2006

Ráðstefna um heilbrigðisþjónustu í fátækum löndum

Ráðstefna um heilbrigðisþjónustu í fátækum löndum var haldin í Reykjavík föstudaginn 29. september í því skyni að styðja við vaxandi umræðu og áhuga hér á landi um þann vanda sem mörg fátæk ríki standa frammi fyrir í almennri heilbrigðisþjónustu. Ráðstefnan var haldin á vegum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ) í samvinnu við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, læknadeild Háskóla Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Lesa meira
 

Ráðstefna um sjávarútveg og fiskeldi í sunnanverðri Afríku: Þróun og stjórnun

Fjölþjóðleg ráðstefna haldin í Windhoek, höfuðborg Namibíu, dagana 21. - 24. ágúst 2006 á vegum ÞSSÍ og Sjávarútvegsskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Um níutíu manns sóttu ráðstefnuna, sem þótti afar vel heppnuð, en tilgangurinn með ráðstefnuhaldinu var m.a. sá að að leiða saman íslenska sérfræðinga og sérfræðinga alþjóðastofnana, auk sérfræðinga annarra stofnana, sem starfa á þessu sviði í sjö löndum í sunnanverðri Afríku. Meðal fyrirlesara voru fulltrúar Alþjóðabankans og FAO auk þess sem fyrrverandi nemendur Sjávarútgsskólans frá sjö Afríkuríkjum kynntu efni.

Hér má sjá efni frá ráðstefnunni.

Lesa meira
 

Norræn fundur fiskimála í þróunarsamvinnu

Þrettán fulltrúar opinberra þróunarsamvinnustofnana frá öllum Norðurlöndunum héldu tveggja daga samráðsfund í Reykjavík á dögunum um þróunarstarf í fiskimálum. Stefnur og straumar í fiskimálum á heimsvísu voru efst á baugi ásamt upplýsingamiðlun um núverandi ogfyrirhuguð verkefni sem unnin eru af norrænum þróunarsamvinnustofnunum. Lesa meira
 

Ráðstefna um jarðhitamál í Nikaragúa

Þróunarsamvinnustofnun efndi til ráðstefnu um jarðhitamál í Managua, höfuðborg Nikaragúa, dagana 26.-29. júní. Ráðstefnan var samstarfsverkefni með heimamönnum, ráðuneyti orkumála og Orkustofnun Nikaragúa. Lesa meira
 


Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica