Namibía

Namibía

Þróunarsmavinnu Íslands og Namibíu mun ljúka í lok næsta árs, árið 2010. Íslensk stjórnvöld hafa formlega tilkynnt stjórnvöldum í Namibíu að ekki sé unnt að verða við óskum þeirra um framlengingu á samstarfssamningi milli þjóðanna um þróunarsamvinnu sem rennur út í lok árs 2010. Íslendingar hafa jafnframt heitið því að standa við allar skuldbindingar og fyrirheit um framkvæmd samningsbundinna verkefna.

Namibía er í suðvesturhluta Afríku, ríflega átta sinnum stærra en Ísland. Stór hluti landsins er gróðurlítill og þar eru tvær stórar eyðimerkur, annars vegar Namib-eyðimörkin sem landið dregur nafn sitt af og hins vegar Kalahari-eyðimörkin sem þekur um þriðjung af flatarmáli landsins. Íbúar Namibíu eru um tvær milljónir og um 70% þeirra búa í norðurhluta landsins. Landið fékk sjálfstæði frá Suður-Afríku í mars 1990. Áhrif aðskilnaðarstefnu Suður-Afríku eru enn sterk í Namibíu og gæðum landsins mjög misskipt milli hvítra og svartra. Landið er auðugt af málmum og þeir eru mikilvægasta útflutningsvaran.Namibia Fiskveiðar gegna auknu efnahagslegu mikilvægi, en Namibíumenn eiga mjög auðug fiskimið. Mest af aflanum fer til útflutnings.

Íslendingar hófu þróunarsamvinnu við Namibíu sama ár og landið fékk sjálfstæði frá Suður-Afríku 1990. Samstarfssamningurinn gildir til ársloka 2010. Í upphafi var samvinnan fyrst og fremst á sviði sjávarútvegs. Íslenskir sérfræðingar og sjómenn hafa starfað við hafrannsóknir og namibískir líffræðingar hafa verið í þjálfun á Íslandi. Íslenskir kennarar störfuðul í Namibíu við undirbúning og kennslu í sjómannaskóla í bænum Walvis Bay og var það helsta samstarfsverkefni ÞSSÍ í landinu um árabil. Á liðnum misserum hafa verkefni ÞSSÍ í Namibíu þó einkum verið félagsleg og í dag eru verkefnin fyrst og fremst til stuðnings jaðarhópum í namibísku samfélagi. Stærstu verkefnin eru með frumbyggjahópum (Himbum) og heyrnarlausum en auk þeirra styður ÞSSÍ við nokkur minni verkefni í landinu.

Almennt:

  • Mannfjöldi: 2 milljónir (UNDP, 2007/08)
  • Höfuðborg: Windhoek
  • Stærð landsins: 824,292 ferkílómetrar
  • Helstu tungumál: Enska (opinbert mál), Afrikaans, Þýska, Oshivambo, Herero
  • Helstu trúarbrögð: Kristni
  • Lífslíkur: 50,9 ár (karlar), 52,2 ár (konur) (UNDP, 2007(08)
  • Læsi (15 ára og eldri): 85% (UNDP 2007/08) 
  • HDI: 125 (UNDP, 2007/08)
  • Gjaldmiðill: 1 namibískur dalur = 100 cent
  • Helstu útflutningsafurðir: Demantar, kopar, gull, sink, úran, búfé
  • Tekjur á íbúa: 3,230 Bandaríkjadalir (Alþjóðabankinn, 2006)
  • Landslén: .na
  • Landsnúmer: +264

 

 Ýmsar upplýsingar um Namibíu - tenglar:

 

Fréttatenglar:

 




Þetta vefsvæði byggir á Eplica