Vatns- og hreinlætisverkefni í Mangochi hérað - verkefninu lauk á árinu 2010

Heiti verkefnis – svið:

Vatns- og hreinlætisverkefni í Traditional Authority Nankuma (TA Nankumba) í Mangochi héraði 2006-2010 – heilbrigðismál.

Samningur og samstarfsaðilar:

Samningur er á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og ríkisstjórnar Malaví.

Samstarfsaðilar eru ráðamenn Monkey Bay svæðis, fulltrúar frá ráðuneytum heilbrigðismála, vatns og áveitukerfa og jafnréttismála, yfirvöld Mangochi héraðs á sviðum heilbrigðis- og vatnsmála auk íbúanna sjálfra.

Lýsing og markmið:

Meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að bættri heilsu og heilbrigði íbúa Mangochi héraðs og þar með bættum hagi íbúa. Sjúkdómar hamla því að fólk geti sótt vinnu og börn geti sótt skóla. Sjúkdómar sem orsakast af óhreinu drykkjarvatni og óhreinlæti eru algengir líkt og niðurgangur og kólera, en reglulega hafa brotist út kólerufaraldrar og hafa allt að 33.000 manns smitast og 100 manns látist á ári hverju í TA Nankumba (sem er ein níu hefðbundinna sýslan í Mangochi héraði). Óhreint og mengað drykkjarvatn og illa frá gengin salerni laða einnig að skordýr eins og moskító flugur sem eykur stórlega hættu á malaríusmiti. Unnið er náið með stjórnvöldum með það að markmiði að aðstoða þau við að ná þúsaldarmarkmiðum landsins um þróun og eigin markmiðum um efnahagslegan vöxt og þróun.

Leitast er við að bæta aðgang að hreinu drykkjarvatni, auka meðvitund íbúa um gildi hreinlætis og útbúa salernisaðstæður í þorpunum. Megináhersla er lögð á það í verkefninu að bæta hreinlæti meðal markhópsins, bæta úr hreinlætisaðstöðu og bæta aðgengi að neysluhæfu vatni. Þetta verður gert með því að koma á vatns- og hreinlætiskerfum sem verða sett upp ef óskað er eftir því og gegn því að umbylting vatns- og hreinlætismála verði með þátttöku grasrótarinnar. Ekki síst þátttöku kvenna sem sjá að mestu um að flytja vatn og meðhöndla. Því er lögð rík áhersla á þátttöku þeirra í verkefninu. Með virkri þátttöku íbúanna sjálfra er reynt að tryggja sjálfbærni verkefnisins, þ.e. að þekkingin haldist á meðal heimamanna löngu eftir brotthvarf ÞSSÍ af svæðinu. Taka skal fram að ÞSSÍ leggur ríka áherslu á að frumkvæði og óskir um vatnsból komi frá íbúunum sjálfum og að skýrt sé að eignarhaldið er þeirra og þar með ábyrgð á viðhaldi vatnsbóla, rekstri og öryggi. Í því skyni leggja íbúarnir sjálfir til takmarkað fé, efni og vinnuafl til að byggja vatnsból og vistvæn salerni.  Af sömu ástæðu leggur ríkisstjórn Malaví einnig fjármagn til verkefnisins. Stefnt er að því að byggja 300 brunna (vatn á litlu dýpi), bora 100 borholur, endurbæta 50 vatnsból (brunnar og borholur) og byggja 28,000 vistvæn salerni á verkefnistímanum.

Framvinda:

Í mars 2007 var undirritaður samningur milli ÞSSÍ og ríkisstjórnar Malaví og hófst verkefnið stuttu síðar. Verkefnið nær til heilbrigðissvæðis Monkey Bay (TA Nankumba), á Nankumba-skaganum, en þar eru 98 þorp með 21.300 heimilum og íbúafjölda um 109.000 manns. Á árinu 2007 voru boraðar 30 borholur, 37 brunnar grafnir og komið upp ríflega 3 þúsund vistænum klósettum. Á árinu 2008 er stefnt að því að grafa fyrir 150 brunnum, bora 30 borholur og byggja 8 þúsund vistvæn salerni.

Úr ársskýrslu 2010:

Þessu verkefni lauk formlega í desember 2010 og Glúmur Baldvinsson verkefnisstjóri lét af störfum þar með. Auk þess færðist um 20 manna starfshópur hagamanna (Field Workers) yfir til héraðsstjórnar um tíma með því að hérað yfirtók nokkra verkefnisþætti sem út af stóðu í árslok. Ætlunin er að í framtíðinni veiti ÞSSÍ héraðsstjórn stuðning til að bæta aðgang að vatni og efla hreinlæti. Þess gætir nú á áhrifasvæði verkefnisins að kólerutilfellum fækkar. Alls var varið nær 3,3 milljónum bandarískra dala til verkefnisins árin 2007-2010.

Á verkefnistímanum voru gerð um 400 vatnsból í Nankumba héraði og veitt þjálfun og fræðsla um hreinlætismál. Stofnaðar voru vatnsmálanefndir í öllum þorpum sem fengu vatnsból. Heimamenn lögðu fram vinnu og grunnefni eftir atvikum en ÞSSÍ annað efni og kunnáttumenn. Vatnsból voru gerð með borholum, brunnum, eða með endurgerð gamalla og ónýtra vatnsbóla. Einnig var gert átak í hreinlætismálum og um 14.000 kamrar gerðir í átakinu. Í verkefnislok hefur Nankumba sveitinni nú verið þjónað að fullu og öllu og 20 þúsund heimilum sem þar eru veittur aðgangur að hreinu og nothæfu vatni í innan við 500 metra göngufjarlægð. Vatnssýni eru tekin til að tryggja gæðaeftirlit.

Í mati á árangri kemur fram það álit starfsmanna ÞSSÍ að fylgja þurfi eftir hreinlætisþættinum á næstu árum og veita fyllri fræðslu um þau mál í byggðunum.

Meðal þess sem læra má af verkefninu er að náið samstarf þarf að vera við heilbrigðisyfirvöld þar sem vatns- og hreinlætisverkefni snertir í raun marga heilbrigðsþætti. Margir heilbrigðisstarfsmenn starfa í sveitum (Health Suveillance Assistants) en ekki var unnt að virkja þá innan verkefnisins eins og þurft hefði frá upphafi. Því voru þjálfaðir starfsmenn á vegum verkefnisins til að efla fræðslu um heilbrigðisþáttinn.

Verkefni eins og þetta snýr þó ekki bara að heilbrigðisþættinum heldur líka fræðsluþætti og því að breyta venjum fólks. Ekki má ofmeta getu afmarkaðra verkefna til að breyta hugsunarhætti og lífsvenjum fólks á stuttum tíma. Eftirfylgni er því nauðsynleg þegar búið er að koma á laggirnar þeim vatnsbólum sem stefnt var að.

Þá þarf að fylgja því eftir að vatnsnefndir starfi, viðhald sé gott og framlög heimamanna til viðhalds nægi. Viðskilnaður verkefnisins er því sá að tryggja þurfi þann árangur sem náðst hefur með áframhaldandi stuðningi og fræðslu.



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica