Stuðningur við rannsóknarnefnd Benguela-hafstraumsins (BCC)

Heiti verkefnis - svið:

Tuðningur við rannsóknarnefnd Benguela-hafstraumsins / Strengthening the Capacity of the Benguela Current Commission (BCC) - fiskimál - rannsóknir

Samningur og samstarfsaðilar:

Nefndin er samstarfsverkefni þriggja þjóða, Angólu, Suður-Afríku og Namibíu. Stuðningur við nefndina hófst árið 2008.

Lýsing og markmið:

Tilgangur rannsóknarnefndarinnar er að byggja upp vistkerfisnálgun á stjórn hafsvæðisins undan ströndum landanna. En öllum þjóðunum þremur er mikið í mun að nýta auðlindina með sjálfbærni að leiðarljósi og þá er verndun á vistkerfi hagsvæðisins einn mikilvægasti þátturinn. Stuðningur ÞSSÍ beinist að mannauðsuppbyggingu og þjálfun rannsakenda. Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna kemur einnig að verkefninu.

Framvinda - úr ársskýrslu 2009:

Þróunarsamvinnustofnun styður fjögurra ára þjálfunarverkefni sem stýrt er af rannsóknarnefnd Benguela-hafstraumsins. Nefndin er samstarfsverkefni þriggja þjóða, Angólu, Namibíu og Suður-Afríku. Er tilgangur hennar að byggja upp vistkerfisnálgun á stjórn hafsvæðisins undan ströndum landanna. Á árinu voru haldin þrjú námskeið með stuðningi Þróunarsamvinnustofnunar, eitt í hverju samstarfslandanna. Markmið verkefnisins, sem hófst 2008, er að bæta þjálfun rannsakenda og vísindamanna.

Í október afhenti umdæmisstjóri fiskimálaráðuneyti Namibíu handtölvubúnað sem notaður er til gagnaöflunar við landanir á sjávarafla. Búnaðurinn og hugbúnaður sá sem hannaður var mun gjörbreyta upplýsingaöflun sjávarútvegsráðuneytisins og þar með gera fiskveiðistjórnunina skilvirkari. Með afhendingunni lauk formlega löngu og farsælu samstarfi Þróunarsamvinnustofnunar og sjávarútvegsráðuneytis Namibíu. Fór ráðuneytisstjóri fögrum orðum um samstarfið og sagði að Íslendinga yrði saknað.

Áætluð verkefnalok:

Samningur rennur út árið 2011



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica