimála hjá ÞSSÍ í Malaví. Lesa meira
 

Nýtt smárit um Malaví komið út - 22.12.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gefið út smárit um Malaví, eitt af sex samstarfslöndum Íslands í þróunarsamvinnu. Ritið er ætlað almenningi og skólafólki til fróðleiks um samstarfslöndin. Fyrsta smárit ÞSSÍ um Malaví kom út árið 1999 en hefur verið ófáanlegt um langt skeið. Lesa meira
 

Þróunarstofnun Belgíu í samstarf við ÞSSÍ í Úganda - 17.11.2008

Þróunarstofnun Belgíu hefur óskað eftir aðkomu að frumkvöðlaverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda en verkefnið er unnið er í samstarfi við Fjárfestingastofu Úganda. Belgar munu leggja verkefninu til fjárhæð sem nemur 500 þúsund evrum. Með þessum auknu fjármunum verður unnt að lengja verkefnistímann fram til árins 2011, fjölga námskeiðum víða um landið og veita fleiri frumkvöðlum þjálfun.

Lesa meira
 

Lagt til að fjárframlög til þróunarsamvinnu verði skert um tæpar 1700 milljónir - 13.11.2008

Samkvæmt hagræðingartillögum utanríkisráðuneytis verða framlög til þróunarsamvinnu skert um 1666 milljónir króna á næsta ári sem er rúmlega 32% niðurskurður frá fjárlagafrumvarpi ársins 2009. Af þessari upphæð verða framlög til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands lækkuð um 777 milljónir króna frá því sem fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir. Lesa meira
 

Sjö fulltrúar Alþingis kosnir í þróunarsamvinnunefnd - 10.11.2008

Alþingi hefur kosið nefndarmenn í þróunarsamvinnunefnd en hlutverk hennar, samkvæmt nýlegum lögum um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands, er að tryggja aðkomu fulltrúa þingflokka að stefnumarkandi umræðu og ákvörðunum ráðherra um alþjóðlega þróunarsamvinnu til lengri tíma. Aðalmenn í nefndinni eru Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur, Haukur Már Haraldsson kennari, Sigfús Ólafsson viðskiptafræðingur, Drífa Hjartardóttir framkvæmdastjóri, Katrín Ásgrímsdóttir garðyrkjubóndi, Guðrún Ögmundsdóttir fyrrverandi alþingismaður og Ásgerður Jóna Flosadóttir stjórnmálafræðingur.

Lesa meira
 

Tíu ára afmæli Sjávarútvegsskólans - 22.10.2008

Um þessar mundir fagnar Sjávarútvegsskól Háskóla Sameinuðu þjóðanna 10 ára starfsafmæli. Af því tilefni er efnt til ráðstefnu um sjálfbærni í sjávarútvegi, eða "Sustainble Fisheries" í sem víðustum skilningi. Á ráðstefnunni verða rædd þau atriði sem skipta munu máli í framtíðarþróun, sér í lagi í þróunarlöndum, s.s. veiðar, vinnsla og viðskipti með fisk og fiskafurðir. Innlegg ráðstefnunnar mun einnig styrkja undirstöður þeirrar fræðslu og þjálfunar sem Sjávarútvegsskólinn veitir.
Lesa meira
 

Staðið verði við skuldbindingar um þróunarsamvinnu - 13.10.2008

Stjórnendur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa fullvissað fulltrúa þróunarlandanna um að yfirstandandi fjármálakreppa verði ekki látin bitna á fátækasta fólkinu í heiminum. Þessar tvær stóru alþjóðlegu fjármálastofnanir heita því sameiginlega að veita fjármagni til fátækra ríkja til að styrkja efnahag þeirra ásamt greiningu og ráðgjöf. Þær hvetja jafnframt ríkisstjórnir iðríkjanna til að gleyma ekki þróunarlöndunum og standa við skuldbindingar um þróunarsamvinnu. Lesa meira
 

Ráðstefna um sjávarútveg og fiskeldi í Namibíu - 2.10.2008

Dagana 24.-26. september var haldin ráðstefna um sjávarútveg og fiskeldi í Namibíu. Að sögn Vilhjálms Wiium umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Namibíu var tilgangur ráðstefnunnar að líta yfir farinn veg og að horfa til framtíðar.

Namibísk stjórnvöld vilja tryggja að viðskiptaumhverfi sé eins gott og mögulegt er til að tryggja að namibíska þjóðin njóti ávaxtanna af náttúrurauðlindum landins og ráðstefnan var hugsuð sem skref í þá átt,” segir Vilhjálmur.

Lesa meira
 

Hrein orka: Vegvísir til framtíðar - 26.9.2008

„Reynsla okkar Íslendinga við að nýta náttúruauðlindirnar á skynsamlegan hátt færir þróunarríkjum heim sanninn um hvernig unnt er að ná árangri,” segir Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands í grein sinni Hrein orka: Vegvísir til framtíðar, í nýútkomnu tímariti Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Ólafur Ragnar segir það von sína að margar þjóðir muni fylgja fordæmi okkar og skilja að það sem í fyrstu hafi reynst erfið áskorun geti á fáeinum árum orðið að árangursríkum veruleika ef réttri stefnu sé fylgt. Lesa meira
 

Níkaragva: Neyðarástand í orkumálum en miklir möguleikar á nýtingu jarðvarma - 24.9.2008

Neyðarástand ríkir í orkumálum í Níkaragva en möguleikar landsins til nýtingar jarðvarma eru mjög miklir, að sögn Geirs Oddssonar umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar í landinu. Hann segir umframeftirspurn gífurlega og að skömmtun rafmagns sé daglegt brauð. Lesa meira
 

Erfið staða barna í Malaví - 23.9.2008

Staða barna og ungmenna í Malaví fer á sumum sviðum batnandi en á öðrum hafa engar breytingar orðið og því þarf að herða róðurinn ef Malaví á að ná Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2015. Þetta kemur fram í tveimur nýútkomnum skýrslum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, ársskýrslu ársins 2007 og stöðuskýrslu um afrísk börn árið 2008. Lesa meira
 

Museveni býður íslenskum frumkvöðlum að fjárfesta í Úganda - 19.9.2008

Yoweri Museveni forseti Úganda hélt af landi brott í morgun eftir þriggja daga opinbera heimsókn til Íslands í boði Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Í ferðinni bauð Museveni íslenskum frumkvöðlum að koma til Úganda og fjárfesta í þeim sviðum efnahagslífsins sem sett væru í forgang af hálfu stjórnvalda, þróun innviða samfélagsins, orkumálum og landbúnaðarframleiðslu til útflutnings. Einnig bauð hann forseta Íslands í opinbera heimsókn til Úganda. Lesa meira
 

Museveni, forseti Úganda, í opinbera heimsókn til Íslands - 16.9.2008

Forseti Úganda Yoweri K. Museveni og frú Janet Museveni koma í opinbera heimsókn til Íslands miðvikudaginn 17. september. Með þeim í för eru utanríkisráðherra landsins Sam Kuteesi, þingmenn og embættismenn. Markmið heimsóknarinnar er einkum að kynna sér nýtingu jarðhita á Íslandi, þróun sjávarútvegs, menntun í upplýsingatækni og beitingu hennar í þágu opinberrar stjórnsýslu. Heimsóknin er einnig mikilvægur áfangi í auknum tengslum Íslands við Afríku en Úganda er meðal helstu forysturíkja álfunnar.

Lesa meira

 

Ný lög um um þróunarsamvinnu marka tímamót, segir utanríkisráðherra - 12.9.2008

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir að samþykkt nýrra laga á Alþingi um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands marki tímamót en með samþykktinni er innsiglað markmið stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um að þróunarsamvinna sé nýr hornsteinn íslenskrar utanríkisstefnu. Segir ráðherra þróunarsamvinnu lykilmál alþjóðasamfélagsins og forsenda heimsöryggis, friðar og réttlætis. Með nýju lögunum hafi Alþingi stigið sögulegt skref til að uppfylla skyldur Íslands í samfélagi þjóðanna. Lesa meira
 

Samstarf um vistkerfi Benguela hafsvæðisins - 10.9.2008

Þróunarhjálp Sameinuðu þjóðanna (UNDP) og Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ICEIDA) hafa ákveðið að styðja mannauðs- og þjálfunarverkefni sem lýtur að rannsóknum á vistkerfi Benguela hafsvæðisins undan ströndum Namibíu, Suður-Afríku og Angóla. Skrifað var undir samning þessa efnis í Windhoek, höfuðborg Namibíu á föstudaginn var.

Lesa meira
 

Kynbundið ofbeldi eykst í Malaví - 5.9.2008

Nýjar tölur frá Malaví sýna að kynbundið ofbeldi er að aukast. Árið 2007 varð 18% aukning á tilkynntum málum um heimilisofbeldi. Í grein Ásdísar Bjarnadóttur starfsnema á umdæmisskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar, sem heimsótti á dögunum kvenna-athvarf í borginni, koma um 50 mál koma til kasta samtakanna í mánuði hverjum. Forstöðukonan, Catherine Munthali, segir að stundum fallist þeim hendur yfir fjölda þeim sem leitar til þeirra í athvarfið. Lesa meira
 

Nýtt verkefni sem miðar að því að draga úr kynbundnu ofbeldi í Níkaragva - 3.9.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að styðja verkefni í Níkaragva sem hefur það að markmiði að draga úr kynbundnu ofbeldi í sveitarfélaginu Juigalpa í miðhluta landsins. Framkvæmd verkefnisins verður í höndum kvennasamtakanna AMNLAE, en síðustu 30 árin hafa samtökin unnið að því að bæta stöðu kvenna og auka réttindi þeirra. Lesa meira
 

Tækifæri sem ég nýti til fulls - 2.9.2008

“Það er langt frá því að vera auðvelt að fá stuðning til að fara í háskólanám og þetta er tækifæri sem ég nýti mér til fulls, skólinn opnar augu mín fyrir margvíslegum málefnum, bætir möguleika mína til atvinnu og síðast en ekki síst er háskólanámið mjög þroskandi fyrir mig,” segir Moses Thomas, ungur Malavi, sem er fyrsti nemandinn frá Namazizi skólanum sem valinn var af ríkinu til að stunda nám á háskólastigi.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun á Menningarnótt - 21.8.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands kynnir starfsemi sína á Menningarnótt Reykjavíkurborgar með utanríkisráðuneytinu sem fyrst ráðuneyta verður með opið hús laugardaginn 23. ágúst í húsakynnum sínum við Rauðarárstíg milli kl. 14 og 18. Lesa meira
 

Skólastofur í byggingu á Atlantshafsströnd Níkaragva - 20.8.2008

Bygging á skólastofum sem ÞSSÍ fjármagnar á Atlantshafsströnd Níkaragva er nú hafin. Um er að ræða 20 stofur í 9 skólum í sveitarfélögunum Bluefields og Puerto Cabezas. Verið að er byggja við skóla þar sem þeir ráða ekki lengur við fjölda nemenda. Stofurnar verða útbúnar með helstu nauðsynjum, s.s. stólum fyrir nemendur og kennaraborðum. Einnig verða byggðir kamrar eða þeir lagaðir þar sem er þörf. Lesa meira
 

Vatn sprettur uppúr fyrstu borholu ársins - 11.8.2008

Starfsmenn vatns- og hreinlætisverkefnis Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Monkey Bay vinna nú hörðum höndum að því að bora fyrir vatni og grafa vatnsbrunna til að tryggja íbúum aðgang að hreinu og ómenguðu vatni. “Í byrjun ágúst var fysta borholan boruð í Nankumba hreppi. Eftir átta stunda borun fannst vatn á um það bil 80 metra dýpi. Það vakti mikinn fögnuð þorpsbúa sem fram til þessa hafa þurft að sækja vatn í mengaðar lindir um langan veg frá þorpinu,” segir Glúmur Baldvinsson, verkefnisstjóri ÞSSÍ í vatns- og hreinlætisverkefninu.

Lesa meira
 

Fyrsti keisarinn í Malaví! - 17.7.2008

Fyrsti keisaraskurðurinn var framkvæmdur á dögunum í sjúkrahúsinu í Monkey Bay í Malaví þegar þar var tekin í notkun skurðstofa. “Aðgerðirnar fara vel af stað og við væntum þess að nýja aðstaðan verði til þess að bjarga konum í barnsnauð,” segir Guðbrandur Þorkelsson læknir sem starfar sem ráðgjafi við sjúkrahúsið fyrir hönd Þróunarsamvinnustofnunar Íslands.

Lesa meira
 

Ársskýrsla ÞSSÍ: Menntamál stærsti málaflokkurinn - 16.7.2008

“Íslendingar búa nú að ríkari þekkingu, sérmenntun og reynslu af störfum á vettvangi í þróunarríkjum en áður þekkist. Þetta á ekki síst við um starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar sem hafa margir hverjir áralanga reynslu af störfum í þróunarríkjum en saga ÞSSÍ spannar rúman aldarfjórðung. Ársskýrslan er vitnisburður um þennan mannauð, yfirlit um starfsemina á einu ári, verkefni og samstarf við þær sex þjóðir sem Íslendingar hafa gert tvíhliða samninga við um þróunarsamvinnu,” segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra meðal annars í formála ársskýrslu Þróunarsamvinnustofnunar fyrir árið 2007 sem nýkomin er út. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun veitir styrki til doktors- og meistaranema - 20.6.2008

Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur ákveðið að veita þrjá styrki til doktorsverkefna og tvo styrki til meistaraverkefna í samræmi við tillögu matsnefndar Háskóla Íslands. Alls bárust að þessu sinni tuttugu umsóknir um styrki ÞSSÍ, ellefu um meistarastyrki og níu um doktorsstyrki. Doktorsstyrkina hlutu Sigríður Björk Þormar, Kristinn Hermannsson og Pétur Waldorff, en meistarastyrkina hlutu Þórður Örn Hjálmarsson og Jakob Hafþór Björnsson. Lesa meira
 

Skrifstofustjórar frá samstarfslöndum Íslendinga í heimsókn - 19.6.2008

Sex skrifstofustjórar á skrifstofum og sendiráðum Íslands í samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands eru hér á landi um þessar mundir í náms- og kynnisferð. Í öllum löndunum eru skrifstofustjórarnir konur frá viðkomandi landi með þeirri einu undantekningu að íslensk kona stýrir skrifstofunni í Kampala, höfuðborg Úganda. Skristofustjórarnir áttu hádegisverðarfund með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra í gær. Lesa meira
 

Bæklingur fyrir sprotafyrirtæki gefinn út í Úganda - 4.6.2008

Upplýsingabæklingur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki í Úganda er nýkominn út í tengslum við frumkvöðlaverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í landinu. “Þetta er afar gagnlegur leiðarvísir fyrir frumkvöðla um leiðir til að sækja sér fjármagn og faglega ráðgjöf varðandi mismunandi þætti atvinnurekstrar,” segir Skúli Helgason varaformaður stjórnar ÞSSÍ en hann var viðstaddur þegar ritið kom út fyrir skömmu.

Lesa meira
 

Fimm starfsnemar á leið til þróunarlanda - 20.5.2008

Fimm starfsnemar halda á næstunni til fimm mánaða dvalar í samstarfslöndum Íslendinga í þróunarsamvinnu. Þeir voru ráðnir úr hópi rúmlega 150 umsækjenda um stöðurnar en Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur frá árinu 2004 ráðið starfsnema til starfa í samstarfslöndunum. Lesa meira
 

Íslendingar í samstarf við Þróunarbanka Afríku við Malavívatn - 15.5.2008

Þróunarbanki Afríku hefur óskað eftir samstarfi við Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Malaví um tilraunaveiðar á Malavívatni til að meta hagkvæmni endurbóta á veiðarfærum sem Íslendingar hafa verið að þróa með heimamönnum undanfarin ár til veiða utan grunnslóðar. Að sögn Stefáns Kristmannssonar verkefnisstjóra fiskimála ÞSSÍ í Malaví er þess vænst að sameiginlegar niðurstöður að ári sýni fram á leiðir til að bæta hag fátækra fiskimanna og fjölskyldna þeirra við Malavívatn.

Lesa meira
 

Nýtt fullorðinsfræðsluverkefni í Mósambík - 29.4.2008

Nýju verkefni á sviði fullorðinsfræðslu í fátækustu sýslu Mósambík, Inhambane, hefur verið hleypt af stokkunum. Fulltrúar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og mennta- og menningarmálaráðuneytis Mósambík skrifuðu undir samstarfssamning í lok marsmánaðar og formlegu upphafi verkefsins var fagnað á dögunum með miklum hátíðahöldum í Jangamo héraði. Verkefnið er til fjögurra ára og felst einkum að því að aðstoða menntayfirvöld að bæta fullorðinsfræðslu í sýslunni. Lesa meira
 

Staðfesting á því að menntastefna okkar skilar árangri - 28.4.2008

“Þegar sést svart á hvítu að árangurinn af starfi okkar er að skila sér getur maður ekki verið annað en ánægður,” segir Stella Samúelsdóttir verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í félagslegum verkefnum í Malaví. Staðfest er í nýrri skýrslu frá héraðsyfirvöldum í Mangochi að sú menntastefna sem ÞSSÍ og yfirmenn sveitarfélagsins í Monkey Bay hafa rekið skilar sér í betri menntun, aukinni skólasókn og fleiri kennurum en á öðrum svæðum í héraðinu. Lesa meira
 

Fullorðinsfræðsla í Úganda - nýútgefið námsefni fyrir enskukennslu - 10.4.2008

Námsefni í hagnýtri ensku er nýkomið út með styrk frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Úganda en það er hluti af fullorðinsfræðslunni í landinu sem Íslendingar styrkja. Leiðbeinendur verða þjálfaðir á næstunni en áætlað er að byrjað verði að nota nýja námsefnið á miðju ári. Að mati Lilju Dóru Kolbeinsdóttur verkefnisstjóra í Úganda munu til að byrja með alls um tíu þúsund manns njóta góðs af nýja námsefninu.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinna Íslands á tímamótum - 8.4.2008

Tími stöðu- og endurmats í þróunarsamvinnu Íslands er kominn að mati Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur stjórnsýsluráðgjafa en út er komin greinargerð hennar og tillögur til utanríkisráðherra um skipulag þróunarsamvinnu Íslands innan utanríkisráðuneytisins. Sigurbjörg gerir meðal annars tillögu um að myndað verði þriðja sviðið innan ráðuneytisins, þróunarsamvinnusvið. Einnig leggur hún til að hlutverk Þróunarsamvinnustofnunar sem fagstofnunar verði eflt og að ÞSSÍ starfi sem sérstök stofnun sem heyri undir utanríkisráðuneytið.

Lesa meira
 

Fimmta mæðrahúsið opnað í Níkaragva - 18.3.2008

Mæðrahús byggt fyrir íslenskt þróunarframlag var formlega tekið í notkun á dögunum í þorpinu La Cruz de Rio Grande í Níkaragva. Gísli Pálsson umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í landinu afhenti húsið og flutti ávarp við opnunina. Mæðrahúsið í La Cruz er fimmta og síðasta húsið í þessum áfanga sem ákveðið var að reisa fyrir íslenskt fé.

Lesa meira
 

Umdæmisstjóraskipti í fjórum samstarfslöndum ÞSSÍ - 17.3.2008

Í fjórum af sex samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands verða skipti á umdæmisstjórum á þessu ári. Þrír nýir umdæmisstjórar taka við störfum, Geir Oddsson í Níkaragva, Stefán Jón Hafstein í Malaví og Tumi Tómasson sem fer til Srí Lanka. Tveir umdæmisstjórar taka við störfum á aðalskrifstofu ÞSSÍ í Reykjavík, Ágústa Gísladóttir og Gísli Pálsson. Lesa meira
 

Formleg afhending hluta stjórnsýslubyggingar í Mukono héraði í Úganda - 11.3.2008

Ágústa Gísladóttir umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda afhenti á dögunum við hátíðlega athöfn fullbúna fyrstu hæð í stjórnsýslubyggingu Mukono héraðs. Framlag Íslendinga til byggingarinnar er einn af mörgum verkþáttum fullorðinsfræðsluverkefnis ÞSSÍ í héraðinu en það nær til tveggja eyjaklasa á Viktoríuvatni.

Lesa meira
 

Nýtt verkefni um bætta stjórnun beitarlands á Himbasvæðum - 5.3.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að styðja þjálfunarverkefni í Namibíu sem hefur það markmið að bæta nýtingu beitarlands hjá Himbaættbálkinum í norðvesturhluta landsins. Verkefnið spannar þrjú ár og fellur vel að öðru íslensku verkefni í þágu Himba sem unnið er á sama tíma og lýtur að borun og byggingu 33 vatnsbrunna.

Lesa meira
 

Formleg afhending á sjúkrabíl í Níkaragva - 4.3.2008

Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur og stjórnarmaður í Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti á dögunum Rauðakrossdeild borgarinnar Camoapa í Níkaragva nýjan sjúkrabíl. Bíllinn var afhentur í fyrstu vettvangsferð fullrúa stjórnar ÞSSÍ og framkvæmdastjóra til Níkaragva en Íslendingar tóku upp þróunarsamvinnu við þetta fátækasta ríki Mið-Ameríku á árinu 2006.

Lesa meira
 

Staða og hlutverk Þróunarsamvinnustofnunar óbreytt samkvæmt nýju frumvarpi - 28.2.2008

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi til laga um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að staða og hlutverk Þróunarsamvinnustofnunar Íslands verði óbreytt en að sérstök lög um stofnunina frá 1981 falli úr gildi. Lesa meira
 

Nýir starfsmenn til Malaví og Namibíu - 27.2.2008

Tveir nýir starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands eru þessa dagana að taka við störfum í Malaví og Namibíu. Annars vegar er um að ræða starf læknis sem hefur það hlutverk að veita sérfræðiráðgjöf í Monkey Bay í Malaví og hins vegar starf verkefnastjóra félagslegra mála í Namibíu. Lesa meira
 

Auglýst eftir fimm starfsnemum til samstarfslanda Þróunarsamvinnustofnunar - 25.2.2008

Auglýst hefur verið eftir ungu háskólafólki til starfa í samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Um er að ræða fimm mánaða starfsþjálfun í tengslum við verkefni ÞSSÍ í fimm samstarfslöndum, Malaví, Úganda, Namibíu, Mósambík og Níkaragva. Starfsnemarnir sem valdir verða halda utan í byrjun júlí og koma heim í byrjun desember.

Lesa meira
 

Styrkir auglýstir til meistara- og doktorsnáms - 11.2.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar. Að þessu sinni verða veittir tveir styrkir til doktorsnáms og tveir til meistaranáms.

Lesa meira
 

Götuóeirðir í Mósambík vegna verðhækkana á fargjöldum strætisvagna - 5.2.2008

Til óeirða kom í morgun í ýmsum borgum Mósambík, meðal annars í höfuðborginni Maputo, þegar þúsundir mótmæltu á götum úti verðhækkun á fargjöldum strætisvagna. Löglegra beitti táragasi og skaut gúmmíkúlum að mótmælendum. Lögregla hefur staðfest að einn hafi látið lífið í óeirðunum.

Lesa meira
 

Tvær þjónustumiðstöðvar afhentar á Srí Lanka - 31.1.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti í þessum mánuði tvær þjónustumiðstöðvar við löndunarstaði til fiskimannasamfélaga á Srí Lanka, annars vegar í Beruwalla á suðvesturströndinni og hins vegar í Nilwella á suðurodda eyjunnar.

Lesa meira
 

Orkumálaráðherra Níkaragva skrifar undir samstarfssamning við Þróunarsamvinnustofnun Íslands - 28.1.2008

Emilio Rappaccioli orkumálaráðherra Níkaragva skrifar í dag undir samstarfssamning við Þróunarsamvinnustofun Íslands um fimm ára þróunarverkefni á sviði jarðhitamála. Verkefnið felur í sér uppbyggingu mannauðs til að nýta jarðvarma í Níkaragva en íslenskir vísindamenn koma til með að veita stjórnvöldum þar sérþekkingu og þjálfun í þessum mikilvæga málaflokki. Ráðherrann er staddur hér á landi í boði ÞSSÍ.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun fjármagnar byggingu tuttugu skólastofa í Níkaragva - 15.1.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ákveðið að fjármagna og búa húsgögnum tuttugu skólastofur í níu grunnskólum í tveimur sveitarfélögum á Atlantshafsströnd Níkaragva, Bluefields og Puerto Cabezas. Um er að ræða þríhliða samstarfssamning ÞSSÍ, menntamálaráðuneytis Níkaragva (MINED) og hvorrar sveitarstjórnar um sig. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun: Mest áhersla á menntamál á árinu - 14.1.2008

Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun ársins 2008 verða menntamál fyrirferðarmest í starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar á árinu í sex samstarfslöndum stofnunarinnar. Rúmlega fjórðungi af fjármagni ÞSSÍ til þróunarsamvinnu verður varið til verkefna á sviði menntamála. Til fiskimála verður varið tæplega fimmtungi. Lesa meira
 

Fiskimannasamfélag á Srí Lanka fær afhenta þjónustumiðstöð - 8.1.2008

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur á síðustu mánuðum afhent fjórar þjónustumiðstöðvar við löndunarstaði á Srí Lanka en byggingarnar eru hluti af þróunaraðstoð við fiskimannasamfélög á eyjunni. Kvenfélög hafa í auknum mæli tekið að sér rekstur miðstöðvanna. Lesa meira
 

Nýtt samstarfsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Eþíópíu - 7.1.2008

Hjálparstarf kirkjunnar og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa ákveðið að verja sameiginlega 75 milljónum íslenskra króna til þriggja ára verkefnis í einu fátækasta héraði Eþíópíu. Verkefnið er það stærsta í sögu Hjálparstarfs kirkjunnar. Lesa meira
 

Íslensk sérþekking í jarðhitamálum til stuðnings stjórnvöldum í Níkaragva - 11.12.2007

“Óvissuástand í orkumálum er að mati stjórnvalda hér í Níkaragva einn helsti þrándur í götu allrar þróunar í landinu. Skömmtun á rafmagni er daglegt brauð en engu að síður eru möguleikar landsins til nýtingar jarðvarma geysilega miklir og við ætlum að leggja stjórnvöldum lið við að byggja upp mannauð til að nýta jarðvarmann,” segir Gísli Pálsson umdæmsstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkaragva. Lesa meira
 

Stefán Jón Hafstein verður umdæmisstjóri í Malaví - 5.12.2007

Stefán Jón Hafstein verður næsti umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví. Hann tekur við starfinu fyrri hluta næsta árs af Skafta Jónssyni sem snýr heim eftir ársdvöl. Stefán Jón hefur á þessu ári verið verkefnastjóri ÞSSÍ í Namibíu. Lesa meira
 

Heyrnarlausir táknmálskennarar útskrifaðir í fyrsta sinn í Namibíu - 29.11.2007

Heyrnarlausir táknmálskennarar voru í fyrsta sinn útskrifaðir í Namibíu í gær eftir þriggja mánaða námskeið sem haldið var á vegum Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Íslensku stofnanirnar vinna sameiginlega að þriggja ára þróunarverkefni, sem kallast Táknin tala, í samvinnu við yfirvöld menntamála í Namibíu. Lesa meira
 

Fjórða mæðrahúsið tekið í notkun í Níkaragva - 27.11.2007

Fjórða mæðrahúsið á þessu ári sem byggt er fyrir íslenskt fjármagn í Níkaragva var formlega tekið í notkun á dögunum. Mæðrahúsið er í borginni Juigalpa í miðhluta Níkaragva. Kvennasamtök í borginni hafa tekið að sér rekstur hússins í sjálfboðavinnu. Lesa meira
 

Afrísk stemmning í Norræna húsinu næsta sunnudag - 22.11.2007

Sunnudaginn 25. nóvember kl. 16:00 stendur félagið Afríka 20:20 fyrir kynningu í Norræna húsinu á bókinni "Afríka sunnan Sahara í brennidepli". Bókin kom út í haust og er ætlað er auka almennan fróðleik og skilning á álfunni, sögu hennar og samtíma. Lesa meira
 

Nýr sjúkrabíll afhentur í Níkaragva - 22.11.2007

"Sveitarfélagið er stórt, samgöngur erfiðar og talsverð vegalengd á næsta spítala. Sjúkrabíllinn á því eftir að koma að góðum notum," segir Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkargva. Gerður afhenti forseta Rauðakrossdeildar í borginni Camoapa glænýjan sjúkrabíl á dögunum fyrir hönd ÞSSÍ. Lesa meira
 

Heilsugæslustöð Rauða krossins og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands opnar í Mósambík - 20.11.2007

Heilsugæslustöð sem Rauði krossinn og Þróunarsamvinnustofnun Íslands reistu í sameiningu í Mósambík hefur verið formlega opnuð og afhent heilbrigðisyfirvöldum í Mósambík til rekstrar. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun afhendir framhaldsskóla í Malaví - 19.11.2007

Fyrsti framhaldsskólinns í Malaví sem byggður er fyrir íslenskt fjármagn var afhentur malavískum yfirvöldum í síðustu viku. Nýi skólinn er í þorpinu Nankhwali í Mangochi héraði þar sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur verið með margvísleg verkefni á undanförnum árum. Lesa meira
 

Ekkert verkefni mikilvægara en menntun og miðlun þekkingar - 8.11.2007

Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að Ísland gerist aðili að DAC, þróunarsamvinnunefnd OECD. Þetta kom fram í ræðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um utanríkismál á Alþingi í morgun. Fram kom í ræðunnni að unnið hefur verið að mótun nýrrar rammalöggjafar um alþjóðlegt starf Íslands gagnvart þróunarríkjum á vegum ráðuneytisins í sumar. Ingibjörg sagði ennfremur að Íslandi sem auðugu ríki bæri skylda til að stefna markvisst að því að verða í hópi þeirra ríkja sem mest leggja fram til þróunarmála miðað við verga landsframleiðslu. Lesa meira
 

Mæðraskýli rís í Namibíu fyrir íslenskt fjármagn - 30.10.2007

Hafnar eru framkvæmdir, að langstærstum hluta fyrir íslenskt fjármagn, við byggingu mæðraskýlis í bænum Engela nyrst í Namibíu. Þungaðar konur á síðustu vikum meðgöngu hafa á þessu svæði um margra ára skeið leitað athvarfs undir trjám við vegkant skammt frá sýslusjúkrahúsinu. Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti á dögunum Usko Nghaamwa sýslustjóra tæplega 2,5 milljóna króna ávísun í framkvæmdasjóð nýja mæðraskýlisins við hátíðlega athöfn. Við sama tækifæri var afhent 300 þúsund króna söfnunarfé til framkvæmdanna frá íbúum Reykjanesbæjar. Lesa meira
 

Þeir fiska sem róa - frumsýning á íslenskri heimildamynd frá Malaví - 29.10.2007

“Hugmyndin með myndinni “Þeir fiska sem róa” var að gefa aðra og persónulegri mynd af íbúum þróunarlands en íslenskir áhorfendur eru vanir að sjá. Það litla efni sem berst frá Afríku gefur stundum einhæfa mynd og staðfestir einfaldar hugmyndir fólks í öðrum heimshlutum, hugmyndir byggðar á misskilningi. Þá vill það gleymast að á bak við tölur um heilsufar og þróun er fólk af holdi og blóði.” Lesa meira
 

Fyrirheit um stóraukið framlag Íslands til þróunarmála - 2.10.2007

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði í ræðu sinni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að íslensk stjórnvöld stefni að því að vera meðal þeirra ríkja í heiminum sem mest leggja fram til þróunarmála. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem lagt var fram í gær hækka heildarútgjöld til þróunarmála umtalsvert á næsta ári, eða um einn milljarð króna að raungildi. Lesa meira
 

Málþing um vanda heilbrigðisþjónustu þróunarlanda - 25.9.2007

Læknafélag Íslands efnir á laugardaginn til málþings um vanda heilbrigðisþjónustu þróunarlandanna. Aðalfyrirlesari er Dr. Kgosi Letlape, formaður Læknafélags Suður-Afríku og fráfarandi forseti World Medical Association, Alþjóðafélags lækna. Málþingið er öllum opið og stendur yfir frá 9:30 til 12:15 í Öskju í Vatnsmýri. Lesa meira
 

Þjónustumiðstöð á Srí Lanka afhent á hárréttum tíma! - 21.9.2007

Ný þjónustumiðstöð og samkomuhús fyrir íbúa fiskiþorpsins Kandakuliya á Sri Lanka var formlega tekin í gagnið 18. september síðastliðinn við hátíðlega athöfn á slaginu 10:59. Tíminn varð að vera hárréttur en hann var valinn með aðstoð stjörnuspekinga eins og tíðkast á Srí Lanka þegar tímasetning mikilvægra viðburða er ákveðin.

Lesa meira
 

Skáksveit Salaskóla sigursæl í Namibíu - 19.9.2007

Börnin í heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák hafa verið mjög sigursæl á mótum í Namibíu þar sem þau eru á ferðalagi. Liðið tók þátt í Namibíumeistaramóti skólasveita sem gestalið og lagði alla andstæðinga sína, sjö að tölu, og hlaut 27 vinninga af 28 mögulegum. Þá stóð Patrekur Maron Magnússson uppi sem sigurvegari í einstaklingskeppni þar sem keppendur voru 17 talsins. Lesa meira
 

Nýlokið endurskoðun fullorðinsfræðslu í Úganda - 19.9.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur veitt stjórnvöldum í Úganda ráðgjöf og fjárhagslegan styrk við endurskoðun á fullorðinsfræðslu í landinu. Þeirri endurskoðun er nýlokið að sögn Lilju Dóru Kolbeinsdóttur verkefnisstjóra ÞSSÍ í Úganda. Lesa meira
 

Ritföng til vinaskóla í Malaví - 18.9.2007

Namazizi skólinn í Chirombo þorpinu í Malaví er vinaskóli Mýrarhúsaskóla. Malavísku nemendurnir eiga von á góðri sendingu frá vinum sínum á Seltjarnarnesi sem á dögunumm söfnuðu ýmiss konar ritföngum. Frá þessu segir á heimasíðu Mýrarhúsaskóla.

Lesa meira
 

Heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák boðið til Namibíu - 10.9.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Kópavogsbær hafa ákveðið að bjóða heimsmeistaraliði Salaskóla í skólaskák, ásamt tveimur fararstjórum, til Namibíu. Ferðin hefst næstkomandi miðvikudag, 12. september. Lesa meira
 

"Áhrifin eru augljós - mæðrahúsið bjargar lífi kvenna og barna" - 5.9.2007

„Mæðrahúsið hér í þorpinu hefur fyrst og fremst leitt til þess að konum og kornabörnum sem deyja hefur fækkað í héraðinu. Við höfum náð til mun fleiri þungaðra kvenna úti í strjálbýlum svæðum Camoapa eftir að mæðrahúsið opnaði og það hefur haft mikil áhrif á heilsu kvenna,” segir Jose Salvador Guzmán læknir og aðstoðarframkvæmdastjóri heilsugæslunnar í Camoapa. Lesa meira
 

Níu ára barnshafandi stúlka í Mæðrahúsi í Níkaragva - 3.9.2007

Í Mæðrahúsinu í Bluefields í Níkarakva, sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands lét byggja og opnað var fyrir fáeinum vikum, dvelur nú níu ára barnshafandi stúlka. Fjölmiðlar í Níkaragúa hafa undanfarna daga sagt frá máli stúlkunnar sem var misnotuð af frænda sínum. Lesa meira
 

Fyrsta námskeiðið í Malaví um öryggismál fiskimanna - 31.8.2007

Fyrsta námskeiðinu sem haldið hefur verið í Malaví um öryggismál fiskimanna er nýlokið. Þróunarsamvinnustofnun Íslands stóð fyrir námskeiðinu þar sem fjallað var um skyndihjálp, slys á vatni, ástæður slysa og rétt viðbrögð við þeim. Auk þess var ítarleg kynning á öryggisbúnaði og björgunaraðferðum.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun styður verkefni í Asíu um veiðistjórnun í uppistöðulónum - 29.8.2007

Þróunarsamvinnustofnun hefur ákveðið að styðja verkefni um fiskveiðistjórnun í vötnum og uppistöðulónum í Asíu. Verkefnið er unnið á vegum stærstu samtaka fiskeldisríkja í heiminum, NACA, en það eru sjálfstæð samtök sautján Asíuríkja. Verkefnið er skipulagt til þriggja ára og lýkur um mitt ár 2010.

Lesa meira
 

Malaví: Fyrsti brunnurinn tilbúinn - 24.8.2007

Gerð fyrsta brunnsins í umfangsmiklu vatns- og hreinlætisverkefni sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands vinnur að í Malaví er nýlokið. “Það ríkti mikil ánægja þegar lokið var við brunninn en hann verður notaður af fjörutíu fjölskyldum eða um 400 manns,” segir Ársæll K. Ársælsson verkefnisstjóri ÞSSÍ í Malaví. Alls verða byggð 450 vatnsból á næstu fjórum árum á Monkey Bay svæðinu, þar af 300 handgrafnir brunnar og 100 borholur. Lesa meira
 

Miðlaði reynslu sinni úr íslensku viðskiptalífi til namibískra kvenna - 20.8.2007

Aðalheiður Héðinsdóttir eigandi Kaffitárs ávarpaði namibískar konur í viðskiptalífinu á málþingi sem haldið var á dögunum. Málþingið stóð yfir í þrjá daga í höfuðborginni Windhoek en því var einkum ætlað að hjálpa konum að mynda innbyrðis viðskiptatengsl. Á þriðja hundrað konur frá öllum sýslum Namibíu sóttu málþingið. Lesa meira
 

Fjárstyrkur til Skáksambands Namibíu - 10.8.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur veitt Skáksambandi Namibíu fjárstyrk vegna Afríkumeistaramóts í skák sem haldið verður í Namibíu og hefst 30. ágúst. Styrkupphæðin nemur 80 þúsund namibískum dollurum eða rúmlega 700 þúsund íslenskum krónum. Lesa meira
 

Stefnur og straumar í þróunarmálum - 10.8.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gefið út tímaritið “Þróunarmál” sem kemur út árlega og fjallar að þessu sinni um strauma og stefnur í þróunarmálum. Átta greinar eru í tímaritinu eftir innlenda og erlenda höfunda, m.a. dr. Jeffrey Sachs, Henning Melber, Jónínu Einarsdóttur og Þorvald Gylfason. Tímaritið er gefið út bæði á íslensku og ensku.

Lesa meira
 

Níkaragva: Mæðrahúsið í Bluefields hefur starfsemi - 8.8.2007

„Mæðrahúsin eru mikilvæg í báráttunni við að bæta stöðu kvenna og barna,“ segir Gerður Gestsdóttir ráðgjafi félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Níkaragva. Hún var ásamt samstarfsfólki viðstödd opnun mæðrahúss í Bluefields á Atlantshafsströnd landsins. „Mæðrahúsið í Bluefields er hið glæsilegasta, með rúm fyrir fimmtán konur og stendur við hliðina á sjúkrahúsinu sem er mikill kostur­“ segir Gerður. Lesa meira
 

Lækkandi barnadauði í Malaví - 3.8.2007

“Upplýsingar um lækkandi barnadauða eru kærkomnar. Þær sýna svo ekki verður um villst að ástand heilbrigðis getur batnað með samræmdum aðgerðum og bættum umhverfisaðstæðum.” Þetta segir Sigurður Guðmundsson landlæknir og ráðgjafi Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví en í nýlegri skýrslu Save The Children er vakin sérstök athygli á því að dauðsföllum barna undir fimm ára aldri hafi fækkað mjög í Malaví á síðustu fimmtán árum. Lesa meira
 

Malaví: Vel heppnuð HIV vika í baráttunni gegn alnæmi - 3.8.2007

“Aðsókn í HIV prófin var mikil og raunar svo að færri komust að en vildu, sérstaklega var ánægt að sjá hversu margir karlmenn og ungt fólk komu í prófin en mun fleiri konur en karlmenn hafa farið í próf hingað til,” segir Inga Dóra Pétursdóttir starfsnemi Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví. Hún fylgdist með sérstakri HIV viku í Mangochi héraði á dögunum en átakið var skipulagt af ríkisstjórn Malaví. Lesa meira
 

Stórátak í fullorðinsfræðslu í Úganda - 20.7.2007

Ríkisstjórn Úganda tilkynnti í vikunni um stórátak til að efla fullorðinsfræðslu í landinu en Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur verið ráðgefandi um þann málaflokk að beiðni stjórnvalda. ÞSSÍ hefur unnið að fullorðinsfræðsluverkefnum í landinu um árabil og árangur þeirra hefur vakið mikla athygli. Lesa meira
 

Rammasamningur um samstarf á sviði umhverfis- og skipulagsmála - 19.7.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Skipulagsstofnun hafa gert með sér rammasamkomulag um samstarf á sviði umhverfis- og skipulagsmála í þróunarríkjum þar sem ÞSSÍ er að störfum.

Lesa meira
 

Mikil ánægja með námskeið í verkefnastjórnun á Sri Lanka - 27.6.2007

Fyrsta námskeiðið af þremur í verkefnastjórnun fyrir starfsfólk í stofnunum sjávarútvegsráðuneytisins á Sri Lanka var haldið þar dagana 15.-18. júní. Námskeiðið er haldið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í samvinnu við Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna, Háskólans á Akureyri og sjávarútvegsráðuneytis Sri Lanka.

Lesa meira
 

Verkefni með San fólkinu í Namibíu til skoðunar - 19.6.2007

Þróunarsamvinnustofnun í Namibíu kannar nú mögleika á verkefnum með San fólkinu þar í landi. San fólkið telst til frumbyggja Suður Afríku og aðstæður þess eru mjög erfiðar. Stefán Jón Hafstein verkefnisstjóri ÞSSÍ segir að verið sé að kanna hvort hægt verði að koma á laggirnar leikskólum eða forskóla fyrir börn San fólksins því skortur á menntun sé áberandi og börnin lendi utanveltu í hinu formlega skólakerfi. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun borar vatnsból fyrir hirðingja í Namibíu - 12.6.2007

“Himbar eru mikið á faraldsfæti með nautgripahjarðir að leita uppi vatn og beitilönd og vatnsbólin munu auka lífsgæðin og gera hirðingjunum fært að hafa lengur fasta búsetu en nú er,” segir Stefán Jón Hafstein verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Stjórn ÞSSÍ hefur samþykkt að ráðast í að bora fyrir 33 nýjum vatnsbólum í heimkynnum Himba í norðvesturhluta Namibíu. Lesa meira
 

Fiskimálasetur formlega tekið í notkun nyrst í Mósambik - 5.6.2007

Yfirstjórn fiskimála í norðanverðri Mósambik, rannsóknarstofa og eftirlitsdeild hafrannsóknarstofnunar hafa fengið nýja og glæsilega aðstöðu fyrir starfsemi sína í nýrri byggingu í hafnarborginni Quelimane en fiskimálasetrið var formlega tekið í notkun á dögunum. Lesa meira
 

Námstefna um mat á umhverfisáhrifum jarðhita í Níkaragva - 4.6.2007

Námstefnu um mat á umhverfisáhrifum við nýtingu jarðhitasvæða í Níkaragva er nýlokið en námstefnan var haldin á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í samvinnu við umhverfisráðuneyti Níkaragva. Mikil ánægja var með námstefnuna og greinilega mikill áhugi á frekari samvinnu á þessu sviði. Lesa meira
 

Viðskipti í þróunarlöndum snúast ekki síður um gildismat en tölur - 31.5.2007

”Ef það er eitthvað sem ég hef lært á árum mínum í Afríku þá er það að viðskipti snúast ekki síður um gildismat en tölur,” sagði Kristján Erlingsson framkvæmdastjóri Icemark-Africa Ldt., á ráðstefnu Þróunarsamvinnustofnunar um fjárfestingatækifæri í þróunarlöndum sem haldin var í síðustu viku í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Útflutningsráð og Fiskifélag Íslands. Lesa meira
 

Fræðslunámskeið fyrir frumkvöðla að hefjast í Úganda - 30.5.2007

Á þessu ári er ráðgert að halda 26 fræðslunámskeið fyrir frumkvöðla í Úganda að tilstuðlan Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Að sögn Ágústu Gísladóttur umdæmisstjóra ÞSSÍ í Úganda verða námskeiðin haldin víða um landið, meðal annars í höfuðborginni Kampala, héruðum í Norður-Úganda og í Kalangala, en í því héraði eru helstu samstarfsverkefni landanna.

Lesa meira
 

Fyrsta Mæðrahúsið tekið í notkun - 25.5.2007

“Starfsemi Mæðrahúsanna hefur reynst áhrifamikil leið til að vinna gegn mæðra- og ungbarnadauða sem er hár í Níkaragva,” segir Gerður Gestsdóttir ráðgjafi félagslegra verkefna Þróunarsamvinnustofnunar í Níkaragva en á dögunum var fyrsta Mæðrahúsið, sem byggt er fyrir íslenskt fé, formlega tekið í notkun í bænum Camoapa. Fjögur önnur Mæðrahús sem byggð eru á vegum ÞSSÍ verða opnuð á næstunni og bætast í hóp þeirra 52 sem fyrir eru í landinu. Lesa meira
 

Erindi um stöðu fiskveiðistjórnunar í þróunarríkjum - 24.5.2007

Kieran Kelleher, helsti sérfræðingur Alþjóðabankans í fiskimálum flytur föstudaginn 25. maí erindi um stöðu fiskveiðistjórnunar í þróunarríkjum. Erindi hans nefnist: Enabling fisheries enforcement: Closing the governance gap in developing countries og verður flutt í Öskju, náttúrufræðihúsi HÍ, stofu 132, kl. 13:00.

Lesa meira
 

Vill sjá þekkingarmiðstöð Þróunarsamvinnustofnunar í Malaví - 21.5.2007

Umdæmisskrifstofa Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví hefur ráðið Grain Malunga til starfa sem skrifstofustjóra á aðlaskrifstofuna í höfuðborginni Lilongve. Malunga hefur starfað í tveimur ráðuneytum, síðast sem ráðuneytisstjóri í ráðuneyti áveitu- og vatnsmála og hefur gífurlega reynslu af þróunarverkefnum í heimalandi sínu.

Lesa meira
 

Mikill áhugi á starfsþjálfun á vegum Þróunarsamvinnustofnunar - 18.5.2007

Tæplega tvö hundruð umsóknir frá ungu háskólafólki bárust um starfsþjálfun á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands en umsóknarfrestur um fimm mánaða starfsþjálfun rann út um síðustu mánaðamót. Um er að ræða starfsþjálfun í fimm af sex samstarfslöndum ÞSSÍ, Malaví, Mósambík, Namibíu, Níkaragva og Úganda.

Lesa meira
 

Ráðstefna um fjárfestingatækifæri í þróunarlöndum - 16.5.2007

Fjárfestingatækifæri í þróunarlöndum er yfirskrift ráðstefnu sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands efnir til fimmtudaginn 24. maí í samstarfi við utanríkisráðuneytið, Útflutningsráð og Fiskifélag Íslands. Auk íslenskra fyrirlesara halda m.a. erindi á ráðstefnunni Kieran Kelleher frá Alþjóðabankanum og Bernadette Artivor frá Fjárfestingastofu Namibíu. Lesa meira
 

Fyrsta þjónustumiðstöð fiskimanna afhent á Sri Lanka - 4.5.2007

“Af umfanginu og hátíðarbragnum mátti ráða mikilvægi þess fyrir samfélagið hér í Toduwawa að fá þessa aðstöðu til afnota,” segir Árni Helgason umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands á Sri Lanka eftir afhendingu á fyrstu þjónustumiðstöðinni sem Íslendingar láta byggja á löndunarstað á eynni. Áformað er að reisa 26 slíkar þjónustumiðstöðvar á löndunarstöðum en þessi stuðningur við fiskimannasamfélögin á Sri Lanka er langstærsta verkefni Íslendinga í þróunarsamvinnu landanna til þessa. Lesa meira
 

Samið um tvö ný fiskiverkefni í Mósambík - 3.5.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur samið við sjávarútvegsráðuneyti Mósambík um tvö ný verkefni á sviði fiskimála. Annað verkefnið er um frekara samstarf við hafrannsóknarstofnun landsins um rannsóknir á uppistöðulóninu í Cahora Bassa í norðurhluta Mósambík en hitt verkefnið lýtur að því að koma á fót tilraunabraut við fiskimannaskólann í Matola um vinnslu og gæði. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun afhendir endurnýjaða heilsugæslustöð í Malaví - 24.4.2007

Efnt var til mikilla hátíðahalda í Nankumba í Malaví á dögunum þegar Þróunarsamvinnustofnun Íslands afhenti formlega malavískum stjórnvöldum endurnýjaða heilsugæslustöð, að viðstöddum Marjorie Ngaunje heilbrigðisráðherra Malaví og ýmsum yfirmönnum heilbrigðismála í héraðinu. Lesa meira
 

Verkfræðingur ráðinn til starfa á Sri Lanka - 20.4.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ráðið Nishantha Wickremasooriya, verkfræðing frá Sri Lanka, til starfa við sjárvarútvegsverkefni á Sri Lanka. Hann kemur til með að starfa við löndunarstaðaverkefni og undirbúning að byggingu sjómannaskóla í Batticaloa á austurhluta eyjunnar.

Lesa meira
 

Mæðrahús fær góðar viðtökur í Níkaragva - 13.4.2007

Í næsta mánuði verður formlega tekið í notkun eitt af fimm Mæðrahúsum sem Þróunarsamvinnustofnun Íslands styrkir í Níkaragva. Að sögn Gerðar Gestsdóttur verkefnisstjóra ÞSSÍ fær Mæðrahúsið í bænum Camoapa góðar viðtökur í samfélaginu og þungaðar konur leita þangað í auknum mæli. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun styður leikskóla fyrir heyrnarlausa í Namibíu - 11.4.2007

Samstarfssamningur milli skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar í Windhoek í Namibíu og eina þróaða leikskólans í landinu sem starfræktur er fyrir heyrnarlaus börn var undirritaður á dögunum (sjá myndskeið). Skólinn er rekinn af samtökunum CLaSH, sem foreldrar heyrnarlausrna barna stofnuðu fyrir nær tveimur áratugum í Namibíu. Lesa meira
 

Stjórnvöld í Níkaragva skrifa undir samstarfssamning við Þróunarsamvinnustofnun Íslands - 3.4.2007

Þrír ráðherrar í ríkisstjórn Níkaragva skrifuðu á dögunum undir samstarfssamning við Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Gísli Pálsson umdæmisstjóri ÞSSÍ í Níkaragva skrifaði undir samstarfssamningana fyrir hönd Íslendinga. Undirritunin vakti umtalsverða athygli fjölmiðla og fjallað var um samstarfið við Íslendinga á öllum helstu sjónvarsstöðvum landsins. Lesa meira
 

Samstarf um fjármögnun á framkvæmdum við framhaldsskóla í Kenýa - 30.3.2007

Samband íslenskra kristniboðsfélaga og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa gert með sér samning um sameiginlega fjármögnun á framkvæmdum við fjóra framhaldsskóla í Kenýa. Skólarnir verða byggðir á næstu tveimur árum en verklok eru áætluð sumarið 2009. Lesa meira
 

Mikið mannfall í sprengingum í Mapútó - 23.3.2007

Fjölmargir íbúar Mapútó, höfuðborgar Mósambik, hafa flúið heimili sín í dag af ótta við frekari sprengingar í borginni en síðdegis í gær sprakk vopnabúr hersins í loft upp í einu úthverfa borgarinnar. Talið er að 80 manns hafi farist. “Hér í sendiráði Íslands og skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar lék allt á reiðiskjálfi í marga klukkutíma,” segir Jóhann Pálsson umdæmisstjóri ÞSSÍ í Mapútó. Lesa meira
 

Mannfræðingur ráðinn til starfa í Níkaragva - 22.3.2007

Gerður Gestsdóttir mannfræðingur hefur verið ráðin til starfa í Níkaragva á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Hún verður sérfræðingur ÞSSÍ á sviði félagslegra verkefna og hefur þegar hafið störf.

Lesa meira
 

Nýr verkefnastjóri fiskitengdra verkefna í Mósambík - 20.3.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur ráðið Guðmund Val Stefánsson til starfa sem verkefnastjóra fiskitengdra verkefna í Mósambík með aðsetur í Maputo. Guðmundur Valur heldur utan í dag. Lesa meira
 

Stefnumótandi málþing í Namibíu um málefni heyrnarlausra setur fram þrjátíu tillögur um úrbætur - 16.3.2007

Þrjátíu tillögur um úrbætur í málefnum heyrnarlausra voru samþykktar á málþingi í Namibíu í vikunni en málþingið var haldið á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands sem hefur á undanförnum misserum unnið að verkefnum í landinu til að bæta hag heyrnarlausra. Lesa meira
 

Skafti Jónsson tekur við starfi umdæmisstjóra í Malaví - 1.3.2007

“Ég hef verið svo heppinn að fá að vera hér í nokkrar vikur til að setja mig inn í starfið og kynnast landi og þjóð. Ég tek við góðu búi og spennandi og vaxandi verkefnum sem fólkið í Monkey Bay, þar sem við vinnum mest, kann vel að meta. Þróunarsamvinnustofnun er heimsfræg í Monkey Bay og nærliggjandi þorpum – þar þekkja allir ICEIDA. Þar er fólk sem þekkir allt okkar starfsfólk frá upphafi. Það kemur í okkar hlut sem hér erum núna að viðhalda góðu orðspori og byggja ofan á það.” Lesa meira
 

"Börnin sitja ekki lengur á gólfinu" - 1.3.2007

“Grunnskólarnir hér í Maputó eru allir þrísetnir og sumir fjórsetnir þannig að skólahúsgögn sem gefin eru fyrir íslenskt fé verða sannarlega vel nýtt og börnin sitja ekki lengur á gólfinu,” segir Jóhann Pálsson, umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Nýlokið er tilraunaverkefni ÞSSÍ og fræðsluyfirvalda í höfuðborg Mósambík um endurbætur á aðbúnaði grunnskóla í Maputó. Verkefnið gaf það góða raun að viðræður um samstarfssamning til nokkurra ára um slík verkefni standa yfir. Lesa meira
 

Utanríkisráðherra þakkað fyrir þróunarsamvinnu - 27.2.2007

Forseti Úganda og ráðherrar í ríkisstjórn landsins komu á framfæri við Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra miklu þakklæti fyrir þróunarsamvinnu landanna en þriggja daga heimsókn utanríkisráðherra til Úganda lauk með heimsókn til Kalangala eyjanna. Þar styrkja íslensk stjórnvöld viðamikið byggðaþróunarverkefni, auk verkefna á sviði fullorðinsfræðslu. Lesa meira
 

Skákeinvígi á Netinu milli Namibíu og Íslands - 23.2.2007

Á morgun, laugardaginn 24. febrúar, verður haldið skákeinvígi í beinni útsendingu á vefmiðlinum ICC, á vegum VideoChess.Net, milli tveggja skóla í Nambíu og Grunnskóla Vestmannaeyja. Þróunarsamvinnustofnun hefur á síðustu misserum stutt við bakið á skáklífinu í Namibíu, einkum meðal grunnskólabarna, og einvígið er liður í þessu samstarfi þjóðanna.

Lesa meira
 

Utanríkisráðherra til Úganda - 20.2.2007

Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, heldur í dag af stað til Úganda þar sem hún hittir þarlenda ráðamenn og kynnir sér starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í landinu. Lesa meira
 

Mæðrahús í Níkaragúa fá styrki frá Þróunarsamvinnustofnun - 16.2.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gengið frá samningum við heilbrigðisráðuneyti Níkaragúa um stuðning við fimm Casas Maternas, eða Mæðrahús, á afskekktum svæðum þar sem mæðra- og ungbarnadauði er algengur. Mæðrahúsin eru ein meginstoðin í áætlun stjórnvalda í Níkaragúa í baráttunni við að fækka dauðsföllum mæðra og ungbarna. Um eitt þúsund konur nýta sér þjónustu þessara fimm húsa á ári hverju.

Lesa meira
 

Samstarf Þróunarsamvinnustofnunar og Hjálparstarfs kirkjunnar um verkefni í Malaví og Úganda - 15.2.2007

Sighvatur Björgvinsson framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Jónas Þ. Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar undirrituðu í dag tvo samstarfssamninga um verkefni í Úganda og Malaví annars vegar til þriggja ára og hins vegar fjögurra. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun styrkir úrbætur í skóla heyrnarlausra í Mapútó - 15.2.2007

Skóli heyrnarlausra í Mapútó höfuðborg Mósambík hefur á fáeinum vikum tekið algerum stakkaskiptum hvað aðbúnað áhrærir eftir að borgaryfirvöld fengu fjárstyrk frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Vegna breyttra og betri aðstæðna hafa skólayfirvöld ákveðið að opna forskóladeild og fá heyrnarlaus börn inn í táknmálsumhverfi áður en eiginlegt skyldunám hefst í 1. bekk. Lesa meira
 

Sextíu þúsund íbúar fluttir burt af flóðasvæðum í Mósambík - 12.2.2007

Um eitt hundrað manns hafa farist í flóðum í Mósambík á síðustu dögum en hermenn og hjálparstarfsmenn á þyrlum og bátum hafa flutt á brott um sextíu þúsund íbúa. Flóðin hafa enn sem komið er ekki haft nein áhrif á verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Mósambík, að sögn Jóhanns Pálssonar umdæmisstjóra ÞSSÍ í Mapútó.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun auglýsir rannsóknarstyrki til meistara- og doktorsnáms - 12.2.2007

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur auglýst til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar. Að þessu sinni verða veittir tveir styrkir til doktorsnáms og tveir til meistaranáms.

Lesa meira
 

Sandínistar vilja samstarf við íslensk fyrirtæki á sviði jarðhitamála - 7.2.2007

Viðræður við stjórnvöld í Níkaragúa um þróunarsamvinnu á sviði orkumála eru að hefjast í höfuðborginni Managua. Að sögn Gísla Pálssonar umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur ný stjórn Sandínista áhuga á því að hraða þróun og framkvæmdum á sviði jarðhitamála og fá íslensk fyrirtæki til samstarfs.

Lesa meira
 

Íslenskt sérfræðingateymi í sjávarútvegsmálum til Sri Lanka - 2.2.2007

Á næstu dögum heimsækir teymi þriggja sérfræðinga frá Sjávarútvegsskóla Sþ og Háskólanum á Akureyri umdæmisskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar á Sri Lanka. Tilgangur ferðarinnar er að kanna þörf fyrir námskeið í gerð verkefnisáætlana og verkefnisstjórnunar hjá sjávarútvegsráðuneyti landsins og stofnunum þess.

Lesa meira
 

Verið að reisa ellefu byggingar við löndunarstaði á Sri Lanka - 25.1.2007

Framkvæmdir eru hafnar á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands við ellefu byggingar á sex löndunarstöðum á vestur- og suðurströnd Sri Lanka. Um er að ræða þjónustubyggingar eins og fiskmarkaðshús, fjarskiptahús og salerni fyrir sjómenn og fiskverkendur sem nýta löndunarstaðina. Að sögn Árna Helgasonar umdæmisstjóra ÞSSÍ á Sri Lanka er ráðgert að byggingaframkvæmdum ljúki í maí á þessu ári. Lesa meira
 

Vilhjálmur Wiium tekur við starfi umdæmisstjóra ÞSSÍ í Namibíu - 9.1.2007

Vilhjálmur Wiium tók um áramótin við starfi umdæmisstjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Namibíu. Hann tekur við starfinu af Vilmundi Víði Sigurðssyni sem sneri heim í desember, ásamt Jóhönnu Þorvaldsdóttur eiginkonu sinni, eftir sex ára dvöl í Namibíu. Um næstu mánaðamót fer Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi til starfa í Namibíu sem verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar til tveggja ára. Síðastliðið haust skrifuðu fulltrúar ÞSSÍ og stjórnvalda í Namibíu undir nýjan samstarfssamning til ársins 2010. Lesa meira
 

Endurskoðun á lögum um Þróunarsamvinnustofnun Íslands - 8.1.2007

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að lög um Þróunarsamvinnustofnun Íslands nr. 43 frá 1981 verði endurskoðuð og kannað verði hvort þörf sé á breyttu skipulagi þróunarsamvinnu Íslands. Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að kostir og gallar núverandi lagaramma ÞSSÍ séu meðal álitaefna sem skoðuð verði, svo og fyrirkomulag þróunarsamvinnu Íslands, bæði tvíhliða og á fjölþjóðlegum grundvelli.

Lesa meira
 

Hannes Hauksson ráðinn fjármálastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands - 21.12.2006

Hannes Hauksson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands með aðsetur í höfuðstöðvum ÞSSÍ í Reykjavík. Lesa meira
 

Malaví fær fjórðung af þróunarfé ÞSSÍ - 20.12.2006

Þróunarsamvinnustofnun ætlar að verja um 280 milljónum íslenskra króna til þróunarverkefna í Malaví á næsta ári eða sem nemur um fjórðungi þess fjármagns sem þegar hefur verið samþykkt fyrir árið 2007. Í nýsamþykktri rekstraráætlun stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands er gert ráð fyrir að kostnaður við samþykkt verkefni nemi á næsta ári rúmum 1200 milljónum króna.

Lesa meira
 

Stefán Jón Hafstein ráðinn til starfa hjá Þróunarsamvinnustofnun í Namibíu - 13.12.2006

Stefán Jón Hafstein borgarfulltrúi hefur verið ráðinn verkefnisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Namibíu til tveggja ára. Hann mun óska eftir leyfi frá borgarstjórn þennan tíma og tekur við starfinu í byrjun nýs árs. Stefán Jón hefur áður starfað í Afríku en hann var sendifulltrúi Alþjóðasambands Rauða kross félaga og Rauða kross Íslands í Genf og Afríku nokkrum sinnum á árunum 1985 til 1988.

Lesa meira
 

Malembo skólinn formlega afhentur í Malaví - 13.12.2006

Fulltrúar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands afhentu yfirvöldum í Malaví formlega Malembo barnaskólinn við hátíðlega athöfn á dögunum. Um fimm mánuði tók að byggja skólann en í honum eru átta nýjar skólastofur, gerðar voru upp tvær aðrar, byggð stjórnunarbygging og bókasafn, sjö kennarahús, salernisaðstaða og brunnur. “Núna er þetta orðinn skóli þorpsins og mikilvægt að fólkið hugsi vel um hann og sjái um allt viðhald,” sagði höfðingi héraðsins við opnun skólans.

Lesa meira
 

Fræðsluverkefni fyrir frumkvöðla hafið í Úganda - 12.12.2006

Hafið er þriggja ára átaksverkefni í fræðslumálum fyrir frumkvöðla í Úganda en um er að ræða fyrsta verkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands sem lýtur að stuðningi við einkageirann. Að sögn Ágústu Gísladóttur umdæmisstjóra ÞSSÍ í Úganda er helsta markmið verkefnisins að bæta aðgengi frumkvöðla að gæðaþjálfun, einkum þeirra sem áforma að reka smá eða meðalstjór fyrirtæki.

Lesa meira
 

Samið um byggðaþróunarverkefni í Úganda til tíu ára - 20.11.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands hefur gengið frá samningum við úganska sveitarstjórnarmálaráðuneytið um byggðaþróunarverkefni í Kalangala-héraði í Úganda. Er þetta stærsta verkefni sem samið hefur verið um fyrir hönd ÞSSÍ, en framkvæmdatíminn er áætlaður 10 ár og ráðgert að kostnaðarhlutdeild ÞSSÍ í verkefninu á þeim tíma nemi samtals 6 milljónum bandaríkjadala, þ.e. tæplega 420 milljónum íslenskra króna. Lesa meira
 

Mósambík: Aðstoð við sveitir landsins aukin - 15.11.2006

“Þetta var afar athyglisverð ferð og það var einstaklega ánægjulegt að kynnast starfsemi og verkefnum Þróunarsamvinnustofnunar í Mósambík,” segir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sendiherra Íslands í Suður-Afríku en hún kynnti sér á dögunum starfsemi ÞSSÍ í Mósambík. Sigríður Dúna segir að ekki hafi síður verið fróðlegt að kynnast landi og þjóð og henni sé sérlega minnistæð ferð norður til Inhambane.

Lesa meira
 

Umdæmisstjórar ÞSSÍ á bókhaldsnámskeiði á Íslandi - 14.11.2006

Umdæmistjórar ÞSSÍ, sem eru yfirmenn stofnunarinnar í sex samstarfslöndum hennar, dveljast á næstu dögum á Íslandi og sækja námskeið í Oracle bókhaldskerfinu. Námskeiðið er skipulagt af SKÝRR, KPMG-endurskoðun og Fjársýslu ríkisins og sérstaklega sniðið að þörfum ÞSSÍ.

Lesa meira
 

Ráðist í umfangsmikið vatns- og hreinlætisverkefni í Malaví - 13.11.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands er að ráðast í umfangsmikið vatns- og hreinlætisverkefni í Malaví. Verkefnið verður unnið í samstarfi við þrjú ráðuneyti í Malaví og héraðsstjórnir á Monkey Bay svæðinu í suðurhluta landsins. Um er að ræða verkefni til fjögurra ára sem hefst fyrir áramót og lýkur í árslok 2010. Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um MA nám í þróunarfræðum að renna út - 7.11.2006

Um miðjan þennan mánuð, 15. nóvember, rennur út umsóknarfrestur um MA nám í þróunarfræðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Hægt er að sækja um diplómanám í þróunarfræðum fram yfir áramót en umsóknarfrestur er til 5. janúar 2007. Lesa meira
 

Lokið vel heppnuðu námskeiði á Sri Lanka um gæða- og öryggismál í fiskhöfnum - 31.10.2006

Nýlokið er vel heppnuðu fjögurra daga námskeiði í gæða- og öryggismálum í fiskhöfnum fyrir 35 hafnarstjóra á Sri Lanka. Hafrannsóknarstofnun Sri Lanka (NARA) og fiskimálaráðuneyti landsins stóðu að námskeiðinu en Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóðanna veittu tæknilega og fjárhagslega aðstoð við framkvæmdina. Námskeiðið verður endurtekið í nóvember.

Lesa meira
 

Ísland vekur áhuga námsmanna í Níkaragva - 30.10.2006

Nemendur við tækniháskólann UNICIT í Managua, höfðuborg Níkaragva, héldu á dögunum glæsilega kynningu á Íslandi á árlegri uppskeruhátíð skólans. Að sögn Hörpu Elínar Haraldsdóttur starfsnema hjá Þróunarsamvinnustofnun í sendiráði Íslands í Managua hafa einnig nemendur Sænska skólans í borginni heimsótt sendiráðið í því skyni að afla efnis fyrir Íslandskynningu meðal nemenda.

Lesa meira
 

Samráðsfundur Mósambík og Úganda um fiskgæðamál - 24.10.2006

Þessa dagana stendur yfir samráðsfundur á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um fiskgæðamál með fulltrúum frá Mósambík og Úganda, en fundurinn er haldinn í Maputo, höfuðborg Mósambík. Að sögn Franklíns Georgssonar verkefnisstjóra í fiskiverkefnum í Mósambík hefur Þróunarsamvinnustofnun um árabil verið í samstarfi við stjórnvöld í Mósambík og Úganda um verkefni sem lúta að fiskgæðamálum.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun byggir framhaldsskóla í Malaví - 3.10.2006

Framkvæmdir við fyrsta framhaldsskólann sem Þróunarsamvinnustofnun byggir í Malaví í samvinnu við heimamenn eru hafnar í grennd við fiskimannaþorpið Malambo. Skólinn á að þjóna um það bil fjórtán nærliggjandi þorpum. Stefnt er að því að skólinn verði fokheldur fyrir upphaf regntímans, um mánaðamótin nóvember og desember, en framkvæmdum á að ljúka um áramót Lesa meira
 

Málstofa um rannsóknir íslenskra háskólanema í Malaví - 27.9.2006

Rannsóknir íslenskra háskólanema sem unnar voru í Malaví verða kynntar og ræddar á málstofu sem fram fer í Þjóðminjasafninu á morgun, fimmtudag. Málstofan er haldin í tengslum við ráðstefnuna Heilbrigðisþjónusta í fátækum löndum sem fram fer í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskólans, á föstudag. Lesa meira
 

Aukin framlög íslenskra stjórnvalda til þróunarsamvinnu - 27.9.2006

Framlög íslenskra stjórnvalda til þróunarsamvinnu nær þrefaldast fram til ársins 2009 og aukast enn frekar árin á eftir, að því er fram kom í ræðu Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra á 61. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Utanríkisráðherra sagði að íslensk stjórnvöld hefðu það markmið eftir 2009 að ná því takmarki Sameinuðu þjóðanna að verja 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu til þróunarsamvinnu. Lesa meira
 

Ráðstefna um heilbrigðisþjónustu í fátækum löndum - 21.9.2006

Ráðstefna um heilbrigðisþjónustu í fátækum löndum verður haldin í Reykjavík föstudaginn 29. september í því skyni að styðja við vaxandi umræðu og áhuga hér á landi um þann vanda sem mörg fátæk ríki standa frammi fyrir í almennri heilbrigðisþjónustu. Ráðstefnan er haldin á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, læknadeild Háskóla Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Lesa meira
 

Framhald á samvinnu Þróunarsamvinnustofnunar og Rauða krossins í Mósambík - 20.9.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Rauði kross Íslands ætla að halda áfram samstarfi um verkefni á sviði heilbrigðismála í Mósambík. Skrifað var undir nýjan samstarfssamning í dag en verkefnin eru unnin í samstarfi við Rauða krossinn í Mósambík og mósambísk heilbrigðisyfirvöld. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun Íslands byggir nýjan skóla fyrir börn í Malaví - 18.9.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) er að ljúka framkvæmdum við nýjan grunnskóla í malavíska fiskimannaþorpinu Malembo. Á sama tíma og byggingaframkvæmdir hafa staðið yfir hefur stofnunin einnig styrkt menntunarátak á vegum menntamálayfirvalda í héraðinu.

Lesa meira
 

Þrír háskólanemar fá styrki frá Þróunarsamvinnustofnun - 13.9.2006

Þrír háskólanemar í meistara- og doktorsnámi hljóta námsstyrki frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands á þessu hausti vegna rannsóknarverkefna sem tengjast þróunarmálum. Styrkþegarnir eru Dagfinnur Sveinbjörnsson sem er í doktorsnámi við Harvard háskóla í Bandaríkjunum, Inga Dóra Pétursdóttir sem er í meistaranámi við félagsvísindadeild Háskóla Íslands og Jo Tore Berg sem einnig leggur stund á meistaranám við félagsvísindadeild HÍ. Lesa meira
 

Norrænn fundur fiskimála í þróunarsamvinnu - 7.9.2006

Þrettán fulltrúar opinberra þróunarsamvinnustofnana frá öllum Norðurlöndunum héldu tveggja daga samráðsfund í Reykjavík á dögunum um þróunarstarf í fiskimálum. Stefnur og straumar í fiskimálum á heimsvísu voru efst á baugi ásamt upplýsingamiðlun um núverandi og fyrirhuguð verkefni sem unnin eru af norrænum þróunarsamvinnustofnunum. Lesa meira
 

Erlendar skuldir Malaví felldar niður að stórum hluta - 5.9.2006

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn hafa ákveðið að fella niður um 90% af skuldum Malaví en það svarar til ríflega 200 milljarða íslenskra króna eða 3.1 milljarðs Bandaríkjadala. Malaví er helsta samstarfsland Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og eitt fátækasta ríki heims. Um 65% þjóðarinnar býr við sárafátækt. “Þetta er mjög mikilvægur áfangi fyrir Malaví,” segir Margrét Einarsdóttir umdæmisstjóri ÞSSÍ í Malaví. “Jákvæðar breytingar á stjórn efnahagsmála hafa orðið í tíð núverandi forseta, Dr. Bingu wa Mutharika, sem komst til valda 2004. Þær birtast meðal annars í baráttu stjórnvalda gegn spillingu og setningu laga um meðferð ríkisfjármála,” segir hún.

Lesa meira
 

Skáksérfræðingar á förum til Namibíu - 1.9.2006

Íslendingar hafa á síðustu árum stutt myndarlega við bakið á skáklífinu í Namibíu. Um er að ræða samvinnuverkefni milli namibískra stjórnvalda, Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, Skáksambands Íslands og Skákfélagsins Hróksins. Í byrjun næstu viku eru á förum frá Íslandi til Namibíu tveir skákmenn, stórmeistarinn Henrik Danielsen og skákmeistarinn Omar Salama, en þetta er fjórða ferð skáksérfræðinga frá Íslandi vegna þessa verkefnis.

Lesa meira
 

Vel heppnuð og fjölsótt ráðstefna í Namibíu - 31.8.2006

Ráðstefna Þróunarsamvinnustofnunar og Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Namibíu í síðustu viku um sjávarútvegsmál og fiskeldi þótti takast með afbrigðum vel. Fulltrúar alþjóðastofnana lýstu mikilli ánægju með ráðstefnuna og frumkvæði Íslendinga en á henni var fjallað um sjávarútvegsmál og fiskeldi í sunnanverði Afríku. Rúmlega níutíu manns sóttu ráðstefnuna, sem haldin var í Windhoek, höfuðborg Namibíu og fyrirlesarar komu frá Afríku, Íslandi, Noregi og ýmsum alþjóðastofnunum, m.a. Alþjóðabankanum og Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO. Lesa meira
 

Öflugir fulltrúar íslenskra heilbrigðismála til Malaví - 25.8.2006

Sigurður Guðmundsson landlæknir og Sigríður Snæbjörnsdóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eru á förum til Malaví á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Ráðgert er að þau hjónin starfi í Malaví í eitt ár og taki að sér verkefnisstjórn við stuðning ÞSSÍ við uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar á Monkey Bay svæðinu í suðurhluta landsins. Lesa meira
 

Nýr almannatengslafulltrúi hjá ÞSSÍ - 23.8.2006

Gunnar Salvarsson hefur tekið til starfa sem almannatengslafulltrúi hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands með aðsetur í höfuðstöðum ÞSSÍ í Reykjavík. Lesa meira
 

Samstarfssamningur Íslands og Namibíu um þróunarmál framlengdur til 2010 - 21.8.2006

Í dag undirritaði Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, f.h. ríkisstjórnar Íslands framlengingu á samningi Íslands og Namibíu um samstarf um þróunarmál. Fyrri samningur landanna, sem hefði runnið út í árslok 2007, var framlengdur um þrjú ár, þ.e. til ársloka 2010. Lesa meira
 

Fjölþjóðleg rástefna um sjávarútvegsmál og fiskeldi í Namibíu - 17.8.2006

Fjölþjóðleg ráðstefna um sjávarútvegsmál og fiskeldi í sunnanverðri Afríku verður haldin dagana 21.- 24. ágúst í Namibíu á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Forseti Namibíu, H.E. Hifikepunye Pohamba, setur ráðstefnuna á þriðjudag en Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra slítur henni á fimmtudag.

Lesa meira
 

Nýr verkefnastjóri fiskimála hjá ÞSSÍ í Reykjavík - 9.8.2006

Geir Oddsson, auðlindafræðingur, hefur hafið störf sem verkefnastjóri fiskimála hjá ÞSSÍ, með aðsetur í Reykjavík. Geir er með gráðu í líffræði frá Háskóla Íslands og gráður í fiskifræði og auðlindastjórnun frá University of Washington í Seattle, BNA. Geir hefur síðustu tíu ár unnið að fjölda verkefna á sviði umhverfis- og auðlindamála í þróunarlöndunum, fyrir m.a. ÞSSÍ, Alþjóðabankann, Sameinuðu þjóðirnar, einkafyrirtæki og frjáls félagasamtök. Geir kemur til ÞSSÍ frá Háskóla Íslands, þar sem hann hefur verið forstöðumaður Umhverfisstofnunar HÍ og síðan stofustjóri Auðlindastofu Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og þverfræðilegar rannsóknir og Umhverfisstjóri HÍ auk þess að sinna kennslu og umsjón nemenda á meistarastigi.

Lesa meira

 

Ferð sendinefndar frá aðalskrifstofu ÞSSÍ til Úganda og Malaví - 24.5.2006

Nýlokið er tveggja vikna vettvangsferð sendinefndar frá aðalskrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands til Malaví og Úganda. Sendifulltrúar að þessu sinni voru Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, og Sigfús Ólafsson, stjórnarfulltrúi og viðskiptafræðingur.

Lesa meira
 

Hafnarverkfræðingur hefur störf hjá ÞSSÍ á Sri Lanka - 23.5.2006

Í síðasta mánuði kom formleg beiðni frá stjórnvöldum á Sri Lanka um að ÞSSÍ hefði umsjón með uppbyggingu á tíu löndunarstöðum sem urðu illa úti í hamfaraflóðunum sem gengu yfir eyna 2004. Nýlega var ráðinn hafnarverkfræðingur til starfa hjá stofnuninni við undirbúning og framkvæmd verkefna stofnunarinnar á þessu sviði. Lesa meira
 

ÞSSÍ styrkir nýbyggingu á heimili fyrir fatlaða og langveika í Mósambik. - 17.5.2006

Nýlokið er frágangi á nýrri byggingu við Centro Mutanyana í höfuðborginni Mapútó í Mósambik, en ÞSSÍ hefur styrkt byggingu húsnæðisins til hálfs. Centro Mutanyana er heimili fyrir munaðarlaus börn, fatlaða og langveika í höfuðborginni Mapútó og var stofnað 1991 af hollenskum presti sem komst að því í vitjunum sínum á sjúkrahús í borginni að sumir sjúklinganna höfðu verið yfirgefnir af ættingjum sínum og áttu hvergi höfði sínu að halla. Lesa meira
 

ÞSSÍ styrkir félagsmálayfirvöld í Úganda - 15.5.2006

Umdæmisstjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Úganda, Ágústa Gísladóttir, skrifaði á dögunum fyrir hönd stofnunarinnar undir samning við þarlend félagsmálayfirvöld um að ÞSSÍ standi straum af kostnaði vegna uppsetningar á upplýsingakerfi fyrir FALP (Functional Adult Literacy Programme) – fullorðinsfræðsluverkefni í Úganda. Verkefnissamningurinn gildir til loka þessa árs þegar gert er ráð fyrir að fest hafi verið kaup á öllum nauðsynlegum búnaði og uppsetningu á honum lokið. Lesa meira
 

ÞSSÍ gerir samning við Sýni um þróun vottorðakerfis fyrir Fiskeftirlitið í Mósambik - 11.5.2006

ÞSSÍ gerði á dögunum samning við Sýni, skoðunarstofu ehf. um að fyrirtækið þrói og setji upp fyrir Fiskeftirlitið í Mósambik, hugbúnað sem heldur utan um niðurstöður skoðana (vottorðakerfi). Með innleiðingu hugbúnaðarins er verið að tölvuvæða gagnaúrvinnslu fiskeftirlitsins.

Lesa meira
 

ÞSSÍ auglýsir eftir að ráða byggingaverkfræðing eða -tæknifræðing til starfa í Malaví - 4.5.2006

Meginstarfsábyrgð er að hafa með höndum umsjón og eftirlit með framkvæmdum í mannvirkjagerð á vegum stofnunarinnar í Malaví. Lesa meira
 

Fullorðinsfræðsla í Kalangala skilar góðum árangri - 3.5.2006

Síðan 2002 hefur ÞSSÍ í samvinnu við ráðuneyti félags- og jafnréttismála í Úganda stutt við fullorðinsfræðslu í Kalangala-héraði í Úganda með góðum árangri. Þátttakendum í námskeiðum hefur farið stöðugt fjölgandi milli ára en aldrei hafa útskrifast jafnmargir og nú á dögunum þegar samtals 822 voru útskrifaðir. Til stendur að í júli á þessu ári gangi í gildi nýr samningur milli ÞSSÍ og héraðsyfirvalda í Kalangala. Gera drög að þeim samningi ráð fyrir að umfang starfsemi ÞSSÍ á svæðinu aukist til muna. Lesa meira
 

Vaxandi hagvöxtur í þróunarlöndum - 28.4.2006

Á tímabilinu 2000-2004 var meðalhagvöxtur í löndum sem skilgreind eru sem þróunarlönd, 4,8 prósent, meðan meðalhagvöxtur hátekjuþjóða var á sama tímabili í 2,0 prósentum. Vaxandi umsvif í hagkerfum Austur- og Suður-Asíu síðustu ár eiga stærstan þátt í þessu háa meðaltali en Afríka sunnan Sahara, sem í þessari tölfræði hefur oftast rekið lestina, sýndi hagvöxt upp á 4,8 prósent árið 2004 sem var 0,7 prósentustigum yfir heimsmeðaltali þess árs.

Lesa meira
 

ÞSSÍ auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms - 26.4.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar. Að þessu sinni verða veittir tveir styrkir til doktorsnáms og tveir til meistaranáms. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands

 

Malavískur kortagerðamaður í læri hjá íslensku landhelgisgæslunni - 25.4.2006

Mr. Gumbi Reuben Tendai Gumbi, tæknifræðingur og kortagerðamaður hjá Sjómælingastofnun Malavís er staddur á Íslandi þessa dagana þar sem hann mun sækja námskeið í kortagerð hjá Landhelgisgæslu Íslands. Gumbi kom til landsins á sunnudag og mun dvelja á landinu til 7. maí. Heimsókn Mr. Gumbis til landsins tengist samstarfsverkefni ÞSSÍ og ríkisstjórnar Malavís um kortlagningu Malavívatns. Lesa meira
 

Alþjóðabankinn kynnir nýja áætlun gegn spillingu - 19.4.2006

Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, kynnti nýja áætlun um baráttu bankans gegn spillingu í ræðu sem hann hélt í Jakarta í Indónesíu á dögunum. Wolfowitz sagði að Alþjóðabankinn hyggðist nota öll verkfæri sem hann hefði til að grynnka á spillingu í löndum sem bankinn veitir aðstoð Lesa meira
 

Kvennadagurinn í Mósambik haldinn hátíðlegur í dag - 7.4.2006

Í dag 7. apríl er kvennadagurinn í Mósambik. Dagurinn er tileinkaður Josina Machel sem var ein af frelsishetjum Mósambik. Hún flúði landið ung að árum og gekk til liðs við Frelimo til að verja kröftum sínum í báráttuna fyrir sjálfstæði Mósambik Lesa meira
 

Úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Mósambik - 7.4.2006

Nýlega var á ferðinni í Mósambik sendinefnd frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í því skyni að meta árangur mósambískra stjórnvalda í baráttunni gegn fátækt.

Lesa meira
 

Áætlun um uppbyggingu sjávarútvegs í Sri Lanka hleypt af stokkunum - 5.4.2006

Frá því flóðbylgjan skall á Sri Lanka í desember 2004 hefur sjávarútvegsráðuneyti haft frumkvæði að gerð heildaráætlunar um uppbyggingu í sjávarútvegsgeiranum. Áætlunin er unnin með tæknilegri aðstoð frá FAO og fjárhagslegum stuðningi frá hinum ýmsu alþjóðlegum þróunarstofnunum. Nú, 14 mánuðum síðar, er því starfi lokið og var áætluninni formlega hleypt af stokkunum þann 4. apríl 2006 í Colombo Lesa meira
 

Nám í þróunarfræðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands - 3.4.2006

Síðan haustið 2005 býður félagsvísindadeild Háskóla Íslands, með stuðningi frá Þróunarsamvinnustofnun Íslands, uppá MA-nám og diplómanám í þróunarfræðum. MA-nám í þróunarfræðum (60e) er ætlað að veita nemendum fræðilega, hagnýta og aðferðafræðilega þekkingu til að takast á við viðfangsefni á sviði þróunarmála

Lesa meira
 

Heimsókn sendiherra til Úganda - 3.4.2006

Benedikt Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Úganda með aðsetur í Pretoríu í Suður-Afríku fór nýverið í vikulanga heimsókn til Úganda þar sem hann átti meðal annars fundi með fulltrúum stjórnvalda og fulltrúum stofnana Sameinuðu þjóðanna. Benedikt notaði jafnframt tækifærið og kynnti sér starfsemi ÞSSÍ í Kalangala-héraði Lesa meira
 

Stuðningur ÞSSÍ við framhaldsskóla í Monkey Bay - 31.3.2006

Á árinu 2005 hóf ÞSSÍ í fyrsta sinn stuðning við framhaldsskóla í Malaví, en hingað til hefur stofnunin einbeitt sér að uppbyggingu grunnskóla í landinu. Skólinn heitir Community Day Secondary School (CDSS) og var byggður árið 1991 af þorpsbúunum sjálfum, en hefur verið rekinn af malavíska ríkinu. Í skólanum eru um 200 nemendur og eykst fjöldinn frá ári til árs. Lesa meira
 

Hafrannsóknarstofnun Sri Lanka og ÞSSÍ gera samstarfssamning á sviði gæðamála í sjávarútvegi - 30.3.2006

Þann 1. mars síðastliðinn undirrituðu Yoshan Saddasena forstjóri Hafrannsóknarstofnunar Sri Lanka (NARA) og Árni Helgason, umdæmisstjóri ICEIDA á Sri Lanka framkvæmdasamning um tvö ný samstarfsverkefni á sviði fiskigæðamála í landinu Lesa meira
 

Úttekt á heilsugæslu við Monkey Bay í Malaví - 30.3.2006

Sigurður Ragnarsson og Eyþór Jónsson læknanemar við Háskóla Íslands skiluðu í lok síðasta árs niðurstöðum rannsóknarverkefna sinna sem þeir unnu í heilbrigðisumdæmi Monkey Bay í Malaví. Þróunarsamvinnustofnun styður við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á svæðinu og styrkir þ.á m. árlega rannsóknarverkefni læknanema. Lokaskýrslur Sigurðar og Eyþórs á pdf-sniði:

The Implementation of Integrated Childhood Illness in the Monkey Bay Health Zone in Malawi

Maternity Care for Women who Deliver at the Monkey Bay Community Hospital

  

 

ÞSSÍ auglýsir starfsþjálfun - 27.3.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) auglýsir eftir ungu háskólafólki, sem hefur áhuga á fimm mánaða starfsþjálfun í tengslum við þróunaraðstoð í samstarfslöndum stofnunarinnar. Lesa meira
 

Gunnar Haraldsson fer til Nikaragúa - 21.3.2006

Gunnar Haraldsson, verkefnisstjóri ÞSSÍ í Reykjavík, hefur nú fært sig um set um stundarsakir hjá stofnuninni og mun gegna stöðu umdæmisstjóra í Nikaragúa næstu fjórar vikurnar í fjarveru Gísla Pálssonar sem er í leyfi.
 

Námsstyrkir Norrænu Afríkustofnunarinnar - 21.3.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands vill vekja athygli á námsstyrkjum sem Norræna Afríkustofnunin (Nordiska Afrikainstitutet) í Uppsölum veitir ár hvert. Annars vegar er um að ræða styrk fyrir Norræna fræðimenn og hins vegar fyrir nemendur eða blaðamenn.

Lesa meira
 

Ómarkviss uppbygging sjávarútvegs í Sri Lanka - 20.3.2006

Rúmt ár eru nú liðið frá því að flóðbylgjan skall á strendur við Indlandshaf og svo virðist sem enduruppbygging á sviði sjávarútvegs í Sri Lanka hafi farið fyrir ofan garð og neðan, ef marka má bréf sem sjávarútvegsráðuneyti Sri Lanka sendi hjálparsamtökum og aðilum í þróunarsamfélaginu á dögunum Lesa meira
 

Góð uppskera í Malaví - 15.3.2006

Regntímabilið í Malaví er nú senn á enda og hefur uppskera ekki litið jafn vel út í 10 ár. Rigningar í Malaví hafa verið frekar stöðugar þetta tímabilið en síðustu ár hafa löng þurrkatímabil komið inn í mið regntímabil og eyðilagt uppskeru. Lesa meira
 

Nýr starfsmaður ÞSSÍ í Rvk. - 14.3.2006

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir hefur tekið til starfa sem móttökuritari á skrifstofu ÞSSÍ í Rvk. Þóra er ráðin til afleysinga í fjarveru Lilju Jónsdóttur sem er í leyfi.

Lesa meira
 

Poya-dagur á Sri Lanka - 14.3.2006

Í dag er fullt tungl og því almennur frídagur (poya-dagur) á Sri Lanka. Fullt tungl er þar eins og annars staðar á jörðinni 12 sinnum á ári og er þessi hefð, síðan í apríl á síðasta ári, 2549 ára gömul. Lesa meira
 

STARF HJÚKRUNARFRÆÐINGS/LJÓSMÓÐUR - 13.3.2006

Laust er til umsóknar starf sérfræðings/ráðgjafa við uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á svæðissjúkrahúsi í Monkey Bay heilbrigðisumdæmi í Malaví.

Lesa meira
 

Fullorðinsfræðsla í Úganda - 2.3.2006

Frá því í apríl í fyrra hefur ÞSSÍ stutt við framkvæmd á hagnýtri fullorðinsfræðslu á eyjum Mukono héraðs í Viktoríuvatni í Úganda. Verkefnið hefur gengið vonum framar...

Lesa meira
 

ÞSSÍ styrkir SPES-barnahjálp - 28.2.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og SPES-barnahjálp hafa gert með sér samkomulag um að ÞSSÍ styrki byggingu nýs húsnæðis í barnaþorpi samtakanna í Lomé í Tógó. Lesa meira
 

Museveni áfram forseti - 27.2.2006

Þegar 98% atkvæða höfðu verið talin í forsetakosningum í Úganda á laugardagsmorgun lýsti kosninganefndin yfir sigri sitjandi forseta síðustu 20 ára, Yoweri Museveni. Museveni hafði hlotið rúm 59% atkvæða en helsti keppinautur hans, dr. Kizza Besigye, aðeins rúm 37%.
 

Næturævintýri í Mósambik – Jarðskjálfti aðfaranótt 23. febrúar 2006. - 24.2.2006

Marta Einarsdóttir, verkefnisstjóri félagslegra verkefna sendi okkur eftirfarandi pistil um jarðskjálftann sem reið yfir Mósambik aðfaranótt 23. febrúar sl.:

,,Ég var rétt skriðin upp í rúm um eittleytið þegar rúmið byrjaði að hristast. Fyrst hélt ég að ég væri orðin ímyndunarveik en svo hugsaði ég með mér að þetta hlyti að vera jarðskjálfti, þó aldrei hefði ég heyrt um slíkt fyrirbæri í Mósambík".

Lesa meira
 

Harður jarðskjálfti í Mósambik - 23.2.2006

Jarðskjálfti upp á 7,5 á Richter skók Mósambik í gærkvöld og varð vart í nágrannalöndum. Vitað er til að tveir hafi látið lífið af völdum skjálftans og 15 særst lítillega. Ekki er vitað til að miklar skemmdir hafi orðið á mannvirkjum en yfirvöld bíða fregna frá afskekktari svæðum.

Lesa meira
 

Þróunarsamvinna í fiskimálum - 22.2.2006

Út er komið rit 32. tölublað tímaritsins Þróunarmál og er þema blaðsins að þessu sinni, "þróunarsamvinna í fiskimálum". Lesa meira
 

Nýr starfsmaður í Mósambik - 22.2.2006

Jóhann Þorsteinsson hefur verið ráðinn sem ráðgjafi við rannsóknarstofur fiskigæðaeftirlits í Mósambik. Jóhann hefur dvalið og starfað lengi í Mósambik, undanfarin 5 ár sem gæðaeftirlitsstjóri fyrirtækis í einkageiranum og þar áður, frá 1995-98 sem verkefnisstjóri í uppbyggingu gæðaeftirlitskerfis sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambik. 

Lesa meira
 

Kosningar í Úganda - 22.2.2006

Kosningar til forseta og þings eru á morgun 23. febrúar í Úganda. Alls bjóða fimm flokkar fram auk ,,Hreyfingar” (The National Resistance Movement) Yoweris Museveni sem hefur setið á valdastóli í Úganda síðan 1986. Eru þetta fyrstu fjölflokkakosningar í Úganda síðan Museveni og Hreyfingin komst til valda.

Lesa meira

 

Stuðningur við heyrnarskerta í Namibíu - 22.2.2006

Stjórnvöld í Namibíu hafa í þróunaráætlun sinni (Vision 2030) sem gefin var út 2004 sett fram markmið um að bæta þjónustu við fatlaða í landinu. Samkvæmt manntali frá 2001 eru um 4,7% íbúa landsins fatlaðir og þar af 21,4% heyrnarskertir eða heyrnarlausir. Fatlaðir mæta oft miklum fordómum sem hefur í för með sér mismunum og samfélagslega einangrun. Fötluð börn sækja oft ekki skóla og fáir kennarar eru þjálfaðir til að aðstoða og kenna fötluðum börnum.

Lesa meira
 

Viðtal við Mariu Luiz - 20.2.2006

Blaðamaður hitti Mariu Luiz Fernandes í fundarsal höfuðstöðva ÞSSÍ í Reykjavík á mánudagsmorgni, nokkrum klukkutímum áður en hún hélt fyrirlestur um verkefni sitt við Háskóla Íslands og spjallaði við hana um dvölina á Íslandi, námið og það ábyrgðarmikla og mikilvæga starf sem bíður hennar í heimalandinu. Lesa meira
 

Rigningar stöðugar í Mósambik og nágrannalöndum - 13.2.2006

Regn hefur fallið jafnt og þétt í Mósambik og nágrannalöndum þess það sem af er febrúar. Þótt vatnsborð í stærstu ám í Mósambik sé enn yfir hættumörkum hefur það þó heldur rénað víðast hvar í landinu.

Lesa meira
 

Maria Luiz Fernandes frá Mósambik ver MA-ritgerð sína í matvælafræðum við HÍ - 9.2.2006

Maria Luiz Fernandez, dýralæknir og yfirmaður rannsóknarstofu fiskigæðaeftirlits í Mósambik varði MA-ritgerð sína í matvælaörverufræði við Háskóla Íslands á mánudaginn sl. Lesa meira
 

Nýr starfsmaður ÞSSÍ í Sri Lanka - 7.2.2006

Ingólfur Arnarson hefur hafið störf sem verkefnisstjóri sjávarútvegsverkefna ÞSSÍ í Sri Lanka. Ingólfur er doktor í sjávarútvegsfræðum frá háskólanum í Tromsö Lesa meira
 

Flóð í Mósambik - 31.1.2006

Undanfarnar vikur hefur rignt mikið í Mósambik svo ár hafa flætt yfir bakka sína á afmörkuðum svæðum. Stjórnvöld í Mósambik og alþjóðlegar hjálparstofnanir hafa unnið samkvæmt neyðaráætlun síðan í desember og hræðast að hamfarirnar frá því árið 2000 endurtaki sig, þegar um 700 manns létust og hundruðir þúsunda neyddust til að flýja heimili sín.  Lesa meira
 

Íslenskur ljósmóðurnemi í Malaví - 30.1.2006

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands gerðu á dögunum með sér samning um námsverkefni í heilsugæslu í Malaví. Eva Laufey Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðurnemi er nú við rannsóknarstörf í Monkey Bay í Malaví og er fyrsti ljósmóðurneminn sem heldur utan til rannsóknarvinnu.

Lesa meira
 

Læknanemar við HÍ til rannsóknarvinnu í Malaví - 26.1.2006

Samningur milli ÞSSÍ, Háskóla Íslands og læknadeildar Háskóla Íslands hefur verið undirritaður um að tveir læknanemar á þriðja ári fari til Malaví næsta vor að vinna rannsóknarverkefni í tengslum við nám sitt. Þetta er í þriðja sinn á fjórum árum sem ÞSSÍ styrkir íslenska nema við læknisfræðideild Háskóla Íslands til rannsókna við sjúkrahúsið í Monkey Bay í Malaví. Lesa meira
 

Nýr verkefnisfulltrúi hefur störf við fullorðinsfræðsluverkefni ÞSSÍ og Malavíska ríkisins. - 26.1.2006

Nýr verkefnisfulltrúi hefur verið ráðinn til starfa við fullorðinsfræðsluverkefni ÞSSÍ og malavíska ríkisins í Malaví. Í auglýsingu var farið fram á að umsækjendur hefðu sér til ágætis a.m.k. B.A./B.Sc. próf á sviðum sem tengjast starfinu, 3 ára starfsreynslu af sambærilegu starfi sem og góða enskukunnáttu. Mikill áhugi var á starfinu og sóttu rúmlega 90 manns um, allt mjög hæfir einstaklingar.

Lesa meira
 

Ársskýrsla ÞSSÍ 2004 komin út - 11.1.2006

Ársskýrsla Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2004 er komin út. Framkvæmdastjóri ÞSSÍ, Sighvatur Björgvinsson segir í inngangsorðum árið hafa verið ánægjulegt fyrir stofnunina í marga staði.

Lesa meira

 

Starfsmannabreytingar hjá ÞSSÍ í Reykjavík - 10.1.2006

Elín Rósa Sigurðardóttir hefur fært sig um set hjá ÞSSÍ. Hún er snúin heim frá Mósambik þar sem hún hefur starfað sem umdæmisstjóri stofnunarinnar síðastliðin fimm ár. Elín hefur nú tekið að sér að sinna og stýra upplýsinga- og fræðslumálum ÞSSÍ frá höfuðstöðvunum í Reykjavík.
 

Innlendum starfsmönnum fjölgar í samstarfslöndunum - 3.1.2006

ÞSSÍ hefur markvisst unnið að því að fjölga skammtímaráðgjöfum og reyna eftir fremsta megni að ráða innlenda sérfræðinga séu þeir tiltækir í samstarfslöndunum. Lesa meira
 

Gæðaeftirlit með fiskafurðum í Mósambik styrkt - 3.1.2006

Nú rétt fyrir jól lauk endurbyggingu húsnæðis sem ætlað er að hýsa starfsemi gæðavottunar og gæðaeftirlits á fiskafurðum í Mósambik. Stofnunin, sem hingað til hefur hefur starfað undir sjávarútvegsráðuneytinu þar í landi, starfar sem sjálfstæð stofnun frá og með áramótum.

Lesa meira

 

Nýr starfsmaður ÞSSÍ á Íslandi - 22.12.2005

Reynir Hjálmarsson ráðinn sem fulltrúi almannatengsla ÞSSÍ fram á vor Lesa meira
 

Nýr starfsmaður ÞSSÍ í Mósambik - 22.12.2005

Jóhann Þorsteinsson lífefnafræðingur ráðinn í stöðu matvælafræðings í Mósambik Lesa meira
 

Íslenskir grunnskólar til hjálpar nauðstöddum í Malaví - 21.12.2005

Nemendur Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og Grundaskóla á Akranesi leggja kollegum sínum lið í Malaví Lesa meira
 

Fréttir frá Sri Lanka - 13.12.2005

Nýr forseti á Sri Lanka stefnir að uppbyggingu í fiskigeiranum. Lesa meira
 

Starfsmannabreytingar í Mósambik - 9.12.2005

Nýr umdæmisstjóri og tveir nýir verkefnisstjórar í Mósambik. Lesa meira
 

Sendiherra Íslands afhendir malavískum yfirvöldum St. Augustine 3 barnaskólann - 9.12.2005

Formleg afhending á St. Augustine 3 barnaskólanum fór fram þann 30.nóvember síðastliðinn. Lesa meira
 

ÞSSÍ auglýsir laust starf sérfræðings í sjávarútvegsmálum á Sri Lanka - 17.11.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands er að hefja starfsemi á Sri Lanka. Lesa meira
 

Stuðningur ÞSSÍ við byggingu grunnskóla í Malaví - 15.11.2005

ÞSSÍ hóf samstarf við menntamálayfirvöld í Malaví árið 1995. Lesa meira
 

Starfsmannabreytingar í Namibíu - 14.11.2005

Nýr umdæmisstjóri og nýr verkefnisstjóri í Namibíu. Lesa meira
 

ÞSSÍ auglýsir laust starf matvælafræðings í Mósambik - 14.11.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands leitar eftir háskólamenntuðum sérfræðingi til starfa við rannsóknarstofur sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík. Lesa meira
 

Samstarfssamningur Kennaraháskóla Íslands og Þróunarsamvinnustofnunar - 4.11.2005

Í dag, 4. nóvember 2005, var undirritaður samstarfssamningur Kennaraháskóla Íslands og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands um markvissa þátttöku Kennaraháskólans í verkefnum á sviði þróunaraðstoðar í menntamálum.

Lesa meira
 

Nýir starfsmenn í Mósambik - 1.11.2005

Tveir starfsmenn hafa hafið störf á þessu ári hjá umdæmisskrifstofu ÞSSÍ í Mósambik. Lesa meira
 

Malaví, þjóð á barmi hungursneyðar - 28.10.2005

Enn eitt árið hafa margar þjóðir í suðurhluta Afríku orðið fyrir barðinu á uppskerubresti og þurrkum. Lesa meira
 

Nýr starfsmaður á skrifstofu ÞSSÍ í Rvk. - 17.10.2005

Gunnar Haraldsson hefur verið ráðinn sem verkefnisstjóri á skrifstofu ÞSSÍ í Rvk. Lesa meira
 

Laust er til umsóknar starf verkefnisstjóra í Namibíu - 17.10.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir laust til umsóknar starf verkefnisstjóra í Namibíu. Lesa meira
 

Hagsmunaaðilafundur vegna nýs verkefnisáfanga í fullorðinsfræðsluverkefni ÞSSÍ í Malaví - 13.10.2005

Árið 2001 hóf Þróunarsamvinnustofnun stuðning við fullorðinsfræðsluverkefni malavískra stjórnvalda. Lesa meira
 

Tveimur rannsóknarstyrkjum úthlutað - 29.8.2005

Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar hefur veitt tvo styrki til rannsókna, annan vegna náms á meistarastigi og hinn vegna doktorsverkefnis. Styrkina hlutu Gréta Björk Guðmundsdóttir og Pétur Waldorff. Lesa meira
 

Nýr stjórnarformaður - 25.8.2005

Í dag skipaði utanríkisráðherra Sigurð Helgason, fyrrverandi forstjóra Icelandair, formann stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) til fjögurra ára. Sigurður tekur við af Birni Inga Hrafnssyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra, sem að eigin ósk hefur látið af því starfi.
 

Afríku ber af leið í baráttunni við hungur meðal barna - 22.8.2005

Vannærðum börnum í Afríku mun að óbreyttu fjölga um 3,3 milljónir til ársins 2025, þvert á þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna, samkvæmt nýrri skýrslu International Food Policy Research Institute (IFPRI).

Lesa meira
 

Bandaríkin auka þróunarsamvinnu við Namibíu - 19.8.2005

Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja fram 30 milljónir bandaríkjadala (jafnvirði tæplega tveggja milljarða króna) til þróunarsamvinnu við Namibíu næstu fimm árin til viðbótar því sem áður var ákveðið. Fjármununum verður varið til þriggja samstarfsverkefna; eflingar grunnmenntunar, áframhaldandi uppbyggingar auðlindastýringar á landsbyggðinni og styrkingar lýðræðis í landinu. Lesa meira
 

Sendinefnd frá Nikaragúa kynnir sér jarðhitamál - 18.8.2005

Þrír fulltrúar stjórnvalda í Nikaragúa eru væntanlegir til landsins á sunnudag til viðræðna við íslensk stjórnvöld og sérfræðinga á sviði jarðhitamála. Tilgangur heimsóknarinnar er að kynna þeim fyrirkomulag jarðhitamála á Íslandi og ljúka undirbúningi vegna fyrirhugaðrar samvinnu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og stjórnvalda í Nikaragúa á þessu sviði.

Lesa meira
 

Starfsmannabreytingar - 12.8.2005

Þórdís Sigurðardóttir hefur tekið við starfi skrifstofustjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) á nýjan leik. Þórdís hefur verið í leyfi frá störfum síðast liðin 5 ár, en á þeim tíma gengdi hún starfi umdæmisstjóra stofnunarinnar í Malaví.

Lesa meira
 

Nýr fjölmiðlafulltrúi ráðinn - 7.7.2005

Styrmir Guðlaugsson hefur verið ráðinn fjölmiðla- og kynningarfulltrúi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Hann hefur áralanga og víðtæka reynslu af vinnu á fjölmiðlum og gengt ýmsum stjórnunarstörfum á ferli sínum.

Lesa meira
 

Átök milli lögreglu og mótmælenda fyrir fund leiðtoga G8 ríkjanna - 6.7.2005

Skoska lögreglan lenti í útistöðum við hundruð mótmælenda í bænum Gleneagles í morgun þar sem leiðtogar G8 ríkjanna munu funda um vanda þróunarlanda, einkum í Afríku sunnanverðri. Rætt verður um niðurfellingu skulda fátækustu ríkja heims, frekari aðstoð við ríki í Afríku og leiðir til að bregðast við loftslagsbreytingum. Mótmælastaða hefur verið í bænum í marga daga.

Lesa meira

 

Lykilmaður í jarðhitamálum í Úganda lýkur meistaranámi á Íslandi - 5.7.2005

Godfrey Bahati frá Úganda flytur fyrirlestur um lokaverkefni sitt til meistaraprófs í umhverfisfræðum á morgun, miðvikudaginn 6. júlí, kl. 16:00 í sal 130 í Öskju. Bahati er nemandi Jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og er lykilmaður í jarðhitarannsóknum í heimalandi sínu. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur kostar námsdvöl hans að hluta með Jarðhitaskólanum, en styrkurinn er liður í samstarfsverkefni við Úganda um jarðhitamál. Nýting jarðvarma til raforkuframleiðslu er talinn mjög álitlegur kostur í Úganda, en mikil þörf er fyrir hreina orku í landinu, einkum til sveita.

Lesa meira

 

ÞSSÍ gefur bókasafn sitt - 28.6.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur gefið Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni safn fræðirita um þróunarmál og hefur samningur þess efnis verið undirritaður. Einnig leggur ÞSSÍ safninu til fjárveitingu sem nemur 1 milljón króna árlega í 4 ár, sem ætluð er sem stuðningur við kaup fræðibóka á þróunarsviði og til aðstöðusköpunar.

Lesa meira

 

Samningur um þróunarsamvinnu við Sri Lanka undirritaður - 23.6.2005

Tvíhliða samningur um þróunarsamvinnu Íslands við Sri Lanka var undirritaður í Colombo, höfuðborg landsins í dag. Samningurinn er gerður til fimm ára og nemur framlag Íslands til þróunarstarfs í landinu á þessu ári 75 milljónum króna. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) mun sjá um framkvæmd verkefna í samstarfi við stjórnvöld á Sri Lanka. Er þetta í fyrsta sinn sem ÞSSÍ sinnir þróunarstarfi utan Afríku, þar sem stofnunin er í samstarfi við fjögur ríki.

Lesa meira

 

Auglýst eftir verkefnisstjóra í Mósambík - 15.6.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) auglýsir lausa til umsóknar stöðu verkefnisstjóra í Mósambík. Starf verkefnisstjórans felst í því að stýra félagslegum verkefnum ÞSSÍ í Mósambík, sem unnin eru í samstarfi við Kvenna- og félagsmálaráðuneyti landsins og frjáls félagasamtök, sem ÞSSÍ og ráðuneytið starfa með. Frjálsu félagasamtökin fást fyrst og fremst við verkefni, sem snúa að konum og börnum. Þá felst einnig í starfinu ráðgjöf við ráðuneytið og stuðningur við innri uppbyggingu þess. Lesa meira
 

Niðurfellingu skulda fagnað - 13.6.2005

Leiðtogar þróunarríkja og forystumenn hjálpar-og mannúðarsamtaka hafa fagnað ákvörðun G8 hópsins helstu iðnríkja heims um niðurfellingu skulda 18 ríkja. Hins vegar er það mat margra að ákvörðunin hefði átt að koma fyrr og að fleiri lönd hefðu átt að njóta samkomulagsins, auk þess sem bent er á að enn ríki ósamkomulag um hvert stefna skuli í framhaldinu.

Lesa meira

 

Fullorðinsfræðslan árangursrík í baráttunni gegn fátækt - 9.6.2005

Stjórnvöld í Mósambík hafa hleypt af stokkunum viðamiklu fullorðinsfræðsluverkefni sem áætlað er að nái til 20 þúsund kvenna og karla í þremur héruðum landsins. Allt að helmingur fullorðinna í Mósambík er ólæs, en talið er að góðum árangri megi ná í baráttunni gegn fátækt í þróunarlöndunum með því að bæta menntun almennings. Fullorðinsfræðslunni verður útvarpað, en einnig eru áform um að hefja sjónvarpsútsendingar í tengslum við verkefnið. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur sinnt fullorðinsfræðslu í samstarfslöndum sínum með afar góðum árangri.

Lesa meira

 

Sameinuðu þjóðirnar vilja átak til að hefta útbreiðslu alnæmis - 3.6.2005

Alnæmisfaraldurinn er í sókn sem aldrei fyrr og áætlanir um að hefta útbreiðslu sjúkdómsins hafa ekki gengið eftir, sagði Kofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á ráðstefnu í New York í gær. Í ræðu sinni sagðist hann telja að baráttan við alnæmi væri ein mesta áskorunin sem mannkynið stæði frammi fyrir á næstu áratugum, árangur á því sviði væri ein meginforsenda fyrir því að milljónir manna gætu lifað mannsæmandi lífi í þróunarríkjunum.

Lesa meira

 

Komu frestað - 2.6.2005

Komu fulltrúa stjórnvalda Nikaragúa til Íslands hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Vandkvæði ytra urðu þess valdandi að gestirnir þurftu að fresta för sinni.

Lesa meira

 

Þróunarsamstarf á sviði jarðhitamála í Nikaragúa - 31.5.2005

Undirbúningur að samstarfi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og Nikaragúa á sviði jarðhitamála er nú á lokastigi. Þrír fulltrúar stjórnvalda í Nikaragúa eru væntanlegir til landsins á morgun og fimmtudag til viðræðna við sérfræðinga iðnaðar- og viðskiptaráðuneytisins og íslenskra orkustofnana. Tilgangur heimsóknarinnar er að kynna fyrirkomulag jarðhitamála á Íslandi og ákvarða samstarfsgrundvöll landanna.

Lesa meira

 

Hafa margt lært af skipulagi félagsmála á Íslandi - 26.5.2005

Skipulag félagsmála hérlendis gæti um margt orðið fyrirmynd í því starfi sem fram fer á því sviði í Mósambík, segir António Sansaou Buque, deildarstjóri kvennamáladeildar ráðuneytisins félags-og jafnréttismála þar í landi. Hann segir hins vegar að tillit þurfi að taka til þess hve um ólík menningarsamfélög er að ræða og því sé aðlögun nauðsynleg á ýmsum sviðum. Mósambísk sendinefnd hefur verið stödd hér á landi síðustu daga í boði Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) til að kynna sér uppbyggingu í félagsmálum.
Lesa meira
 

Sendinefnd frá Mósambík kynnir sér íslenskar aðstæður - 23.5.2005

Afríkuríkið Mósambík er meðal fátækustu þjóða heims, en þaðan er nú sex manna sendinefnd komin til Íslands í boði Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) til að kynna sér uppbyggingu annars vegar í félagsmálum og hins vegar í sjávarútvegsmálum, einkanlega gæðaeftirliti. Heimsókninni er ætlað að hafa náms- og upplýsingagildi og er liður í þróunarsamstarfi Íslands og Mósambík.

Lesa meira

 

Viðamiklu fullorðinsfræðsluverkefni hleypt af stokkunum í Úganda - 19.5.2005

Stefnt er að því að auka læsi fullorðinna um helming frá sem nú er með fræðusluverkefni sem ÞSSÍ hefur hleypt af stokkunum í samvinnu við héraðsstjórnina í Mukono héraði í Úganda. Samningur þess efnis hefur verið undirritaður, en héraðsbúar hafa beðið í nær fjögur ár eftir þessum tímamótum og var þeim ákaft fagnað þegar málið var í höfn. Aukin menntun fullorðinna þykir hafa sýnileg áhrif á framþróun í ríkjum þar sem ólæsi er mikið og leggja stjórnvöld í Úganda mikla áherslu á slík verkefni.

Lesa meira

 

Ný stjórn ÞSSÍ - 17.5.2005

Kosin hefur verið ný sex manna stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) til fjögurra ára. Þrír nýir aðalmenn taka sæti í stjórninni.

Lesa meira

 

Yfirlýsing um víðtækt byggðarþróunarverkefni undirrituð í Úganda - 11.5.2005

Samstarfsyfirlýsing um byggðarþróunarverkefni Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og stjórnar Kalangala héraðs í Úganda var undirrituð í Kampala í dag. Verkefnið mun standa yfir í 10 ár og verður unnið í 4 áföngum. Samstarfið felur í sér fjárhags- og tæknilega aðstoð af hálfu ÞSSÍ og nemur heildarfjárhagsáætlun 3,2 milljónum bandaríkjadala, sem svarar til 208 milljóna íslenskra króna. Verður þetta í fyrsta sinn sem svo víðtæku samstarfsverkefni er hrundið í framkvæmd á vegum ÞSSÍ. Yfirlýsinguna undirrituðu Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður ÞSSÍ, fyrir hönd stofnunarinnar og Daniel Kikoola, forseti héraðsstjórnar, fyrir hönd Kalangala héraðs.

Lesa meira
 

Undirritun samstarfssamninga í Malaví - 9.5.2005

Þann 7. maí lauk fjögurra daga heimsókn sendinefndar frá höfuðstöðvum ÞSSÍ í Reykjavík til Malaví. Björn Ingi Hrafnsson, formaður stjórnar, undirritaði fyrir hönd ÞSSÍ þrjá samsstarfssamninga við malavísk stjórnvöld þann 6. maí.

Lesa meira

 

Efnt til útboðs í fyrsta sinn - 29.4.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) og Rannsóknaþjónustan Sýni ehf. skrifuðu undir samstarfssamning í morgun um þjálfun starfsmanna og úttekt á gæðaverkefni fiskirannsóknastofu sem stofnunin hefur veitt aðstoð við að byggja upp í Mapútó, höfuðborg Mósambík. Efnt var til almenns útboðs um verkið og er það í fyrsta sinn sem sá háttur er hafður á hjá stofnuninni. Markmið með útboðinu var að auka jafnræði meðal þeirra sem starfa í greininni.

Lesa meira

 

Nýtt fólk tekur til starfa hjá ÞSSÍ - 28.4.2005

Ráðið hefur verið í stöðu matvælafræðings á fiskirannsóknastofu í Mapútó í Mósambík, auk þess sem fjórir starfsnemar halda utan til samstarfslanda ÞSSÍ í Afríku á næstu vikum á vegum stofnunarinnar. Fjöldi umsókna frá hæfu fólki barst um auglýstar stöður hjá stofnuninni.

Lesa meira

 

Þróunarsamvinna á Sri Lanka að hefjast - 25.4.2005

Þróunarsamvinna ÞSSÍ við Sri Lanka mun að óbreyttu hefjast um miðjan maímánuð og hefur stjórn stofnunarinnar samþykkt hugmyndir að sjö verkefnum sem lögð verða drög að á þessu ári. Um er að ræða verkefni meðal annars í sjávarútvegsþorpum sem urðu illa úti í hamfaraflóðunum á annan dag jóla 2004. Að mati stjórnvalda á Sri Lanka er um forgangsverkefni að ræða, en þau miða meðal annars að því að byggja upp og þróa grunnvirki, auka þjónustustig, efla gagnasöfun í sjávarútvegi og styðja við heildaráætlun um menntun í sjávarútvegsfræðum. Gert er ráð fyrir að samstarfssamningur verði fyrirliggjandi á næstu vikum og að starfsmaður ÞSSÍ haldi til Sri Lanka í framhaldinu.

Lesa meira

 

Jafnréttisbaráttan í Afríku jafn mikilvæg og afnám aðskilnaðarstefnunnar - 20.4.2005

Getrude Mongella forseti afrískrar þingmannanefndar (Pan African Parliament - PAP) hvetur til þess að stofnuð verði samtök í álfunni til að berjast fyrir jafnrétti kynjanna. Hún segir að leggja þurfi jafn ríka áherslu á kröfur um jafnrétti eins og lögð var á baráttuna fyrir sjálfstæði og afnám aðskilnaðarstefnunar.

Lesa meira

 

Afríka: Uppsveifla í efnahagslífi - 18.4.2005

Hagvöxtur í Afríku var 5% að meðaltali á síðasta ári og hefur ekki verið meiri í 8 ár, að því er fram kemur í nýrri úttekt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF). Á sama tíma hjaðnaði verðbólga verulega í ríkjum Afríku sunnan Sahara og hefur ekki verið lægri í aldarfjórðung.

Lesa meira

 

Mesti útflutningur þróunarríkja í hálfa öld - 15.4.2005

Viðskipti í heiminum reyndust blómleg á síðasta ári en samkvæmt skýrslu Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) jukust þau um 9% á árinu 2004 sem einkum rekja má til góðs hagvaxtar. Í skýrslu WTO kemur fram að útflutningur Afríkuríkja jókst um 30% á síðasta ári. Lesa meira
 

Norðurlandaþjóðir sagðar saklausar af spillingu - 14.4.2005

Alþjóðabankinn hefur síðast liðin tvö ár gert athugun á meintri spillingu meðal starfsmanna sinna og hefur verið gefin út skýrsla um niðurstöðurnar í fyrsta sinn. Í henni kemur fram að 41 starfsmaður var rekinn á því tímabili sem athugunin náði til vegna spillingarmála eða vanrækslu og 114 starfsmenn fengu áminningu og/eða stöðulækkun.
Lesa meira
 

Hvernig er að búa í Úganda? - 13.4.2005

Hvernig er að búa í Úganda? er heiti á nýjum bæklingi sem út er kominn á vegum ÞSSÍ. Lesa meira
 

Opinn fundur um þróunarsamvinnu - 13.4.2005

Eðli, umfang og framtíðaráform þróunaraðstoðar Íslands í Afríku er umræðuefni á opnum fræðslufundi í Alþjóðahúsinu, sem félagið Afríka 2020 stendur fyrir í dag. Fræðslustjóri ÞSSÍ mun flytja erindi á fundinum sem ber yfirskriftina ,,Opinber þróunaraðstoð Íslands til Afríku". Fundurinn hefst klukkan 20. Lesa meira

 

Malaví: Allt að tvær milljónir manna þurfa matvælaaðstoð - 12.4.2005

Talið er að á aðra milljón manna í Malaví þurfi á matvælaaðstoð að halda á þessu ári og er þetta sjötta árið í röð sem ber á miklum skorti í landinu vegna langvarandi þurrkatíðar í suðurhluta Afríku. Sérfræðingar segja að slæm stefna stjórnvalda í málaflokknum bæti á vandann sem fyrir er og eigi stóran þátt í viðvarandi matvælaskorti.

Lesa meira

 

Mósambík: Fjögur börn deyja á hverri klukkustund - 11.4.2005

Fjögur börn að meðaltali andast á hverri klukkustund í Mósambík af sjúkdómum sem oftar en ekki eru auðlæknanlegir. Þetta kom fram í máli Ivo Garrido heilbrigðisráðherra landsins fyrir helgi. Hann gerði barnadauða að umtalsefni í ræðu sinni á alþjóða heilbrigðisdeginum, en við sama tækifæri benti hann á háa tíðni dauðsfalla mósambískra mæðra vegna barnsburðar.

Lesa meira
 

10.6 milljónir barna deyja árlega fyrir 5 ára aldurinn og hálf milljón kvenna lætur lífið vegna barnsburðar - 7.4.2005

Hundruð milljónir kvenna og barna hafa engan aðgang að heilbrigðisstofnunum, en af þeim sökum lætur mikill fjöldi þeirra lífið af völdum auðlæknalegra kvilla, skorti á fæðingarhjálp og ófullnægjandi ungbarnaeftirliti. Þetta segir í skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) sem kom út í dag, 7. apríl. Segir í niðurstöðu skýrslunnar að verulega væri unnt að draga úr dauða barna og kvenna með því að bæta heilbrigðisþjónustuna í fátækustu ríkjum heims.

Lesa meira

 

Mósambík: Barist fyrir réttindum kvenna - 7.4.2005

Staða meirihluta kvenna í Mósambík er afar bág og fátt hefur áunnist í baráttunni fyrir bættum kjörum þeirra þrátt fyrir skref sem stjórnvöld hafa reynt að stíga í framfaraátt síðustu ár. Ólæsi í landinu er um 60% og eru konur þar í meirihluta, auk þess sem konur tilheyra jafnan fátækustu þjóðfélagshópunum í Mósambík. Til að vekja athygli á stöðu konunnar í mósambísku samfélagi er haldið upp á kvennafrídag (Da Muhler Mocambicana) þar í landi í dag með tilheyrandi hátíðahöldum.

Lesa meira

 

Setur baráttuna gegn fátækt á oddinn - 4.4.2005

Paul Wolfowitz nýskipaður yfirmaður Alþjóðabankans segir að meginmarkið hans í starfi á næstu árum verði að ná ,,raunverulegum árangri" í að fækka þeim sem búa við fátækt og sára neyð í heiminum. Hyggst hann einkum beina sjónum bankans að ríkjum Afríku.

Lesa meira

 

Finnar ná ekki markmiðum sínum í þróunarmálum - 1.4.2005

Finnar munu ekki ná markmiðinu um aukningu á framlögum til þróunaraðstoðar í 0,7% af vergri landsframleiðslu (VLF) fyrir árið 2010 ef fram fer sem horfir. Áætlanir um ríkisútgjöld fyrir árin 2006-2009 hafa verið lagðar fram, en samkvæmt þeim er talið ólíklegt að heildarframlög til þróunarmála hækki svo um muni. Framlög Finna til þróunaraðstoðar nema nú 0,37% af VLF, sem er talsvert hærra en framlög Íslendinga en mun lægra en sú upphæð sem aðrar Norðurlandaþjóðir eyða í málaflokkinn.

Lesa meira
 

Úganda: 5 milljónir ólæsar - 31.3.2005

Meira en 5 milljónir manna, 10 ára og eldri, eru ólæsar í Úganda samkvæmt nýjum gögnum sem Hagstofa landsins hefur lagt fram. Byggt er á upplýsingum um menntunarstig í landinu frá árinu 2002.

Lesa meira
 

Teflir blindfjöltefli við ólympíusveit Namibíu - 30.3.2005

Henrik Danielsen skólastjóri Hróksins og stórmeistari teflir blindfjöltefli við ólympíuúrval Namibíu í sendiráði Ísland í Namibíu í dag. Skákirnar hefjast klukkan 12:30 að íslenskum tíma og mun kvikmyndatökulið NBC Ríkissjónvarps Namibíu fylgist með gangi mála. Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) í samvinnu við skákfélagið Hrókinn gerðu með sér samkomulag nýverið um að kynna skákíþróttina fyrir skólabörnum og kennurum í Namibíu, auk þess sem landslið Namibíu í skák hefur notið leiðsagnar Henriks og Kristians Guttesens tæknistjóra Hróksins. Hefur starfið hlotið talsverða athygli ytra. Þeir fjórir sem tefla gegn Henrik í dag þykja efnilegustu skákmenn Namibíu. Lesa meira
 

Úganda: Mótmæltu breytingum á stjórnarskrá - 29.3.2005

Um 1000 manns söfnuðust saman á götum Kampala, höfuðborgar Úganda, fyrir helgi til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskrá landsins sem meðal annars fela í sér ákvæði um að núverandi forseti geti setið áfram á valdastóli. Er þetta í fyrsta sinn sem almenningur lætur í ljós óánægju og gagnrýnir stjórnvöld með þessum hætti og er því um sögulegan viðburð að ræða. Mótmælin fóru friðsamlega fram.

Lesa meira
 

Clinton á ný til Sri Lanka - 23.3.2005

Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseti hyggst heimsækja Sri Lanka á næstunni í þeim tilgangi að skoða uppbyggingarstarfið sem þar fer fram eftir hamfaraflóðin á síðasta ári og aðkomu Sameinuðu þjóðanna að því. Loforð um gríðarlegar fjárhæðir hafa borist stjórnvöldum á eynni, en vandasamt hefur hins vegar reynst að skipuleggja uppbyggingarstarfið á árangursríkan hátt og samhæfa starf fjölda stofnana, frjálsra félagasamtaka og einstaklinga.

Lesa meira

 

Mikil aðsókn að skákmóti - 22.3.2005

Hrókurinn, Skáksamband Namibíu, í samvinnu við ÞSSÍ, stóðu að öflugu skákmóti í Windhoek, höfuðborg Namibíu, laugardaginn 20. mars. Þátttakendur voru 66 talsins sem er gífurleg aðsókn sjálfa þjóðhátíðarhelgina þegar flestir landsmenn höfðu hugann við forsetaskiptin og gleðskapinn er þeim fylgdu.

Lesa meira

 

Namibía: Kona kjörin varaforseti þings - 22.3.2005

Þingkonan Doreen Sioka hefur verið kjörin til að gegna embætti varaforseta þjóðings Namibíu og er það í fyrsta sinn, frá því landið hlaut sjálfstæði, sem kona er valin til starfans. Litið er á embættisveitinguna sem mikilvægt framfaraskref í átt til jafnréttis.

Lesa meira

 

Nýr forseti sver embættiseið í Namibíu - 21.3.2005

Nýr forseti sór embættiseið í Namibíu í dag og um leið lauk 15 ára valdatíma Sam Nujoma fráfarandi forseta sem leiddi sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Nýi forsetinn, Hifikepunye Pohamba, hefur verið náinn samstarfsmaður Nujoma í 40 ár og hefur lýst því yfir að hann hyggist halda áfram á sömu braut og fyrirrennari hans í uppbyggingu landsins. Umdæmisstjóri ÞSSÍ var viðstaddur athöfnina.

Lesa meira

 

BBC í Afríku - 16.3.2005

Breska ríkisútvarpið BBC ætlar að leggja áherslu á umfjöllun um Afríku á þessu ári og verður heil vika sérstaklega lögð undir útsendingar frá álfunni þar sem fjallað verður um mannlíf og menningu. Fréttatengdir þættir munu setja málefni Afríku á oddinn og vinsæll morgunþáttur á BBC verður sendur út beint þaðan.

Lesa meira

 

Úrslit þingkosninga ógilduð í Namibíu - 11.3.2005

Hæstiréttur Namibíu hefur ógildað úrslit þingkosninganna, sem fram fóru í landinu í nóvember síðast liðnum. Tveir stjórnarandstöðuflokkar véfengdu úrslitin og kröfðust þess að endurtalning atkvæða færi fram. Kosningarnar sjálfar eru hins vegar sagðar löglegar í dómi Hæstaréttar og þarf því ekki að endurtaka þær. Samkvæmt dóminum á endurtalningu að vera lokið í síðasta lagi 20. mars, einum degi áður en nýr forseti sem kjörinn var sver embættiseið.

Lesa meira

 

Fæstir hafa heyrt um þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna - 10.3.2005

88% íbúa í Evrópusambandslöndunum hafa aldrei heyrt getið þúsaldarmarkmiða Sameinuðu þjóðanna (Sþ) um þróun. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var á vegum Eurobarometer í öllum löndum ESB. Í Svíþjóð var hæsta hlutfall þeirra sem vissi eitthvað um málið (27%), en fæstir höfðu heyrt talað um það í Frakklandi og á Möltu (4%). Rúm fjögur ár eru liðin frá því þúsaldarmarkmið Sþ. voru sett.

Lesa meira

 

Konur sameinist í baráttunni gegn alnæmi - 9.3.2005

Áhersla var lögð á konur og baráttuna gegn alnæmi á alþjóða kvennadeginum sem haldinn var hátíðlegur i Mósambík á þriðjudag líkt og víða annars staðar. Virgília Matabele kvenna- og félagsmálaráðherra landsins kynnti regnhlífasamtök sex samtaka sem starfa með alnæmissmituðum konum sem hlotið hafa nafnið Kuyakana. Ráðherrann hvatti frjáls félagasamtök og stofnanir til að beina sjónum sínum að alnæmissmituðum og forvörnum með sérstaka áherslu á munaðarlaus börn.  Hún sagði jafnframt að brjóta þyrfti þagnarmúrinn og vinna gegn fordómum vegna alnæmis því að sjúkdómurinn snerti alla. Mósambík er eitt af samstarfslöndum ÞSSÍ og hafa frjálsu félagasamtökin AVIMAS, sem stofnunin starfar með þar í landi, lagt málefninu lið.

Lesa meira

 

Hirðingjabörn í Norður-Namibíu fá færanlegan leikskóla - 8.3.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) hefur afhent frumstæðum þjóðflokki Himba í Norður-Namibíu færanlegan leikskóla. Himbar hafa átt í erfðileikum með að veita börnum sínum tilhlýðlega menntun þar sem um er að ræða hirðingjaþjóð sem flakkar landssvæða á milli með húsdýr sín eftir því hvar vatn og beitiland er að finna. Leikskólinn er sagður mikill akkur fyrir yngstu börnin.

Lesa meira
 

Samvinna um uppbyggingu framhaldsskóla í Kenýu - 7.3.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) og Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) hafa náð samkomulagi um samvinnu við uppbyggingu þriggja framhaldsskóla í Kenýu. Unnið verður sameiginlega að fjármögnun á framkvæmdum við skólana sem eru í Sook, Riwo og Chepkalit.

Lesa meira

 

Nýtt rit um stefnu ÞSSÍ í jafnréttismálum komið út - 4.3.2005

Komið er út á vegum ÞSSÍ stefnurit í jafnréttismálum en í því segir m.a. að almennt samkomulag sé nú á milli aðildarþjóða Sameinuðu þjóðanna um að kynjajafnrétti sé forsenda fyrir réttlátri og árangursríkri þróun. Þá segir einnig að samkomulag sé um aðgerðir til að vinna gegn kynjamismunum.

Lesa meira

 

Ársskýrsla um skólastyrkjaverkefni Soroptimista í Malaví komin út - 3.3.2005

Út er komin ársskýrsla skólastyrkjaverkefnis Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur í Malaví 2004, sem ÞSSÍ hefur milligöngu um að fylgja eftir. Lesa meira
 

Leitað eftir sjávarútvegsfræðingi til starfa í Malaví - 3.3.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir laust starf verkefnisstjóra við verkefni á vegum stofnunarinnar við Malavívatn í Malaví. Starfið mun fela í sér umsjón með tveimur verkefnum ÞSSÍ. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Hrókurinn efna til skákennslu í Namibíu - 28.2.2005

Samkomulag hefur tekist með Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) og skákfélaginu Hróknum um að kynna skákíþróttina fyrir skólabörnum og kennurum í Namibíu. Stórmeistarinn Henrik Danielsen, sem jafnframt er skólastjóri skákskóla Hróksins og Kristian Guttesen, tæknistjóri Hróksins, halda til Namibíu á morgun 1. mars 2005. Verkefnið felst í því að kenna skák í á annan tug namibískra skóla og efna til skákmóta í framhaldinu. Þá munu kennarar og nemendur í Kennaraháskóla Namibíu fá sérstaka leiðsögn í skákíþróttinni svo unnt verði að halda starfinu áfram eftir að skákmenn Hróksins hafa yfirgefið landið. Lesa meira
 

ÞSSÍ og Rauði kross Íslands vinna saman að uppbyggingu heilsugæslu í Mósambík - 25.2.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) og Rauði kross Íslands (RKÍ) undirrituðu í dag sameiginlega viljayfirlýsingu um stuðning við uppbyggingu heilsugæslustöðvar í Chibucutso í Mapútó héraði í Mósambík. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Rauða krossinn í Mósambík. ÞSSÍ mun leggja til 55% af kostnaði við verkefnið í samræmi við áætlanir þar um og RKÍ 45%. Lesa meira
 

Starfsþjálfun í Afríku - 24.2.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) auglýsir eftir ungu háskólafólki, sem áhuga hefur á starfsþjálfun í tengslum við þróunaraðstoð í samstarfslöndum stofnunarinnar í Afríku, en þau eru Namibía, Malaví, Mósambík og Uganda. Starfsþjálfunin mun hefjast í aprílmánuði komanda í Mósambík og Úganda og í júnímánuði í Namibíu og Malaví. Gert er ráð fyrir fimm mánaða samfelldri starfsþjálfun í hverju landanna. Ráðinn verður einn einstaklingur til starfsþjálfunar í hverju landi eða samtals fjórir.

Lesa meira

 

Starf verkefnisstjóra í fullorðinnafræðslu í Malaví auglýst laust til umsóknar - 17.2.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands leitar eftir háskólamenntuðum sérfræðingi til starfa sem verkefnisstjóri í fullorðinnafræðsluverkefni stofnunarinnar í Malaví. Leitað er að einstaklingi, sem hefur til að bera háskólapróf; helst masterspróf eða ígildi þess; í félagsvísindum eða kennslufræði með áherslu á fullorðinnafræðslu og þekkingu á þeim fullorðinnafræðslukerfum, sem notuð eru í þróunarlöndum. Umsækjendur þurfa jafnframt að búa yfir stjórnunarreynslu, mjög góðri enskukunnáttu og góðri tölvuþekkingu. 
Lesa meira
 

Styrkir auglýstir til meistara- og doktorsnáms - 16.2.2005

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar. Að þessu sinni verður veittur einn styrkur til doktorsnáms og tveir til meistaranáms.

Lesa meira

 

Leitað að ráðgjafa til starfa í Mósambík - 15.2.2005

ÞSSÍ leitar nú eftir háskólamenntuðum sérfræðingi til starfa við rannsóknarstofur sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík.

Lesa meira

 

Forseti Sri Lanka segir uppbyggingu hefjast 1. mars - 14.2.2005

Chandrika Bandaranaike Kumaratunga forseti Sri Lanka segir að uppbygging í landinu eftir hamfaraflóðin muni hefjast 1. mars. Yfirlýsingar fjölda erlendra ríkja og samtaka liggja fyrir um aðstoð við starfið sem framundan er. Aðstoðarframkvæmdastjóri ÞSSÍ heldur til Sri Lanka í næstu viku til viðræðna við stjórnvöld um aðkomu Íslendinga að uppbyggingarferlinu, en hérlend stjórnvöld ákváðu í ljósi gífurlegs tjóns sem hlaust af völdum flóðanna að leggja fram 50 milljóna króna aukframlag til þróunarasamstarfs á Sri Lanka, til viðbótar þeim 25 milljónum sem þegar hafði verið ákveðið að verja til málefnisins á þessu ári.

Lesa meira

 

Ný Afríka í mótun - 8.2.2005

,,Ný Afríka í mótun” er yfirskrift málþings sem Háskóli Íslands, Þróunarsamvinnustofnun Íslands og Norræna Afríkustofnunin gangast fyrir laugardaginn 12. febrúar, frá kl. 14:00-16:00 í Hátíðasal HÍ. Á þinginu munu nokkrir afrískir sérfræðingar í málefnum álfunnar leitast við að varpa ljósi á þann margþætta vanda sem ríki í Afríku sunnanverðri eiga við að etja.
Lesa meira
 

Enduruppbygging á Sri Lanka nemur 1,5 milljarði bandaríkjadala - 3.2.2005

Stjórnvöld á Sri Lanka telja að kostnaður við uppbyggingu þar í landi eftir flóðahamfarirnar muni nema um 1,5 milljarði bandaríkjadala, samsvarandi rúmlega 90 milljörðum íslenskra króna. Árni Helgason aðstoðarframkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) heldur utan í febrúarlok til að undirbúa tvíhliða þróunarsamvinnu Íslands við Sri Lanka, en 75 milljónum króna verður varið til verkefnisins á þessu ári.

Lesa meira

 

Forseti Malaví veitir lán til fyrirtækjareksturs - 2.2.2005

Forseti Malaví ætlar að veita 9,3 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði um 570 milljóna króna, í lán til stofnunar lítilla fyrirtækja í fátækustu héruðum landsins. Með því segist hann vera að efna kosningaloforð. Malaví er eitt af samstarfslöndum ÞSSÍ.

Lesa meira

 

Þróunaraðstoð lækkað um helming á 40 árum - 1.2.2005

Aðstoð ríkustu þjóða heims til þróunarríkja hefur lækkað hlutfallslega um helming síðustu fjóra áratugi. Þróunaraðstoð nam að meðaltali um 0,24% af vergri landsframleiðslu (VLF) árið 2003, samsvarandi tæpum 5.000 krónum á mann, en stóð í 0,48% árið 1960. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu bresku mannréttindasamtakanna Oxfam.

Lesa meira

 

Leiðtogar Afríkuríkja ræða vanda álfunnar - 31.1.2005

Kofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði við upphaf fundar 25 leiðtoga Afríkuríkja í gær að ekki væri unnið nægilega vel að því í álfunni að ná þúsaldarmarkmiðunum um þróun. ,,Þjóðir Afríku eru eftirbátar annarra þróunarríkja í þessu tilliti,” sagði Annan.

Lesa meira

 

Einstakt sögulegt tækifæri - 25.1.2005

Ný skýrsla þróunarstarfs Sameinuðu þjóðanna (UNDP) um leiðir til að ná svonefndum þúsaldarmarkmiðum um þróun hefur víða fengið góðar viðtökur. Skýrslan ber heitið Fjárfest í þróun, en í henni setja fræðimenn fram tillögur um hvernig unnt er að berjast á árangursríkan hátt gegn fátækt og misskiptingu í heiminum.

Lesa meira

 

Vilja hækka í 1% - 24.1.2005

5 stjórnarandstöðuflokkar í Danmörku hafa ákveðið að taka höndum saman og berjast fyrir því að framlög til þróunaraðstoðar verði hækkuð, þannig að þau nái 1% af vergum þjóðartekjum (GNI). Þetta er eitt af því sem felst í sameiginlegri framtíðaráætlun flokkanna sem ber yfirskriftina: ,,Við viljum fjárfesta í framtíðinni”. Lesa meira
 

Frjáls viðskipti í baráttunni gegn fátækt - 21.1.2005

Hvernig frjáls viðskipti geta hjálpað Afríkuríkjum í baráttunni gegn fátækt var umfjöllunarefni Geirs H. Haarde, fjármálaráðherra og starfandi utanríkisráðherra, í inngangerindi sem hann flutti á ráðherrafundi Norðurlanda og 20 Afríkuríkja í Dar es Salaam í Tansaníu. Yfirskrift ráðstefnunnar var: ,,Viðskipti og þróun: hvað er í húfi fyrir Afríku?”

Lesa meira

 

Hamfarir draga úr hagvexti á Sri Lanka - 20.1.2005

Uppbygging eftir flóðahamfarirnar á Sri Lanka mun kosta milljarða að sögn forseta landsins. Alþjóðagjaldeyrisstofnunin (IMF) spáir því að hagvöxtur muni lækka um 1% á þessu ári. Fulltrúi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) mun halda til Sri Lanka innan skamms til viðræðna við stjórnvöld um það hvernig stofnunin getur komið að þróunar- og endurreisnarstarfi á eyjunni.

Lesa meira

 

Svíar hætta þróunaraðstoð við 4 lönd - 19.1.2005

Svíar ætla að draga verulega úr tvíhliða þróunaraðstoð við fjögur lönd á næstu árum; Suður-Afríku, Indland, Namibíu og El Salvador. Öll þessi lönd hafa fengið umtalsverða aðstoð frá Svíþjóð.

Lesa meira

 

Ný lektorsstaða í þróunarfræðum við HÍ - 17.1.2005

Jónína Einarsdóttir hefur verið ráðin í nýja lektorsstöðu í mannfræði þróunar við mannfræði- og þjóðfræðiskor félagsvísindadeildar Háskóla Íslands (HÍ). Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) kostar stöðuna til þriggja ára. Hlutverk Jónínu verður meðal annars að byggja upp meistaranám við HÍ á þessu sviði, en það verður í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíkt nám í íslenskum háskóla.

Lesa meira
 

Létta á skuldabyrði þróunarríkja - 17.1.2005

Bretar hafa heitið því að greiða 10% af erlendum skuldum þróunarríkja og er litið á það sem framlag Bretlands til baráttunnar gegn fátækt. Þetta kom fram í máli Gordons Brown fjármálaráðherra Bretlands um helgina þegar hann var í opinberri heimsókn í Afríku sunnanverðri. Fjárhæðirnar sem um ræðir eru taldar nema allt að einum milljarði sterlingspunda, jafnvirði um 117 milljarða íslenskra króna. Þegar Brown var staddur í Mósambík, einu af samstarfslöndum ÞSSÍ, hét hann því að skuldir landsins af erlendum lánum upp á um 80 milljónir sterlingspunda yrðu látnar niður falla.

Lesa meira

 

Ástand mála alvarlegra en talið var - 14.1.2005

Talsmaður Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) segir að framboð fisks hafi dregist saman um allt að 90% á þeim svæðum sem verst urðu úti í hamfaraflóðinu í Suður-Asíu og hafi efnahagsgrundvöllur sjómanna hrunið. Sri Lanka er þar á meðal og eru fulltrúar FAO þegar farnir til lansins til að meta ástandið og veita stjórnvöldum ráðgjöf um hvernig unnt er að byggja upp fiskimannasamfélögin. Sögusagnir um að aflinn sem nú komi á land sé hættulegur til neyslu eykur enn á vandann.

Lesa meira
 

Endurreisnarstarf að hefjast á Sri Lanka - 12.1.2005

Uppbyggingarstarf hefst innan skamms á Sri Lanka og sagði forseti landsins í gær að sérstök áhersla yrði lögð á fiskimannasamfélögin. Fulltrúi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) mun halda til Sri Lanka fljótlega til viðræðna við stjórnvöld um það hvernig stofnunin getur komið að þróunar- og endurreisnarstarfi á eyjunni.

Lesa meira

 

Svíar hætta þróunaraðstoð við 4 lönd - 10.1.2005

Svíar ætla að draga verulega úr tvíhliða þróunaraðstoð við fjögur lönd á næstu árum; Suður-Afríku, Indland, Namibíu og El Salvador. Öll þessi lönd hafa fengið umtalsverða aðstoð frá Svíþjóð.

Lesa meira

 

Sameinuðu þjóðirnar horfi til endurreisnar á flóðasvæðunum - 10.1.2005

Kofi Annan framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (Sþ) sagði eftir heimsókn sína til Sri Lanka um helgina að mikilvægt væri að uppbygging hæfist á flóðasvæðunum við Indlandshaf. Lagði hann áherslu á að þeir fjármunir sem rynnu til neyðarhjálpar á hamfarasvæðunum bættust ofan á þau framlög sem þegar hefðu verið eyrnarmerkt þróunarmálum og baráttunni gegn fátækt í þróunarríkjunum. Ríkisstjórn Íslands samþykkti í síðustu viku að þrefalda framlög til þróunarsamvinnu við stjórnvöld á Sri Lanka og verður alls 75 milljónum króna varið til uppbyggingarstarfs þar í landi á þessu ári á vegum Þróunarsamvinnstofnunar Íslands (ÞSSÍ).

Lesa meira

 

Upplýsingavefur um áhrif náttúruhamfara í S-Asíu - 10.1.2005

Norræna Asíu stofnunin (Nordic Institute of Asian Studies - NIAS) hefur opnað upplýsingavef um hamfarirnar sem urðu af völdum jarðskjálftans í Indlandshafi. Markmið stofnunarinnar er að veita ítarlegar upplýsingar um þau lönd sem illa urðu úti og verður ekki síst fylgst með þeirri enduruppbyggingu sem nú stendur fyrir dyrum.

Lesa meira

 

75 milljónir til þróunar- og uppbyggingarstarfs á Sri Lanka - 7.1.2005

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að þrefalda framlög til þróunarsamvinnu við stjórnvöld á Sri Lanka og verður alls 75 milljónum króna varið til uppbyggingarstarfs þar í landi á þessu ári á vegum Þróunarsamvinnstofnunar Íslands (ÞSSÍ). Stofnunin mun starfa með stjórnvöldum á Sri Lanka að þeim verkefnum sem þau telja brýnust. Aukin framlög Íslands til þróunarsamstarfs við stjórnvöld á Sri Lanka gera ÞSSÍ kleift að hefjast handa fyrr en áætlað var auk þess sem unnt er að ráðast í stærri verkefni.

Lesa meira

 

150 milljónir króna í neyðar- og þróunaraðstoð - 7.1.2005

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi í morgun að framlag Íslands vegna náttúruhamfaranna í Suður-Asíu verði alls 150 milljónir króna. Þar af fara 25 milljónir í þróunarsamvinnu við Sri Lanka í samræmi við samþykkta áætlun Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), auk þess sem 50 milljóna króna aukaframlagi verður varið til þróunaraðstoðar og uppbyggingar þar í landi.  Lesa meira
 

Powell til Sri Lanka - 7.1.2005

Colin Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna er staddur á Sri Lanka til að meta aðstæður eftir náttúruhamfarirnar sem dundu yfir eyjuna á annan dag jóla. Spenna ríkir á milli stjórnarvalda í landinu og aðskilnaðarsinna úr röðum Tamíla í norðri vegna dreifingar hjálpargagna og matvæla. Lesa meira
 

Fella niður skuldir og tvöfalda framlög til þróunarmála - 7.1.2005

Gordon Brown fjármálaráðherra Bretlands hvetur þjóðir heims til að tvöfalda framlög til þróunaraðstoðar og fella niður skuldir þróunarríkja. Hann vill að nokkurs konar Marshall-aðstoð komi til í baráttunni gegn fátækt. Bretar hafa tekið við forsæti í G8-hópnum, samtökum helstu iðnríkja heims.

Lesa meira

 

Áherslubreytingar fyrirséðar á Sri Lanka - 5.1.2005

Náttúruhamfarirnar í Suður-Asíu munu að líkindum hafa áhrif á fyrirætlaða samvinnu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og stjórnvalda á Sri Lanka sem á að hefjast á þessu ári. Vænta má áherslubreytinga, en öll verkefni sem ÞSSÍ tekur að sér eru unnin á forsendum samstarfslandanna, í anda stefnu stjórnvalda þar og með hliðsjón að starfi annarra þróunarsamvinnustofnanna í landinu. Sri Lanka varð mjög illa úti þegar flóðbylgja skall á landinu í kjölfar jarðskjálftans undan strönd Indónesíu á annan dag jóla og var skaðinn mestur í fiskimannasamfélögunum. Fyrirhugað er að þróunarstarf ÞSSÍ verði að mestu á sviði fiskimála, en samkvæmt samþykktum áætlunum verður 25 milljónum króna varið til þróunarsamvinnu á Sri Lanka á þessu ári.

Lesa meira
 

Árið 2005 stefnumarkandi í baráttunni gegn fátækt? - 3.1.2005

Ein stærsta spurningin sem ríkustu þjóðir heims hyggjast svara á árinu 2005 er hvernig unnt sé að útrýma fátækt. Mörgu hefur þegar verið lofað, en efndir hafa oft látið á sér standa. Helstu leiðtogar heims velkjast hins vegar ekki í vafa um að vinna þarf að því að finna varanlegar lausnir á málefnum þróunarríkja og munu augu alþjóðsamfélagsins því beinast að þessu máli sem aldrei fyrr á þessu ári.

Lesa meira
 

Gætu aukið tekjur gríðarlega - Viðtal við Árna Helgason í jólablaði Fiskifrétta 2004 - 29.12.2004

Í mörgum þróunarlöndum eru stundaðar fiskveiðar, en jafnan er veiðimennina að finna í fátækustu þjóðfélagshópunum. ÞSSÍ hefur lagt áherslu á aðstoð við uppbyggingu í fiskimálum í 4 samstarfslöndum í Afríku. Víðast hvar er meðferð á fiskinum mjög ábótavant enda er kælingin engin í þeim mikla hita sem orðið getur í álfunni. Árni Helgason aðstoðarframkvæmdastjóri ÞSSÍ segir í viðtali við Fiskifréttir að talið sé að um 30-40% af fiski sem kemur af löndunarstöðunum í Úganda séu óhæf til vinnslu til útflutnings.

Lesa meira
 

Nýr leiðtogi í Mósambík - 22.12.2004

Armando Guebuza leiðtogi stjórnarflokksins Frelimo fór með sigur af hólmi í nýafstöðnum forsetakosningum í Mósambík. Á þriðju viku tók að telja atkvæðin en endanleg úrslit voru kynnt í gær. Afonso Dhlakama formaður stjórnarandstöðuflokksins Renamo hefur gagnrýnt framkvæmd kosninganna og sakað stjórnvöld um kosningasvindl.

Lesa meira

 

Ársskýrsla ÞSSÍ komin út - 20.12.2004

Ársskýrsla Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2003 (Annual Report) er komin út. Í inngangsorðum segir Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, að stefna íslenskra stjórnvalda sé að stuðla að því að unnt verði að ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun fyrir árið 2015. Segir Davíð að framlag Íslands til þróunarmála verði hækkað næstu ár, markmiðið sé að hlutfall af VLF verði komið í 0.35% árið 2009. Lesa meira
 

Misnotkun á fé Evrópusambandsins til þróunarmála - 16.12.2004

Misnotkun á fé Evrópusambandsins (ESB) sem ætlað er til þróunarmála er víðtækt og viðvarandi vandamál. Á þessu ári komu 52 ný mál til kasta eftirlitsstofnunar framkvæmdastjórnar ESB (Anti-Fraud Office of the European Commission) sem reynir að koma í veg fyrir skipulagða svikastarfsemi. Koos Richelle, framkvæmdastjóri þróunarmála hjá ESB, segir að svikastarfsemin teygi anga sína víða og sé vel skipulögð.

Lesa meira

 

Meira fjármagn þarf í baráttuna gegn fátækt - 15.12.2004

Ríkar þjóðir þurfa að leggja til mun meira fjármagn en nú er gert svo unnt sé að ná markmiðum Sameinuðu þjóðanna um að draga úr fátækt í heiminum. Þetta segir í yfirlýsingu sem ráðherrar þróunarmála á Norðurlöndunum sendu frá sér í gær. Mat verður lagt á það á næsta ári hvort markmið um að fækka fátækum í heiminum um helming fyrir 2015 muni nást miðað við þá vinnu sem þegar hefur verið innt af hendi.

Lesa meira

 

Jólatré skreytt í Afríku - 13.12.2004

Jólin eru mesta hátíð ársins víðast hvar í Afríku jafnvel þótt milljónir manna í álfunni hafi ekki efni á að eyða miklu í mat, drykk eða gjafir. Heitasti tími ársins er farinn í hönd sunnan miðbaugs, í Afríkuríkjum er hitastigið yfir hátíðarnar um og yfir 40° C. Jólahaldið er því að mörgu leyti með öðru sniði en Vesturlandabúar eiga að venjast.

Lesa meira

 

Bretar setja 12 milljarða í heilbrigðisþjónustu í Malaví - 10.12.2004

Heilbrigðisyfirvöld í Malaví munu fá 100 milljónir breskra punda, samsvarandi um 12 milljarða íslenskra króna, frá bresku Þróunarsamvinnustofnuninni á næstu sex árum. Fjármununum verður varið til þess að veita alnæmissjúkum viðeigandi meðferð án endurgjalds, auk þess sem stefnt er að fækka dauðsföllum kvenna í barnsnauð og lækka dánartíðni barna. Einnig er stefnt að því að greiða læknum, hjúkrunarfólki og öðru heilbrigðisstarfsfólki hærri laun og fjárfesta í betri menntun þeim til handa.

Lesa meira

 

Þora ekki að fara í alnæmis próf - 7.12.2004

Minnihluti barnshafandi kvenna í Úganda, sem er eitt af samstarfslöndum ÞSSÍ, þorir að fara í alnæmispróf af ótta við refsingu eiginmanna. Mörg dæmi eru þess að þeir hóti eiginkonum sínum skilnaði vilji þær fara sjálfviljugar í alnæmispróf. Meira en 1 milljón íbúa í Úganda er smituð af alnæmi og talið er að um 100 þúsund manns hafi látist af völdum sjúkdómsins á síðasta ári.

Lesa meira
 

Kosningaþátttaka undir væntingum - 3.12.2004

Heldur dræm kosningaþátttaka virðist hafa verið í forseta- og þingkosningunum í Mósambík sem fram fóru í landinu í gær og fyrradag. Fullyrt var að óbærilegur hiti á sumum stöðum og úrhellis rigning á öðrum hefði komið í veg fyrir að fólk færi á kjörstað. Bæði Chissano fráfarandi forseti og Arao Litsuri formaður landskjörstjórnar hvöttu kjósendur til að mæta á kjörstað ,,það væri skylda fólks við lýðræðið í landinu”. Orð þeirra reyndust ekki hafa þau áhrif sem vonast var eftir.

Lesa meira

 

Biðraðir við kjörstaði í Mósambík - 2.12.2004

Langar biðraðir mynduðust við kjörstaði í Mósambík í gær á fyrri degi forseta- og þingkosninga í landinu. Víðast hvar virtist framkvæmd kosninganna ganga eðlilega fyrir sig utan þess að ekki tókst að koma kjörgögnum á réttum tíma til afskekktustu þorpanna vegna úrhellisrigningar og ófærðar. Mósambík er eitt af fjórum samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofunar Íslands (ÞSSÍ). Lesa meira
 

Mósambíska þjóðin gengur að kjörborðinu - 1.12.2004

Forseta- og þingkosningar fara fram í Mósambík í dag og á morgun. Lítill munur er talinn vera á fylgi tveggja helstu keppinautanna um forsetastólinn og ríkir því mikil spenna í landinu vegna kosninganna. Ríkisstofnunum og flestum einkafyrirtækjum hefur verið lokað í tvo daga og fólk hvatt til að nýta kosningarétt sinn.

Lesa meira

 

Ronaldo og Zidane í einvígi gegn fátækt - 30.11.2004

Knattspyrnuhetjurnar Ronaldo og Zinédine Zidane hafa samþykkt að fá skærustu stjörnur íþróttarinnar til að taka þátt í vináttuleik 14. desember næstkomandi í Madríd. Yfirskrift keppninnar er Einvígi gegn fátækt en allur ágóði af leiknum mun renna til uppbyggingar í fátækustu löndum heims. Ronaldo og Zidane eru báðir góðgerðarsendiherrar Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (United Nations Development Programme - UNDP).

Lesa meira

 

Áhyggjur vegna kosninga í Mósambík - 26.11.2004

Evrópusambandið og lýðræðisstofnun Jimmy Carters fyrrverandi Bandaríkjaforseta segja teikn á lofti um að reglum um lýðræðislegar kosningar verði ekki framfylgt í komandi forseta- og þingkosningum í Mósambík. Áhyggjur manna beinast að tveimur þáttum, annars vegar fá kosningaeftirlitsmenn ekki fullan aðgang að herbergjum þar sem skráning atkvæða í tölvur fer fram og hins vegar verður þeim meinað að fylgjast með fundum landskjörstjórnar þegar endurskoðun vafaatkvæða fer fram. Fjöldi kosningaeftirlitsmanna verður viðstaddur kosningarnar sem fram fara 1. og 2. desember.  

Lesa meira

 

Öll ríki verða að leggja sitt af mörkum - 24.11.2004

Hjálmar W. Hannesson sendiherra og fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hvatti til þess í ávarpi við almenna umræðu á allsherjarþinginu að lagst yrði á eitt til að vinna að endurskipulagningu á starfsemi SÞ. Aukin skilvirkni stofnunarinnar væri forsenda þess að enn betur væri hægt að vinna að friði og þróun í heiminum með það að markmiði að útrýma fátækt og óöryggi í heiminum. Lesa meira
 

Swapo sigurvegari kosninga í Namibíu - 23.11.2004

Eins og ráð hafði verið fyrir gert stóðu fulltrúar stjórnmálaflokksins Swapo uppi sem sigurvegarar í nýafstöðnum forseta- og þingkosningum í Namibíu. Stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn Congress of Democrats (CoD) dregur niðurstöður kosninganna í efa, sakar stjórnvöld um kosningasvindl og hefur óskað eftir endurtalningu atkvæða.

Lesa meira

 

Spenna fyrir kosningar í Mósambík - 22.11.2004

Minningar um 16 ára borgarastyrjöld í Mósambík eru enn ofarlega í huga íbúa landsins sem ganga að kjörborðinu eftir rúma viku. Afstaða til átakanna (1976-1992) og stuðningur við sjálfstæðishreyfinguna Frelimo annars vegar og anspyrnuhreyfinguna Renamo hins vegar enduspegla enn í grófum dráttum hvaða hug fólk ber til stjórnmálaflokkanna tveggja. Frelimo er spáð sigri í kosningunum en ljóst er þó að Renamo nýtur mikils stuðnings í strjálbýlli héruðum landsins. Lesa meira
 

Talning atkvæða stendur yfir - 18.11.2004

Talning atkvæða eftir forseta- og þingkosningar í Namibíu stendur enn yfir og mun taka nokkurn tíma að ljúka þeirri vinnu. Ekkert bendir til annars en að Hifikepunye Pohamba taki við af Sam Nujoma sem forseti landsins. Pohamba hefur lýst því yfir að engar breytingar verði gerðar á stefnu stjórnvalda nái hann kjöri og því hafa niðurstöður kosninganna engin áhrif á starf ÞSSÍ í Namibíu.

Lesa meira

 

Skortur á ómenguðu vatni í Malaví verði ekkert að gert - 18.11.2004

Stjórnvöld í Malaví hafa miklar áhyggjur af mengun vatnsbóla í landinu og eru horfur slæmar ef ekki verður gripið til fyrirbyggjandi aðgerða. Þrátt fyrir að vatnsuppsprettur, stöðuvötn, ár og fen séu víða í Malaví er óttast að gífurleg fólksfjölgun, álag á einstökum svæðum og afleitt eftirlit geti leitt til verulegs vatnsskorts á næstu tveimur áratugum.  

 

Lesa meira
 

Jákvæð hagvaxtarspá fyrir þróunarríkin - 17.11.2004

Hagvöxtur í þróunarlöndunum á þessu ári verður sá mesti sem um getur síðan árið 1974 að því er fram kemur í mati Alþjóðabankans (World Bank). Útlit er fyrir að nokkur fjöldi ríkja muni ná þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun sem miða að því að fækka fátækum um helming fyrir árið 2015. Ekki er þó talið að Afríkuríki sunnan Sahara verði í þeim hópi.

Lesa meira

 

Úrhelli hefur áhrif á kosningaþátttöku - 16.11.2004

Úrhellisrigning í Namibíu hefur valdið því að forseta- og þingkosningar í landinu fóru treglega af stað. Kosningarnar standa yfir í tvo daga, 15. og 16. nóvember. Leiðtogaskipti fara fram í fyrsta sinn síðan landið fékk sjálfstæði 1990, en ekki er búist við stjórnarfarsbreytingum og munu forsetaskiptin því engin áhrif hafa á störf Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í Namibíu.

Lesa meira

 

Sölukerfi á sjávarafurðum ein helsta auðlind Íslendinga - 10.11.2004

Markaðssetning á sviði sjávarútvegs gæti verið eitt helsta framlag Íslendinga til þróunaraðstoðar að mati Ágústs Einarssonar prófessors í hagfræði við Háskóla Íslands. Þetta kom fram í erindi sem hann flutti á málþingi um þróunaraðstoð Íslendinga í veiðum og sjávarútvegi sem haldið var á Grand hótel Reykjavík, miðvikudaginn 10. nóvember. Jónas Haralz hagfræðingur sagði í sínu erindi að hann teldi að varanlegur árangur hefði ekki náðst í stórum verkefnum í fiskveiðum og sjávarútvegi sem fjölþjóðlegar stofnanir hefðu haft umsjón með í þremur samstarfslöndum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ). Hins vegar hefðu umrædd verkefni skilað tímabundnum árangri sem einkum fælist í menntun heimamanna. 

Lesa meira

 

Svíar vilja auka þróunaraðstoð á sviði heilbrigðismála - 4.11.2004

Sænsk stjórnvöld ætla að beita sér fyrir því á næsta ári að framlög alþjóðasamfélagsins til heilbrigðismála í þróunarlöndunum verði aukin. Svíar vilja beina athyglinni sérstaklega að heilsu kvenna, kynheilbrigði þeirra, fæðingarhjálp og mæðravernd. Lesa meira
 

Læknanemar til rannsóknarstarfa í Malaví - 29.10.2004

Þróunarsamvinnstofnun Íslands (ÞSSÍ) og læknadeild Háskóla Íslands skrifuðu í dag undir samkomulag um rannsóknarverkefni tveggja íslenskra læknanema árið 2005 í tengslum við framkvæmdir og þjálfunarverkefni í heilbrigðismálum, sem ÞSSÍ hefur umsjón með í Monkey Bay í Malaví.

Lesa meira

 

Ættbálkur í útrýmingarhættu leitar aðstoðar - 26.10.2004

Höfðingi af ættbálki Himba, kona og stúlkubarn, auk túlks lögðu nýverið upp í þriggja daga ferðalag til að hitta Sighvat Björgvinsson, framkvæmdastjóra Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), og samstarfsfólk hans í Windhoek í Namibíu. Tilgangurinn var að kynna þann vanda sem ættbálkurinn stendur frammi fyrir og leita aðstoðar ÞSSÍ við uppbyggingu vatnsbóla og félagslegra verkefna í Veripaka - héraði í Norður - Namibíu.

Lesa meira
 

Félagsleg staða fátækra kvenna og barna bætt - 25.10.2004

Nýr rammasamningur til fjögurra ára hefur verið undirritaður á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) og ráðuneytis kvenna-og félagsmála í Mósambík. Samningurinn miðar að því að styrkja enn frekar það samstarf sem ÞSSÍ og ráðuneytið hafa verið að móta undanfarin ár, en sú vinna hefur einkum falist í því að styrkja innri uppbyggingu í ráðuneytinu sem og bæta félagslega stöðu fátækra kvenna og barna, auk þess að efla jafnréttisvitund með markvissu fræðslu- og uppbyggingarstarfi. Lesa meira
 

Þróunarsamvinnustofnun Íslands og ABC barnahjálp undirrita samstarfssamning - 21.10.2004

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) og ABC barnahjálp hafa gert samning um samstarf í þróunaraðstoð. Einkum verður unnið að framgangi mála er varða fátæk og munaðarlaus börn í þróunarlöndum.

Lesa meira

 

Ný samstarfslönd skoðuð - 21.10.2004

Þróunarsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ) skoðar nú fjögur ný ríki með hugsanlegt samstarf í huga. Um er að ræða Mið - Ameríkuríkið Nikaragúa, Afríkuríkin tvö Ghana og Madagaskar, auk Sri Lanka. Eitt af meginviðmiðum í tvíhliða þróunarsamvinnu Íslendinga er að vinna gegn fátækt og er áhersla lögð á samstarf við lönd þar sem lífskjör eru lökust að mati alþjóðlega viðurkenndra stofnana.

Lesa meira

 

Nýr samningur um þróunarsamvinnu Íslands og Namibíu undirritaður - 15.10.2004

Nýr samningur um þróunarsamvinnu Íslands og Namibíu var undirritaður í Windhoek, höfuðborg Namibíu, í morgun. Í samningnum er kveðið á um vilja þjóðanna til að vinna sameiginlega að aukinni hagsæld og eflingu félagslegrar þróunar í Namibíu. Um er að ræða almennan rammasamning um verklagsreglur og aðferðafræði í því sambandi.

Lesa meira

 

Ný stefna ÞSSÍ í jafnréttismálum - 5.10.2004

Stjórn ÞSSÍ hefur samþykkt nýja stefnu stofnunarinnar í jafnréttismálum. Markmið jafnréttisstefnunar er að stuðla að kynjajafnrétti í samstarfslöndum ÞSSÍ með því að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið í verkefni stofnunarinnar, en einnig að stuðla að jöfnum rétti kvenna og karla innan stofnunarinnar sjálfrar þannig að tryggt verði að mannauður hennar nýtist sem best.

Lesa meira
 

Nýr fjölmiðlafulltrúi ÞSSÍ - 1.10.2004

Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, hefur ráðið Telmu L. Tómasson til starfa sem fjölmiðlafulltrúa stofnunarinnar.

Lesa meira

 

Undirritun rammasamnings milli ÞSSÍ og Háskólans á Akureyri - 6.9.2004

Í dag undirrituðu Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður ÞSSÍ, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, rammasamning um samstarf sem tengist samvinnu og aðstoð við þróunarlöndin. Markmið samstarfsins er að efla með markvissum hætti þátttöku Háskólans á Akureyri í verkefnum á sviði þróunaraðstoðar á vegum ÞSSÍ og stuðla að aukinni þekkingu og fræðslu um þróunarsamvinnu. Lesa meira
 

Rannsóknarstyrkir til meistar- og doktorsnáms - 5.8.2004

Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar. Að þessu sinni verður veittur einn styrkur til doktorsnáms og tveir til meistaranáms.

Lesa meira

 

Í nýrri skýrslu um þróun lífsgæða hvetur Þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna þjóðir heims til að standa við þúsaldarmarkmiðin sem samþykkt voru í upphafi 21. aldarinnar á leiðtogafundinum í New York í s - 12.7.2003

Mánudaginn 7.júlí kom út Skýrsla þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2003 um þróun lífsgæða í löndum heims. Vísitalan um þróun lífsgæða (Human Development Index) var tekin í notkun árið 1990. Hún er saman sett af ákveðnum þáttum sem taldir eru mæla lífsgæði manna og má þar nefna meðaltekjur á mann, lífslíkur, menntun og stöðu kynjanna. Lesa meira
 

Fullorðinsfræðsla í Kalangalahéraði í Úganda - 2.12.2002

Kalangalahérað liggur miðsvæðis í Úganda og fiskimannasamfélögin á Ssese eyjum í Viktoríuvatni tilheyra því. Þann 14. nóvember síðastliðinn var í fyrsta skipti haldið upp á alþjóðlegan dag fullorðinsfræðslu í Kalangalahéraði.
Lesa meira
 

Fréttatilkynning: Hungurvofa yfir Malaví - 24.9.2002

Fyrstu þrjá mánuði þessa árs skapaðist neyðarástand í Malaví vegna almenns matvælaskorts í landinu. Allt bendir til að sagan muni endurtaka sig í lok ársins og inn í það næsta og þá jafnvel af enn meiri þunga en áður. Lesa meira
 

Fréttir frá starfsemi ráðuneyti kvenna og félagsmála í Mósambik - 16.4.2002

Snemma á árinu 2000 var stofnuð deild innan félagsmálaráðuneytisins í Mósambík sem kölluð er kvennamáladeild og í kjölfar þess var ráðuneytið nefnt ráðuneyti kvenna- og félagsmála.
Lesa meira
 

Afhending heilsugæslustöðvar í Malaví - 25.3.2002

Eitt stærsta verkefni ÞSSÍ til þessa, er uppbygging heilsugæslustöðvar og sjúkrahúss í Monkey Bay í Malaví (Monkey Bay Health Centre - MBHC). Lokið er við tvo af þremur byggingaáföngum - þ.e.a.s. þann hluta, sem tilheyrir heilsugæslustöðinni. Lesa meira
 

Fleiri fréttir



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica