Stuðningur við grunnskólamál í Mangochi héraði - verkefninu lauk á árinu 2009
Heiti Verkefnis – Svið:
Grunnskólaverkefnið – menntamál.
Samningur og samstarfsaðilar:
Samningur er á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og héraðsyfirvalda í Mangochi héraði. Samningurinn er endurnýjaður árlega. Verkefnisskjalið er til ársins 2010, en byggist einungis á tillögum um framkvæmdir, allt eftir því hversu miklir fjármunir eru til ráðstöfunar fyrir þetta tiltekna verkefni. Þetta verkefni er öðruvísi en önnur verkefni, eins konar harmóníkuverkefni, þar sem eins og áður sagði fara framkvæmdir eftir því hversu mikið ráðstöfunarfé er fyrir hendi.
Lýsing og markmið:
Markmið verkefnisins er að aðstoða malavísk yfirvöld í að bæta menntakerfið í Mangochi héraði með því að byggja og endurbæta skóla, sem og veita stuðning við þjálfun í héraðinu. Með þjálfuninni er lögð áhersla á mikilvægi menntunar og höfðingjar, foreldrar, kennarar og aðir máttarstólpar hvattir til að senda börn sín í skóla. Árið 1994 varð menntun ókeypis í landinu og jókst því fjöldi skólabarna gífurlega, ekki hefur tekist að koma til móts við þessa aukningu og því hefur ÞSSÍ verið að aðstoða menntayfirvöld í landinu.
Í heildina hefur stuðningur ÞSSÍ við grunnskóla í héraðinu gagnast um 20.000 börnum.
Framvinda:
Verkefnið hefur verið í gangi allt frá 1995 þegar fyrsti grunnskólinn var byggður, en hefur á undanförnum árum stækkað mikið. Síðan þá er sjöundi grunnskólinn í byggingu, búið er að byggja einn framhaldsskóla og gerðir hafa verið upp í kringum 10 skólar á svæðinu. Skólarnir sem byggðir hafa verið eru allir fullbúnir skólar, þ.e.a.s. með skólastofum, stjórnunarbyggingu, bókasafni, salernisaðstöðu, kennarahúsum og húsgögnum. Þeir skólar sem hafa verið endurbættir hafa margir hverjir verið í slæmu ásigkomulagi og hafa fengið algjöra andlistlyftingu og einnig húsgögn. Þjálfunarhlutinn er svo mikilvægur samhangandi þáttur við byggingarframkvæmdirnar, því í Malaví er mjög hátt brottfall nemenda.
Úr ársskýrslu 2008:
Einn grunnskóli, St. Augustine I, var reistur í Mangochi Boma árið 2008 og eru nemendur þar um 4.000. Verkefnið var fremur umfangsmikið og tók til byggingar fjögurra skólahúsa, húss fyrir yfirstjórn, gerð salernisaðstöðu og umfangsmikillar endurnýjunar á eldri skólabyggingum. Að auki var skólanum látin í té húsgögn sem verða afhent 2009. ÞSSÍ fjármagnaði endurnýjun á þremur grunnskólum, í Mponya í Traditional Authority Nankumba, í Masasa og í Malenga sem eru nær Mangochi Boma. Skólabyggingar, salernisaðstaða og hús kennara voru endurnýjuð og skólunum útveguð húsgögn sem afhent verða 2009. Bunda-grunnskólinn í Lilongwe fékk aðstoð. Samfélagið óskaði eftir aðstoð ÞSSÍ við að ljúka við byggingu sem er ætluð fyrir rannsóknarstofu, bókasafn og börn sem eiga við námserfiðleika að stríða. Samfélagið sá um allar framkvæmdir. Húsgögn voru útveguð.
Verkefnið National Nutrition, HIV & Aids Quiz Programme fékk styrk til að kynna starfsemi sína í framhaldsskólum í Mangochi-héraði.
ÞSSÍ studdi menntamálaskrifstofu Mangochi-héraðs og lagði fram fjármagn til fræðsluverkefna um vitundarvakningu samfélaga á svæðinu í skólastjórnun og grunnskólanámi til góða fyrir nemendur svæðisins.
Áætluð verklok: Fer eftir fjármagni.
Áhugavert:
Íslendingar afhenda nýjan skóla - myndband (Stefán Jón Hafstein, 2009)




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is