Styrkir til meistara- og doktorsnáms

ÞSSÍ veitir árlega styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviði stofnunarinnar og eru þeir að jafnaði auglýstir í febrúar ár hvert. Um er að ræða styrki til rannsóknaverkefna sem nema að minnsta kosti 15 einingum af náminu og tengjast málefnum þróunarsamvinnu.

Árið 2008 fengu eftirfarandi nemar styrki frá ÞSSÍ:

Doktorsnámsstyrki að upphæð 1.4 milljónir króna auk ferðastyrks hlutu:

Sigríður Björk Þormar, sem rannsakar úrvinnslu áfalla eftir vinnu á hamfarasvæðum, áhrif á líkamlega og andlega heilsu sjálfboðaliða mannúðarsamtaka.

Kristinn Hermannsson, sem rannsakar hagræn áhrif æðri menntunar í Malaví.

Péturs Waldorff, sem skoðar menningarlega og pólítíska strauma í þróunarsamvinnu í Angóla eftir stríð.

Meistaranámsstyrki að upphæð 700 þúsund auk ferðastyrks hlutu:

Þórður Arnar Hjálmarsson, sem skoðar hlutverk heimamanna í þróunarstarfi í Malaví.

Jakob Hafþór Björnsson, sem metur kostnaðar-ábatagreiningu jarðhitaverkefna ÞSSÍ í Níkaragva.

 

ATH! Vegna niðurskurðar í fjárlögum árin 2009-2010 hefur ÞSSÍ ekki getað veitt sína árlegu námsstyrki. 

 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica