Fiskirannsóknir á Cahora Bassa
Heiti verkefnis – svið:
Fiskirannsóknir á Cahora Bassa
Samningur og samstarfsaðilar:
Samstarfsverkefni ÞSSÍ og Sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík
Lýsing og markmið:
ÞSSÍ vinnur í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun Mósambíkur að rannsóknum á uppistöðulóninu við Cahora Bassa stífluna í Tete sýslu sem er í norðurhluta Mósambík. Verkefnið er til fimm ára og snýst um rannsóknir á vatninu sem nú er farið að gefa af sér mikinn fisk. Fisktegundin sem veiðist mest af er Kapenda sem er smáfiskur og líkist loðnu en er þó mun smærri. Verkefnið snýr aðallega að rannsóknum á umhverfisáhrifum við vatnið og veiðieftirliti. Markmiðið með verkefninu er að í framtíðinni verði hægt að stjórna veiðum betur og nýta vatnið á sjálfbæran hátt.
Framvinda - Úr ársskýrslu 2008:
Fiskirannsóknarverkefnið í Cahora Bassa, II. áfangi, hélt áfram 2008 og er áætlað að verkefninu ljúki í desember 2010. Vísindaþættinum og þætti er varðar uppbyggingu á færni og þekkingu innan viðkomandi deildar Hafrannsóknarstofnunarinnar á svæðinu hefur verið komið til framkvæmda með fullnægjandi hætti. Gagnasöfnun og greiningu er lokið og starfsferlum komið á við hljóðmælingar í vatninu. Tveir embættismenn hjá stofnuninni héldu áfram í mastersnámi annars vegar og doktorsnámi hins vegar í greinum sem tengjast uppistöðulóninu í Cahora Bassa. Búið er að útvega og kaupa búnað (bátar og APNA-mælingatæki).
Áætluð verkslok:
Árslok 2010




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is