Stuðningur við fullorðinsfræðsluverkefni í Mangochi héraði
Heiti verkefnis – svið:
Stuðningur við fullorðinsfræðsluverkefni malavískra stjórnvalda í Traditional Authority Nankumba 2006-2010 – Support to the National Adult Literacy Programme in Traditional Authority Nankumba 2006-2010.
Samningur og samstarfsaðilar:
Verkefnið er til fimm ára og er framhald á stuðningi við fullorðinsfræðsluverkefni malavískra stjórnvalda á Monkey Bay svæðinu sem hófst árið 2001. Samstarfsaðilar ÞSSÍ í verkefninu er kvennamálaráðuneytið (Ministry of Women and Child Development) auk héraðsyfirvalda í Mangochi sýslu en Traditional Authority Nankumba er hluti hennar.
Lýsing og markmið:
Leiðarljós verkefnisins er að aðstoða malavísk yfirvöld við að ná þúsaldarmarkmiðunum um þróun og við að ná eigin markmiðum um efnahagslegan vöxt og þróun. Framlag verkefnisins til þessa er að styrkja fullorðinsfræðslu í Traditional Authority Nankumba og stuðla með því að auknu læsi meðal almennings. Í ljósi þeirra tengsla sem eru milli ólæsis og fátæktar notar verkefnið REFLECT aðferðafræðina við fullorðinsfræðslu í því skyni að tengja lestrarnámið staðbundinni þróun og frumkvæðisrétti þátttakenda.
Til að ná fram yfirmarkmiðum verkefnisins hafa verið skilgreind sértæk markmið sem unnið er að í áföngum þau fimm ár sem verkefnið varir. Þessi sértæku markmið eru að:
- Stuðla að frumkvæðisrétti og velsæld í Traditional Authority Nankumba með því að bjóða uppá lestrar- og lífsleikniþjálfun fyrir ólæsa þorpsbúa á svæðinu, og með því að byggja upp getu til þróunar innan þorpanna.
- Stuðla að uppbyggingu og viðhaldi þekkingar starfsmanna og sjálfboðaliða ráðuneytis með því að bjóða reglubundna þjálfun sem og skólastyrki til valinna starfsmanna til framhaldsmennturnar á sviði fullorðinsfræðslu og þróunarfræða.
- Styðja uppbyggingu grunnvirkja sem stuðla að skilvirkri og árangursríkri fullorðinsfræðslu í Mangochi héraði.
- Aðstoða við eflingu grunnvirkja innan þorpanna.
- Stuðla að tengslamyndun og samstarfi milli hagsmunaaðila í fullorðinsfræðslu og þróunarstarfi innan Mangochi sýslu og einkum innan Traditional Authority Nankumba.
- Bæta aðgengi þorpa innan Traditional Authority Nankumba að ýmiss konar þjónustu og fjármögnunarleiðum.
Framvinda - úr ársskýrslu 2009:
Jafnréttismálaráðuneytið annast framkvæmd fullorðinsfræðsluverkefnisins í Traditional Authority Nankumba sem ÞSSÍ styrkir. Það er liður í aðgerðum ríkisstjórnar Malaví sem miða að því að styðja við félagslega og efnahagslega þróun á svæðinu. Hlutfall læsra í Manghochi-héraði er það lægsta í Malaví. Áætlað er að einungis 38% kvenna og 59% karla 15 ára og eldri séu læs. ÞSSÍ hóf stuðning sinn við fullorðinsfræðsluverkefnið 2001 með fjórum leshringjum. Árið 2009 hafði 94 leshringjum verið komið á fót á svæðinu með þátttöku 1695 kvenna og 160 karla. Í nóvember 2009 var lagt mat á færni alls 1020 þátttakenda í leshringjum til að finna þá sem náð höfðu lesfærni. Af þeim náðu 506 þátttakendur prófinu eða 49%.
REFLECT-nálgunin er aðferðarfræði sem er notuð til að aðstoða fullorðna þátttakendur í verkefninu við að öðlast lesfærni. Samkvæmt nálguninni ætti ekki einungis að kenna fólki lestur og skrift heldur ætti einnig að leggja áherslu á að hvetja fólk til aðgerða í eigin samfélagi. Umræður um þróunarmál eru þannig samþættar starfi leshringjanna. Umræður af þessu tagi hafa einnig leitt til hugmynda um aðgerðir sem fullorðnir nemendur hafa samþykkt að standa að í samvinnu við aðra í samfélaginu og miðar að því að leysa vandamál þeirra. Aukin umræða hefur leitt til margs konar aðgerða á árinu 2009, þ.m.t. byggingar húss fyrir kennara, skólahúsa fyrir grunnskóla og kennsluskýla. Gestafyrirlesarar hafa einnig komið að verkefninu og m.a. fjallað um HIV/alnæmi, umhverfisstjórnun, fjölskyldustefnu og kynbundið ofbeldi.
Fullorðinsfræðsluverkefnið var kynnt forseta Malaví, Dr. Bingu wa Mutharika, á Alþjóðadegi kvenna í dreifbýli sem var haldinn hátíðlegur í Mangochi-héraði. Forsetinn kynnti sér afurðir hópanna sem njóta stuðnings verkefnisins til að skapa atvinnu og staðfesti mikilvægi slíkrar starfsemi til að vinna gegn fátækt. Ellefu atvínnuskapandi verkefnum var komið á fót 2008 fyrir þátttakendur í leshringjum til að bæta fjárhagslega stöðu þeirra. Verkefnin taka m.a. til geitabúskapar, grænmetisræktunar og alifuglaræktar. Alls hafa 156 þátttakendur í leshringjum notið góðs af þessum atvinnuskapandi verkefnum. Tekið hefur verið upp nýtt kerfi í verkefnum með geitur þar sem fyrstu kvenkyns afkvæmunum er deilt út til annarra þátttakenda í leshringnum. Samkvæmt þessu kerfi njóta fleiri fullorðnir nemendur hags af þeim.
Á árinu 2009 var lokið við byggingu félagsmiðstöðvar í Monkey Bay, þ.m.t. tvö starfsmannahús. Í félagsmiðstöðinni eru skrifstofur fyrir þá opinberu starfsmenn sem starfa að fullorðinsfræðslu, ráðstefnusalur, herbergi fyrir málstofur og kennslueldhús. Landsbókasafnið hyggst koma á fót bókasafni í félagsmiðstöðinni. Á lóðinni er verið að reisa vatns- og hreinlætisaðstöðu þ.m.t. handgrafna grunna brunna sem munu sjá grænmetis- og ávaxtagarði miðstöðvarinnar fyrir vatni. Vistvæn salerni hafa verið sett upp sem fólk sem heimsækir miðstöðina getur skoðað og líkt eftir á eigin heimilum. Sjálfboðaliðar í samfélaginu hafa einnig fengið þjálfun í vistmenningu og vinna að því að breyta lóðinni í grænt og frjósamt svæði. Rafmagni hefur enn ekki verið komið á í miðstöðinni og af þeim sökum mun opnunin dragast til 2010.
Áætluð verklok:
Desember 2010. Þá verður á grundvelli úttektar á verkefninu tekin ákvörðun um hvort því verður framhaldið eða ekki.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is