Alþjóðleg faggilding á rannsóknarstofum - verkefninu lauk á árinu 2009
Heiti verkefnis - svið:
Stuðningur við Sjávarútvegsráðuneytið í Mósambík við að undirbúa rannsóknarstofur ráðuneytisins undir umsókn á faggildingu samkvæmt alþjóðlegum stöðlum - fiskimál.
Samningur og samstarfsaðilar:
Verkefnið er áætlað til tveggja ára, 2006 til 2008. Það er unnið í samvinnu við ríkisstjórn Mósambíkur en samstarfsaðili er Skoðunarstofa fiskafurða sjávarútvegsráðuneytisins í Mapútó.
Lýsing og markmið:
Markmið verkefnisins er að aðstoða þrjár rannsóknarstofur ráðuneytisins við undirbúning að umsókn á faggildingu samkvæmt alþjóðastaðli ISO/IEC 17025:2000. Stefnt er að undirbúa starfsemi rannsóknarstofunnar í Mapútó fyrir umsóknina sem höfuð-rannsóknarstofu en að tvær aðrar rannsóknarstofur, í Beira og Quelimane, verði viðurkenndar sem útibú og því því ekki að sækja sérstaklega um faggildinu fyrir þær.
Framvinda:
Verkefnið var samþykkt í byrjun árs 2006 og hófst endanlega í maí 2006 með komu íslensks verkefnisstjóra sem hefur aðsetur í Mapútó. Unnið er með starfsfólki rannsóknarstofunnar í Mapútó og farnar vinnuferðir á hinar tvær stofurnar. Reiknað er með að allt að einu og hálfu ári í að koma upp skjalfestu gæðakerfi, koma tækjum og vinnuumhverfi stofana í ásættanlegt ástand ásamt nauðsynlegri þjálfun starfsfólks.
Úr ársskýrslu 2008:
Þau tvö svið sem fengu mestan stuðning 2008 voru áframhaldandi þróun gagnagrunns og undirbúningur fyrir faggildingu rannsóknarstofanna. Íslenskur sérfræðingur var ráðinn til að fara yfir faggildingarskjölin og er gert ráð fyrir að faggildingu verði lokið innan 18 mánaða. Mögulega verður unnt að leggja fram forumsókn vegna faggildingar í júní eða júlí 2009. Evrópusambandið hefur gefið frest til 2010 til að ljúka faggildingu. Undirbúningi fyrir faggildingu samkvæmt verkefnasamningi ÞSSÍ og sjávarútvegsráðuneytisins, var lokið í desemberlok 2008 fyrir rannsóknarstofurnar í Maputo og Beira og þar með hefur sá samningur verið uppfylltur. Enn liggur fyrir nokkur vinna til undirbúnings faggildingar fyrir rannsóknarstofuna í Quelimane. Lokið er að mestu uppsetningu gagnagrunns sem mun hýsa eftirlitsgögn en þörf er fyrir frekari tækniaðstoð og festa þarf kaup á tölvubúnaði. Gagnagrunnurinn var verulega bættur á árinu, og í Maputo var komið til framkvæmda þjálfunaráætlun og ráðgjöf í apríl 2008. Fiskeftirlitsstofnunin hefur nú rannsóknaraðstöðu með tilkomu tveggja nýrra rannsóknarstofa í norðursýslunum Nampula og Cabo Delgado sem voru reistar og búnar tæknibúnaði 2007-2008. Að auki voru útveguð húsgögn og búnaður fyrir húsnæði fulltrúa Fiskeftirlitsstofnunarinnar á báðum stöðum og veitti ÞSSÍ einnig þann stuðning. Nýja rannsóknarstofan í Angoche var opnuð formlega í mars 2008. Í september var röðin komin að því að opna nýju rannsóknarstofuna í Nacala.
Áætluð verkefnislok:
Fyrir árslok 2008.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is