Stuðningur við sjávarútvegsráðuneyti Mósambíkur - þríhliða stuðningur með Norðmönnum

 

Heiti verkefnis – svið:

Stuðningur við sjávarútvegsráðuneytið – þríhliða samstarfsverkefni með Norðmönnum (Preparing Cooperation between ICEIDA and Norwegian UD on Joint Support to the Ministry of Fisheries)

Samningur og samstarfsaðilar:

Verkefnið er samstarfsverkefni ÞSSÍ, Sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík og Norska utanríkisráðuneytisins. Samstarfssamningurinn gildir tímabilið 2009-2013.

Samkomulagið felur í sér fyrstu samfjármögnun Íslendinga í þróunarsamvinnu en bæði Norðmenn og Íslendingar hafa stutt við fiskimál í Mósambík um langt skeið með tæknilegri og fjárhagslegri aðstoð.

Lýsing og markmið:

Framvinda - úr árskýrslu 2010

Stuðningur ÞSSÍ við fiskimál í Mósambík markast annars vegar af víðtækri verkefnastoð (e.Programme-Based Approach - PBA) sem er samfjármögnuð með Noregi og hins vegar verkefni varðandi Cahorra Bassa uppistöðulónið. Verkefnastoðin nýtir eingöngu innlend fjármálakerfi og framlögin renna beint í ríkissjóð, sem er nýlunda fyrir fiskimálaráðuneytið og stofnanir þess.

Á árinu 2010 urðu umtalsverðar tafir á samþykkt fjárlaga mósambíska ríkisins. Þessar ytri aðstæður hindruðu fiskimálaráðuneytið og stofnanir þess í að hefjast handa við viðfangsefni verkefnastoðarinnar. Þá urðu einnig frekari tafir vegna flækju sem fylgdi því að stofna aðskilda reikninga fyrir hvern framkvæmdaraðila og því að samþætta verkefnastoðina við fjármálakerfi ríkisins. Það var fyrst í júní 2010 sem allir aðilar höfðu komið reglu á fjármálakerfin og unnt var að taka á móti fjárframlögum úr sameiginlega sjóðnum. Í lok þessa fyrsta framkvæmdaárs verkefnastoðarinnar tókst einungis að framkvæma um 50% af áætluðum aðgerðum og afraksturinn því mun minni en vonast var til.

Veigamiklum og dýrum verkþáttum var frestað fram á árið 2011 sem setti jafnvægi áhersluþátta í nokkuð uppnám. Það er skýr krafa framlagsríkja að 25% stuðningsins að lágmarki renni til aðgerða sem koma grasrótinni þ.e. fólkinu í fiskimannasamfélögunum, til góða.

Helstu viðfangsefni verkefnisstoðarinar á árinu 2010 tengdust viðfangsefnum ráðuneytisins sjálfs þ.e. landhelgisgæslu, fiskveiðieftirliti og stjórnun. Afrakstur á þeim sviðum var ágætur. Mósambísk fiskimálayfirvöld lögðu mikla áherslu á baráttuna gegn ólöglegum veiðum í landhelginni með reglubundnum ferðum varðskips sem þau hafa á leigu, styrkingu eftirlitskerfa og endurbyggingu á skipi, sem yfirvöld gerðu upptækt árið 2009 og ætlað er að breyta í varðskip. Einnig tóku stjórnvöld þátt í fjölþjóðlegum undirbúningi fyrir samþættar, svæðisbundnar aðgerðir gegn ólöglegum veiðum. Þótt afrakstur innan verkefnisins hafi verið með minna móti hjá ýmsum stofnunum þá sinntu þær auðvitað sínum lögbundnu skyldum. Það voru einkum byggingaframkvæmdir, stór ráðgjafaverkefni og þess háttar sem þurfti að fresta fram á árið 2011. Það var helst fiskieldisstofnunin sem náði að framkvæma áætlaðar aðgerðir sem einkum beindust að þjálfun fiskeldisbænda. Mikið starf var unnið við samræmingu og samhæfingu hinna ýmsu gagnagrunna sem til eru innan ráðuneytisins og stofnana þess. Stofnun hefðbundinna fiskveiða (e. Institute of Small Scale fisheries) náði einnig að undirbúa og skipuleggja viðamiklar aðgerðir sem framkvæma á í sjómannasamfélögum um allt land á næsta ári. Undirbúningi sjóminjasafns var haldið áfram og hillir nú undir útboð á byggingu safnsins sem verður staðsett við fiskihöfnina í miðbæ  Mapútó. Fiskiskólinn hélt sínu striki og bauð uppá námskeið á ýmsum stöðum úti á landi.

Stór áfangi náðist í viðfangsefnum stjórnvalda þegar langtímaáætlun fiskimála var samþykkt í október 2010. Meginmarkmið áætlunarinnar er að auka framlag fiskveiðigeirans til fæðuöryggis. Áætlunin miðar einnig að því að bæta lífsskilyrði í fiskimannasamfélögum og afrakstur fiskveiðigeirans. Ætlunin er að auka framlag fiskveiða og fiskeldis til að ná settri efnahags- og félagsþróun og auka nettó framlag fiskimála til greiðslujöfnuðar ríkisins. Einnig er ljóst er að þjóðinni vantar meira fiskprótín á komandi árum og líklegasta leiðin til að auka framboð af þeim er með auknu fiskeldi. Það markverðasta í skipulaginu er án efa að ætlunin er að afrakstur fiskeldis verði 80 þúsund tonn í lok tímabilsins 2019, en heildar framleiðslan var aðeins 450 tonn árið 2009. Stórt átak þarf því að eiga sér stað til að ná þessum árangri. Ekki síst skortir aðkomu stærri fjárfesta því magnaukningin getur ekki byggst eingöngu á smábændum. Stjórnvöld hyggjast því gera átak í því að laða að erlenda fjárfesta.

Margvíslegar aðgerðir og áætlanir um hvernig leysa mætti ýmiss konar hagsmunaárekstra voru ofarlega á dagskrá, enda strandlengjan löng og margskonar starfsemi í gangi auk hefðbundinna fiskveiða, svo sem nýting skelfisks, fiskeldi, ferðamannaþjónusta, gasvinnsla og olíuleit. Í lok september 2010 fóru fulltrúar úr stjórn verkefnastoðarinnar í vinnuheimsókn til nyrsta héraðsins í Mósambík til að skoða hvernig samþætta megi sjónarmið yfirvalda á friðlýstum svæðum og sjómanna. Heimsótt var eyjasamfélag þar þar sem er að finna 750 þúsund hektara þjóðgarð sem bæði er vinsæll ferðamannastaður og með fengsæl fiskimið. Tekist hefur að því er virðist ágætt samstarf milli sveitarfélagsins, stjórnar þjóðgarðsins, ferðaskrifstofa og sjómanna um að flétta saman vistvæna ferðaþjónustu, verndun sjávardýra og svæðisbundna fiskveiðistjórnun.

Áætluð verkslok:

Árslok 2013



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica