Starfsþjálfun - þrjár stöður (2012)
Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir eftir ungu háskólafólki í fjögurra mánaða starfsþjálfun í tengslum við verkefni á sviði þróunarsamvinnu í þremur samstarfslöndum stofnunarinnar. Starfstími á vettvangi er frá 16. ágúst til 15. desember, með möguleika á framlengingu í allt að einn mánuð á heimaskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík.
Hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu hafa lokið grunnnámi í háskóla (BA, BSc eða sambærilega gráðu), gjarnan á sviðum þjóðfélagsfræða og skyldra greina eða umhverfis- og auðlindafræða og ekki vera eldri en 33 ára. Mjög góð enskukunnátta er skilyrði, þar á meðal geta til að skrifa góðan texta, góð tölvukunnátta og undirstöðuþekking í aðferðafræði. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð, ábyrgð, áreiðanleika og lipurð í mannlegum samskiptum. Þekking á þróunarmálum, þróunarstarfi og afrískri menningu er ákjósanleg.
Verkefni:
Tilfallandi verkefni á skrifstofu eða fyrir þróunarverkefni stofnunarinnar. Meðal helstu verkefna er upplýsingaöflun í tengslum við áætlanagerð, greining og úrvinnsla gagna og aðstoð við undirbúning og skipulag.
Malaví: Sérstök áhersla er lögð á menntamál og stjórnsýslu.
Mósambík: Sérstök áhersla er lögð á jafnréttismál og auðlindamál. Kunnátta í portúgölsku eða spænsku er nauðsynleg.
Úganda: Sérstök áhersla er lögð á jafnréttismál og umhverfis- og auðlindamál.
Umsóknir skulu hafa borist skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir 17. maí nk.
Þverholt 14
105 Reykjavík
Sími: 5458980
netfang: iceida@iceida.is



125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is