Fiskiþorpaverkefni - stuðningur við fiskimál í Mangochi héraði - verkefninu lauk á árinu 2009
Þessu verkefni lauk í lok árs 2009
Heiti verkefnis – Svið:
Fiskiþorpaverkefni (Small Scale Offshore Fisheries Technology) - fiskimálaverkefni
Samningur og samstarfsaðilar:
Samningur um fiskiþorpaverkefnið er á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og umhverfis- og auðlindaráðuneytis Malaví. Fiskideild þessa ráðuneytis sér um framkvæmdahluta verkefnisins.
Samningurinn var gerður 2005 og er áætlað að verkefnið muni standa í þrjú ár.
Lýsing og markmið:
Verkefnið er unnið á Nankumba svæðinu sem liggur við suðurhluta Malavívatns. Verkefnið nær til rúmlega tvö þúsund manns sem hafa lífsviðurværi sitt af að veiða eða selja fisk. Fiskafli hefur minnkað verulega undanfarin ár sem hefur leitt til þess að fiskimenn hafa þurft að sækja lengra út á vatnið en áður til að sækja aflann.
Verkefnið miðar fyrst og fremst að því að bæta öryggi fiskimanna með því að hanna og sannprófa nýjan búnað fyrir veiðar á dýpra vatni. Með betri búnaði er vonast til þess að veiði aukist, mataröryggi tryggist og slysatíðni minnki.
Framvinda:
Veiðibúnaður í þorpunum var endurhannaður og betrumbættur með tilliti til betri árangurs á veiðum á dýpra vatni og öryggis fiskimanna. Eftir að hafa tekið þátt í rannsókn á vegum verkefnisins hafa fiskimenn endurbætt þrjár tegundir af veiðarfærum.
Rannsóknir hafa verið stór hluti af verkefninu þar sem meðal annars hefur verið kannað öryggi eintrjánunga sem mest eru notaðir til veiða, þekking veiðimanna á helstu hættum og hvernig sé best að bregðast við. Niðurstöður sýndu að fiskimenn á smábátum höfðu ekki fengið formlega þjálfun líkt og þeir sem vinna á stærri bátum.
Námskeið hafa verið haldin í þorpunum til að þess að fá íbúa til að merkja strendur, styrkja fiskimannaráð sem starfa í hverju þorpi og útbúa veggspjöld, myndbönd og bæklinga um öryggisatriði á vatninu.
Úr ársskýrslu 2009:
Fiskveiðiverkefni ÞSSÍ við Malavívatn lauk í árslok 2009. Ákveðið var við úttekt á verkefninu síðla árs 2008 að framlengja um eitt ár, þótt verkefnistími væri liðinn, svo unnt væri að ljúka mikilvægum þáttum verkefnisins. Megintilgangur þess var að þróa báta og veiðarfæri sem nota mætti til að sækja fisk á dýpri mið en nú tíðkast. Fiskimenn sem búa við ströndina nota einkum eintrjáninga sem eru hættulegir á djúpslóð og ráða ekki við öflug veiðarfæri. Auk þess er talið að um ofveiði sé að ræða með ströndum en utar séu ónýttir stofnar.
Smíðaðir voru tveir trébátar af heimamönnum með viði sem fæst í Malaví. Bátarnir, sem voru stærri en hefðbundnir bátar, þóttu standast próf hvað varðar stöðugleika. Efni og gerð annars bátsins sem var smíðaður af heimamönnum var ábótavant en hinn báturinn sem var smíðaður úr krossviði af völdum innlendum bátasmið tókst betur og nýtist sem fyrirmynd. Líklegast er að trefjaplastbátur standist kröfur um veiðar á djúpslóð. Veiðarfærapróf stóðu 2008-2009 og voru bráðbirgðaniðurstöður ekki afgerandi. Sérfræðingur sem gerði könnun á þeim síðla árs 2009 kom með ábendingar sem nota má varðandi framþróun veiðarfæra til þeirra nota sem ætlað var í upphafi.
Innan verkefnisins voru einnig skipulögð námskeið í öryggismálum fyrir fiskimenn. Fiskimenn lenda oft í slæmum veðrum á vatninu og slys eru tíð og því þótti mikilvægt að efla þennan fræðsluþátt með öðru, sem var og gert í nánu samstarfi við fiskiyfirvöld á svæðinu. Alls sóttu 3.123 þátttakendur námskeiðin og talað er um að slysum hafi fækkað á vatninu í kjölfarið. Einnig var boðið upp á fræðslu um rekstrarmál með það að markmiði að bæta lífsgæði meðal fiskimanna og –seljenda, með því að auðvelda þeim að auka tekjur af sölu með bættri meðferð og markaðssetningu. Góður rómur var gerður að því og nutu 739 þjálfunar, þar af voru konur 45%. Að auki var útbúin handbók um fiskverkun og –vinnslu fyrir veiðimenn og verkendur.
Þá var opnuð fiskvinnslustöð við Apaflóa, í þorpinu Madzedze, til að veita fræðslu um fleiri vinnsluhætti en nú tíðkast og koma upp betri aðstöðu til að vinna fisk. Hægt er að þurrka og reykja fisk, leggja að með afla og skýli er á staðnum. Aðstaðan er rekin af fiskiyfirvöldum á svæðinu því ætlunin er að heimamenn við vatnið nýti sér þessa aðstöðu.
Áætluð verklok:
Verkefninu lauk í árslok 2009.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is