Endurbætur á aðbúnaði í skólum Mapútó - Verkefninu lauk á árinu 2009
Þessu verkefni lauk á árinu 2009
Heiti verkefnis – svið:
"Upgrading of Primary Svhools in Maputo City" - Stuðningur við endurbætur á aðbúnaði í grunnskólum Mapútóborgar.
Samningur og samstarfsaðilar:
Samstarfið er á milli ÞSSÍ og fræðsluyfirvalda í Mapútóborg undir efitrliti menntamálaráðuneytisins.
Lýsing og markmið:
Grunnskólarnir í Mapútó eru allir þrísetnir og sumir fjórsetnir og í flestum þeirra eru skólahúsgögn ekki til staðar. Markmiðið er að bæta námsaðstöðu nemanda með því að útvega skólahúsgögn svo nemendur þurfi ekki að sitja á gólfinu, auk þess að koma upp salernisaðstöðu við þá skóla sem verst eru staddir. Með verkefninu vonast ÞSSÍ til að með því að bæta aðstöðu nemenda muni fleiri börn sækja skóla og að gæði kennslunar fari batnandi. Með áframhaldandi stuðningi er einnig gert ráð fyrir að rekstur skólanna fari batnandi. Árið 2007 fengu fjórir skólar aðstoð með 6.966 nemendurm alls.
Framvinda:
Í upphafi var um að ræða tilraunaverkefni milli fræðusluyfirvalda í Mapútó og ÞSSÍ um endurbætur á aðbúnaði grunnskóla í Mapútó. Smíðuð voru tæplega sjöhundruð sambyggð borð og bekkir sem hvert um sig tekur tvo til þrjá nemendur. Verkefnið gekk vel og er stefnt á frekara samstarf milli ÞSSÍ og fræðsluyfirvalda við endurbætur í grunnskólum Mapútóborgar.
Úr ársskýrslu 2008:
ÞSSÍ og menntamáladeildin í Maputo undirrituðu skjal, Upgrading of Primary Schools in Maputo City – A Proposal for Assistance, í kjölfar beiðni sem barst 2006 um að aðstoða og útvega grunnskólunum í Maputo skólahúsgögn og að bæta hreinlætisaðstæður í skólunum. Í árslok 2008 hafði ÞSSÍ aðstoðað átta skóla með alls 15.790 nemendum. Nemendafjöldinn í síðustu tveimur skólunum sem nutu aðstoðar 2008 er 5.772.
Áætluð starfslok:
Árslok 2010




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is