Námskeið um þróunarsamvinnu

Dagana 6. og 7. maí var haldið tveggja daga námskeið um stefnur, strauma, aðferðafræði og framkvæmd alþjóðlegrar þróunarsamvinnu. Þróunarsamvinnustofnun Íslands og utanríkisráðuneytið efndu sameiginlega til námskeiðsins fyrir starfsmenn sína og fulltrúa samstarfsstofnana á sviði þróunarmála.

Leiðbeinendur á námskeiðinu komu frá breskri ráðgjafastofnun, HLSP, þeir Ken Grant og Mark Pearson, en HLSP veitir ráðgjöf til þróunarsamvinnustofnana, alþjóðstofnana og stjórnvalda víða um heim, einkum á sviði heilbrigðismála.