Samstarfsverkefni ÞSSÍ og Rauða Krossins - heilbrigðissvið - verkefninu lauk á árinu 2009
Samningur og samstarfsaðilar:
Verkefnið er samstarf ÞSSÍ og Rauða kross Íslands unnið í samstarfi við Rauða krossinn í Mósambík og mósambísk heilbrigðisyfirvöld.
Lýsing og markmið:
Samstarf ÞSSÍ og Rauða krossins hófst árið 1999 þegar heilsugæslustöð í Hindane í Mapútó héraði var byggð ásamt skyndihjálparstöðvum, brunnum og kömrum en hún þjónar nú 5000 íbúum á svæðinu. Stuðningur við verkefnið er tryggður til ársloka 2008 en áfram verður lagt fjármagn í þjálfun og uppbyggingu á sjálfboðaliðastarfinu. Yfir 100 sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa verið þjálfaðir í að sinna almennri heilbrigðisfræðslu og aðhlynningu.
Árið 2005 var komið á laggirnar öðru heilsugæsluverkefni í Maputo sýslu, en það átti sér stað í kjölfar samræðna milli Rauða krossins í Mósambík og heilbrigðisráðuneytisins um veikburða samfélög í Chibucutso í Manhicahéraði. Mósambíski rauði krossinn er framkvæmdaaðili verkefnisins með fjármagni og tæknilegri aðstoð frá RKÍ. Aðkoma ÞSSÍ að verkefninu er í formi fjárstuðnings. Þetta heilsugæslusvæði þjónar um 8.000 íbúum.
ÞSSÍ styður einnig við leikskóla, barnaheimili og barnaathvarf sem RKÍ hefur aðstoðað. Árið 2008 fara fram viðgerðir á húsnæðinu þar sem það heldur ekki rigningu og allt fer á flot.
Framvinda - úr ársskýrslu 2009:
ÞSSÍ hefur átt í samstarfi við Rauða kross Íslands (RKÍ) og Rauða kross Mósambíkur (RKM) á sviði heilbrigðismála frá árinu 2000. Heilsugæsluverkefnin í Mapútó-sýslu eru í samfélögunum sjö í Chibucutso í Manhica-héraði og Hindane í Matutuine-héraði. Sveitirnar eru afskekktar, samgöngur erfiðar og langt í næstu læknisþjónustu.
RKM sér um framkvæmd verkefnisins og nýtur til þess tæknilegrar aðstoðar RKÍ, sem og fjárstuðnings frá ÞSSÍ og RKÍ. Markmið verkefnanna eru þríþætt: að auðvelda aðgang að heilbrigðisþjónustu, þróa samfélagsbundna heilbrigðisstarfsemi með aðstoð þjálfaðra sjálfboðaliða og að styrkja staðbundið skipulag og starf RKM.
Heilsugæslustöðvarnar og útstöðvar þeirra, sem byggð voru, starfa samkvæmt áætlun. Sjálfboðaliðar í heilbrigðisþjónustu og yfirsetukonur á báðum stöðum veittu samfélögunum þjónustu sína. Heilsuliðarnir fræða um hreinlæti, smitleiðir og meðhöndlun algengustu sjúkdóma, s.s. niðurgangs, malaríu, berkla og alnæmis. Til að hefta malaríuna enn frekar var dreift moskítónetum og fræðsla veitt um notkun þeirra. Unnið var að því að bæta eftirfylgni með störfum heilsuliða og yfirsetukvenna. Ennfremur var byggt lítið mæðrahús, mest í sjálfboðavinnu þorpsbúa. Haldið var áfram við smíði kamra og skrifstofu fyrir staðarnefndina í Chibucutso.
Áfram var unnið eftir tillögum úttektar frá árinu 2008. Forvarnarstarf vegna HIV var aukið til muna, m.a. með jafningjafræðslu. Unnið var að sjálfbærni verkefnisins með þróun starfsemi sem gefur af sér tekjur og leiðbeiningum eða starfsviðmiðum fyrir landsfélagið um hina ýmsu þætti verkefnanna og lúkningu þeirra.
Áætluð verklok:
Verkefninu lauk í árslok 2009.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is