Fiskigæðamál - verkefninu lauk á árinu 2009
Heiti verkefnis – svið:
Stuðningur við þróun fræðsluverkefnis Fiskveiði- og Fiskvinnsluskólans, Escola de Pesca, um meðhöndlun og vinnslu sjávarfangs í þeim tilgangi að auka gæði og verðmæti fiskafurða í Mósambík – menntamál.
Samningur og samstarfsaðilar:
Samningurinn er á milli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík.
Lýsing og markmið:
Verkefnið byggir á að sett verða upp 4 til 8 námskeið sem hvert tekur 3 til 5 virka daga. Námskeiðin verða skipulögð af Escola de Pesca en kennd og haldin í hinum ýmsu sjávarplássum í Mósambík. Með þessu er ætlunin að stuðla að auknum gæðum fiskafurða, aukinni nýtingu þess sjávarfangs sem aflað er, auknum útflutningsmöguleikum ásamt auknum verðmætum fiskafurða á markaði. Þetta verkefni tengist fyrri verkefnum Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í uppbyggingu opinbers fiskigæðaeftirlits í Mósambik
Markmið verkefnisins er að koma á menntaverkefni sem stuðlar að auknum gæðum fiskafurða og þar með auknum afurðaverðmætum við fiskvinnslu og fiskveiðar í Mósambík. Yfirmarkmiðin eru að draga úr fátækt og stuðla að bættum fjárhag í Mósambík.
Framvinda:
Búið er að gera greiningu á þörf fyrir hin ýmsu námskeið og verið er að gera tölfræðigreiningu á þeirri þörf. Í september mun liggja fyrir hvaða námskeið verður lögð mest áhersla á að kenna og hvernig eftirspurnin eftir námskeiðum liggur fyrir í landinu. Í framhaldinu verður tekist á um að hanna námskeiðin. Það verðu gert með náinni samvinnu milli fagaðila frá Íslandi, sjávarútvegsráðuneytisins í Mósambík og Escola de Pesca.
Úr ársskýrslu 2008:
Framkvæmd verkefnisins Fish Quality Assurance of Fish Handling and Processing in Mozambique var haldið áfram 2008. Öllum áætluðum starfsþáttum hefur verið komið til framkvæmda með góðum árangri. Miklir áfangar hafa náðst, þ.m.t. endurnýjun skrifstofu verkefnisins, kaup á búnaði, þróun kennsluefnis, þjálfun kennara og námskeiðahald fyrir fiskiðnaðinn með áherslu á HACCP-gæðatryggingartækni og rekjanleikatækni í framleiðslu fiskafurða á vegum einstaklinga og smærri fyrirtækja. Ytri úttekt var gerð í nóvember 2008 og í henni var mælt með leiðum til að framlengja verkefnið. Lokaúttekt var lögð fram í desember 2008
Áætluð verklok:
Desember 2008




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is