Stuðningur við kvenna- og félagsmálaráðuneytið - verkefninu lauk á árinu 2009
Þessu verkefni lauk á árinu 2009
Heiti verkefnis – svið:
“Institutional Capacity Building of MMAS, Including the Advocacy of the Human Rights of Women” Verkefnið felst í stuðningi við innri uppbyggingu og starfsemi kvenna- og félagsmálaráðuneytisins í Mósambík og skrifstofu þess í fjórum af ellefu sýslum landsins.
Samningur og samstarfsaðilar:
Verkefnið sem er frá 2007-2008 er framhald af aðstoð við kvenna- og félagsráðuneytið sem hófst árið 2000. Megináhersla verkefnisins er stuðningur við Jafnréttisdeild ráðuneytisins: ,,The National Directorate of Women”, þá deild innan ráðuneytisins sem stýrir stefnumótun Mósambík í jafnréttismálum. ÞSSÍ styður einnig verkefni í þremur öðrum deildum ráðuneytisins og undirdeildum þess í Mapútó borg og Mapútó, Gaza og Inhambane héruðum.
Lýsing og markmið:
Verkefnið miðar að því að aðstoða kvenna- og félagsmálaráðuneytið við stefnumótun og framkvæmd áætlana í jafnréttismálum. Ráðuneytið var stofnað árið 2000 og starfsemi þess er enn í mótun. Við stofnun þess styrkti ÞSSÍ einkum þjálfun starfsfólks og endurbætur á húsnæði Jafnréttisdeildarinnar en síðar náði aðstoðin einnig til deilda sem heyra undir ráðumeytið í þremur héruðum á landsbyggðinni og í Mapútó borg.
Til að ná fram yfirmarkmiðum verkefnisins hafa verið skilgreind sértæk markmið:
- Að stuðla að aukinni getu ráðuneytisins í skipulagningu og stefnumótun, mannauðsstjórnun og þjálfun starfsfólks. Undir þetta fellur meðal annars að gera úttekt á mannauði ráðuneytisins og hvar skorti helst þjálfun og menntun. Síðan að gera áætlun fyrir þjálfun starfsfólks og styrkja forgangsverkefni í þjálfun starfsfólks. Einnig á að aðstoða ráðuneytið í að bæta áætlanagerð og eftirlit með verkefnum þeirra deilda á landsbyggðinni sem ÞSSÍ styrkir. Að auki styrkir ÞSSÍ 10 starfsmenn ráðuneytisins í háskólanám, veittir verða styrkir til starfsfólks í að sækja almenn og sértæk tölvunámskeið og héraðsskrifstofur verða aðstoðaðar við framkvæmd verkefna og bætur á aðbúnaði starfsfólks.
- Að aðstoða ráðuneytið við að berjast fyrir því að konur þekki rétt sinn og geti í auknum mæli notið þeirra mannréttinda sem þeim eru tryggð í stjórnarskrá landsins. Þetta felst meðal annars í að búa til aðgerðaráætlun gegn heimilisofbeldi, búa til gagnabanka sem aðgreinir upplýsingar eftir kyni og þjálfa ríkisstarfsmenn á landsbyggðinni í að miðla upplýsingum um nýju fjölskyldulögin og réttindi kvenna. Búið verður til fræðsluefni og tilraunaverkefni framkvæmt í fjórum héruðum þar sem áhersla er lögð á að auka samvinnu þeirra sem vinna að þessum málaflokki.
Framvinda - úr ársskýrslu 2009:
Stuðningi ÞSSÍ við kvenna- og félagsmálaráðuneytið lauk í ágúst 2009. Aðaláhersla var lögð á að ljúka samningsbundnum verkefnum við uppbyggingu stofnana ráðuneytisins. Þar var m.a. um að ræða verkefni á vegum mannauðsdeildar ráðuneytisins með sýsluskrifstofu Mapútó borgar, sem fólst í stefnumótunarvinnu og þjálfun starfsfólks. Annað aðalverkefnið var að ljúka starfi deildarinnar í Gazahéraði. Fram fór úttekt á samstarfi ráðuneytisins og ÞSSÍ á tímabilinu 2004-2008 auk þess sem unnið var að gerð lokaskýrslu fyrir tveggja ára framkvæmdatímabil verkefnisins (2007-2008).
Haldin voru ýmis námskeið í Mapútó í tengslum við þetta með það að markmiði að byggja upp þekkingu og færni á ýmsum sviðum. Á fyrsta námskeiðinu var fjallað um mannréttindi, kynjamál, ofbeldi og HIV/alnæmi í tveimur sveitarfélögum (Inhaca og Distrito Municipal N1). Annað námskeiðið varðaði skipulagningu og skýrslugjöf og var haldið fyrir starfsmenn ráðuneytisins og á síðasta námskeiðinu var fjallað um stjórnun lítilla fyrirtækja, en það var haldið fyrir samtök kvenna í Distrito Municipal N1 með þátttöku 77 kvenna og 25 karla. Þá veitti sýsluskrifstofa Gaza aðgerðarsinnum í Manjacaze-héraði fræðslu í mannréttindamálum og hafði umsjón með starfsemi þeirra.
Af annarri starfsemi má nefna þátttöku í vinnuhópum um kynjamál og félagsleg málefni og mati á PARPA-aðgerðaáætluninni gegn fátækt. ÞSSÍ átti einnig fulltrúa á námsstefnum og mikilvægum viðburðum á vegum kvenna- og félagsmálaráðuneytisins og sæti í ráðgjafaráði kvenna- og félagmálaráðuneytisins. Einn helsti viðburðurinn í þessum geira var þegar þingið samþykkti lög gegn heimilisofbeldi og gefinn var út upplýsingapési með heimilisföngum þeirra aðila sem aðstoða þolendur ofbeldis. ÞSSÍ styrkti útgáfu þessa pésa. Þrátt fyrir að ÞSSÍ ljúki stuðningi sínum við kvenna- og félagsmálaráðuneytið mun stofnunin áfram halda tengslum við ráðuneytið með þátttöku í framangreindum vinnuhópum og viðburðum er varða konur og kynjamál.
Áætluð verklok:
Verkefninu lauk í árslok 2009.




125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is