Fullorðinsfræðsla í Jangamo

Heiti verkefnis – svið:

“Expanding Literacy and Non-formal Adult Education in Jangamo District in Inhambane” – Fullorðinsfræðsla í Jangamo 2007-2011

Samningur og samstarfsaðilar:

Samstarfið er milli ÞSSÍ og menntamálaráðuneytis Mósambíkur. Framkvæmd verkefnisins er í höndum héraðsskrifstofunnar í Jangamo, eða District Services of Education, Youth and Technology (SDEHT) fyrir hönd ríkisstjórnar Mósambíkur. ÞSSÍ veitir verkefninu fjárhagslega og tæknilega aðstoð.

Lýsing og markmið:

Markmið verkefnisins er að aðstoða yfirvöld í Jangamo í að auka læsi og lífsleikni meðal íbúa svæðisins með það að leiðarljósi að draga úr fátækt og styrkja dreifbýlið.

Stuðningur ÞSSÍ felst í eftirfarandi þáttum:

  • Stuðningur við árlega þjálfun kennara
  • Fjárhags- og tæknileg aðstoð við þróun kennslugagna og kennslu í lífsleikni
  • Að útvega námsgögn vegna lestrarkennslu og lífsleikninámskeiða
  • Stofnanauppbygging á menntasviði héraðsskrifstofunnar

Inhambane er fátækasta héraðið í Mósambík með um 80,7% íbúa undir fátæktarmörkum. Jangamo er eitt af 12 umdæmum Inhambane og búa þar rétt undir 100 þúsund manns.

Framvinda - úr ársskýrslu 2010:

Tvenn tímamót urðu í stuðningi ÞSSÍ við fullorðinnafræðsludeild menntamálaráðuneytisins (MINED) þegar lokið var við að endurskoða stefnu í fullorðinnafræðslu fyrir tímabilið 2010/15 og nýtt verkefnisskjal var samþykkt. Helsta markmið nýja verkefnisins er að bæta aðgengi og gæði fullorðinnafræðslu í Inhambane sýslu, einkum í Jangamó héraði og leggja áherslu á kynjajafnrétti.

Stuðningurinn hefur til þessa að mestu verið nýttur til að innleiða frekar dýrt lífsleikniverkefni í Jangamó héraði þar sem skipulagðir hópar nemenda hafa fengið þjálfun og útbúnað til sértækrar framleiðslu til tekjuöflunar, m.a. lífrænnar grænmetisræktunar og framleiðslu nýrrar gerðar múrsteina til bygginga. Í fyrra mati á verkefninu var lagt til að snúið yrði til hefðbundinnar fullorðinnafræðslu þótt verðmæt og talsvert umfangsmikil þjálfun lífsleiknikennara njóti fullrar viðurkenningar. Þessa tegund þjálfunar gæti og ætti að vera innleidd í allri fræðslu í héraðinu sem og í öðrum héruðum í Inhambane sýslu. Í endurskoðun á verkefninu í júní var lagt til að verkefnið yrði víðfeðmara, bæði varðandi innihald þess og starfsumdæmi. Að auki skyldi það ná yfir fullorðinsfræðslu á héraðs- og landsvísu á samþættari og meira samverkandi hátt. Þessi endurskoðun á verkefninu leiddi til þess að viðauki við samkomulagið milli MINED og ÞSSÍ var undirritaður í september til að festa breytingarnar í sessi.

Þrátt fyrir breytingar á umfangi beinist stuðningurinn enn að áætlunum ríkisstjórnarinnar sem hvíla á fjórum stoðum þ.e. aðgengi að þjónustu, gæði þjónustu, aukinni hæfni starfsmanna og stofnana og aðstoð við stjórnsýslu. Ennfremur var gert átak í að samþætta verkefnisaðgerðirnar við áætlanir stjórnvalda á öllum stjórnsýslustigum til að tryggja samfellu og eignarhald samkvæmt Parísaryfirlýsingunni.

Verkefnið hélst í sterkum tengslum við fullorðinnafræðsludeildina í menntamálaráðuneytinu og var verkefnisstjóri ÞSSÍ mjög vel metinn tengiliður milli ráðuneytisins og raunverulegs verkefnisstarfs. Stuðningur frá ráðuneytinu fól meðal annars í sér endurskoðaða stefnu í fullorðinnafræðslu, nýja bæklinga fyrir útskrifaða nema og hönnun nýrrar námskrár.

Stuðningur frá Inhambane héraði fól meðal annars í sér styrki til námskeiða á háskólastigi í kennslufræðum og útvegun námsgagna fyrir kennara í fullorðinnafræðslu.

Fullorðinnafræðslan var starfrækt í öllu Jangamó héraði, með 47 fræðslustöðvum þar sem beitt var nokkrum mismunandi kennsluaðferðum. Hver miðstöð og kennari í fullorðinnafræðslu hafði aðgang að einfaldri, staðbundinni kennsluaðstöðu. Á þessum kennslustöðvum er leiðbeint og aðstoðað við þjálfun. Í verkefninu var stutt við 11 slíkar kennslustöðvar og samtals 91 kennara í fullorðinnafræðslu (80 konur) með því að leggja til námsgögn og bjóða námskeið í kennsluaðferðum og öðru kennslufræðilegu efni.

Námsskilyrði bötnuðu mikið þegar hafist var handa í verkefninu við að byggja skýli fyrir fullorðinnafræðslumiðstöðvarnar. Í lok ársins hafði fjórðungur allra miðstöðvanna í Jangamó héraði eigin kennslustofur og var ein þeirra byggð af nemendum sem notuðu eigin múrsteinaframleiðslu til verksins.

Verkefnisaðilar brugðust við þörfum útskrifaðra nemenda og kennara fyrir aðgang að bókum með hugmyndinni um almenningsbókasöfn. Fyrsta skrefið var tekið þegar ein fræðslumiðstöð fékk sitt eigið bókasafn. Ennfremur var hönnuð ný miðstöð rannsókna og bókasafns og byggingarverkið boðið út.

Síðast en ekki síst er að nefna að fullorðinnafræðsluverkefnið kom 2328 nemendum í fullorðinsfræðslu til góða (98% af þeim konur). Lífsleikniþátturinn sem sérstök áhersla var á fyrstu tvö árin var nú felldur betur að verkefninu í heild með því að nýta fengna þekkingu til að gera nálgunina sjálfbærari. Þótt skólasókn í verkefninu sé enn áhyggjuefni er hún enn yfir 80%.

Annað starf þessu tengt sem unnið var árið 2010 fólst í kortlagningu allra grunnskóla og miðstöðva fullorðinnafræðslu í Jangamó héraði. Farið var í alla grunnskóla og fræðslumiðstöðvar fullorðinnafræðslu og hnitin, myndir og aðrar viðeigandi upplýsingar slegnar inn í Google gagnagrunn. Hægt er að finna kort af fræðslumiðstöðvum fullorðinnafræðslu og grunnskólum á Google Earth

Áætluð starfslok:

Verkefnið er áætlað til ársins 2011





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica