Stuðningur við fiskeldismál í Bunda háskóla - verkefninu lauk á árinu 2009

Heiti verkefnis – svið:

Stuðningur við fiskeldisnám í Landbúnaðarháskólanum Bunda – menntamál.

Samningur og samstarfsaðilar:

Samningur er á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og Landbúnaðarháskólans Bunda. Samstarf hefur verið milli þessara tveggja stofnanna frá árinu 1993. Núgildandi samningur er frá 2005 til 2009. Úttekt verður gerð á verkefninu seinni hluta ársins 2008 til að meta hvort stuðningi við verkefnið verði haldið áfram.

Lýsing og markmið:

Markmið verkefnisins er að auka mataröryggi og draga úr fátækt í Malaví með því að veita fé og þekkingu til Landbúnaðarháskólans Bunda á sviði fiskeldis og fiskvinnslu.

ÞSSÍ skuldbindur sig til þess að veita efnilegum nemendum frá Suðurhluta Afríku skólastyrki til meistara- og doktorsnáms auk þess að styðja við rannsóknir og gefa út niðurstöður. Einnig sendir ÞSSÍ tæknilegan ráðgjafa einu sinni á ári og veitir fjárhagslegan stuðning við innviði og stjórnsýslu deildarinnar.

Framvinda:

ÞSSÍ hefur styrkt Bunda háskóla frá 1993. Fiskifræðideildin hefur stækkað ört á þessum tíma. Hún byrjaði sem undirgrein dýrafræði en er nú orðin sérdeild sem býður upp á grunn- og meistaranám í fræðunum. Fjölmargir nemendur frá Malaví og nærliggjandi löndum hafa fengið styrk til þess að stunda nám við háskólann og vinna að rannsóknum sínum. Kennarar hafa einnig átt kost á því að auka við menntun sína. Aðbúnaður skólans hefur verið bættur með nýjum tölvum, húsgögnum og endurbótum á bókasafni. Vefsíða fyrir skólann var sett upp á síðasta ári og slóðin er

http://www.bunda.unima.mw/aqua/aqua_home.htm

Áætluð verklok:

Desember 2009





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica