Himbar - Leikskólar og fullorðinsfræðsla - Verkefninu lauk á árinu 2009
Samningur og samstarfsaðilar:
Leikskólaverkefnið tengist þeim vilja ÞSSÍ að byggja upp leik- og forskóla fyrir börn Himbanna á Ethanga svæðinu. Verkefnið er hafið með fjórum leikskólum í tjöldum og stóð til að það væri til tveggja ára, lyki 2007. Að verkefninu standa ÞSSÍ, Etanga samfélagið og ráðuneyti jafnréttis- og velferðarmála barna.
Lýsing og markmið:
Nú er áformað er auka við, fjölga leikskólum og styrkja innra starf þeirra, einkum á þeim svæðum sem nýjar borholur eru gerðar. Þar hefur fólk möguleika á að halda kyrru fyrir og börnin geta gengið í skóla.
Á þessu svæði er einn grunnskóli og því þurfa mörg barnanna að ganga langa leið í skólann eða vera á heimavist. Mörg börnin sækja ekki skóla því þau eru látin gæta nautgripanna. Þau hafa því ekki fengið tækifæri til að mennta sig og ólæsi er mikið meðal Himbanna.
Engir leikskólar voru á svæðinu þegar samstarfið við Þróunarsamvinnustofnun hófst en nú eru þar fjórir færanlegir leikskólar í tjöldum. Voru keypt 4 vönduð tjöld, búnaður og leikföng fyrir þá. Í þessum fjórum leikskólum eru um 120- 140 börn eða um 30 til 40 börn í hverjum leikskóla.
Auk hefðbundinnar leikskólakennslu er börnunum líka kennt að lesa og skrifa á Otjiherero, (móðurmáli þeirra) og á ensku.
Komið hafa fram óskir um fullorðinsfræðslu samtímis og hefur verið ákveðið að gera verklýsingu að henni um miðbik 2007. Markmiðið með leikskólunum og fullorðinsfræðslunni er að gefa bæði börnum og fullorðnum fleiri tækifæri til menntunar.
Unnið er að því að útvíkka samning um þessi mál og auka þjónstu ÞSSÍ á komandi misserum.
Framvinda:
ÞSSÍ hefur stutt rekstur fjögurra leikskóla í tjöldum á svæðum Himba og var unnin úttekt á því hvernig efla mætti leikskólastarf hjá þessu fólki. Talið er að ólæsi sé 99% og fæst barna fara í skóla. Samtímis var gerð úttekt á þörf og spurn eftir fullorðinsfræðslu að ósk heimamanna. Aukinn stuðningur við leikskóla og fullorðinsfræðslu var því kominn á góðan rekspöl undir lok ársins. Ætlunin er að þjálfa heimamenn, sem eiga rótfestu í samfélaginu, til að verða leiðbeinendur á komandi tíð. Vegna þessara verkefna funduðu starfsmenn ÞSSÍ í Namibíu margsinnis með fulltrúum hjarðmanna og yfirmönnum í stjórnkerfinu um farsæla framkvæmd mála. Samtímis þessu vann umdæmisskrifstofan að því að leiða saman hjarðmenn Himba á svæðinu og ráðgjafa frá frjálsum félagasamtökum, Integrated Rural Development and Nature Conservation (IRDNC), um beitarstjórn og beitarálag. Reynslan sýnir að beitarstjórn er nauðsynleg þar sem vatnsból eru gerð, því ella kann ofbeit á nærliggjandi svæðum að leiða til jarðvegseyðingar. Eftir skoðunarferðir um norðursvæðin og fundahöld með heimamönnum var komist að samkomulagi við IRDNC í Namibíu um að stýra verkefni með Himbum sem á að leiða til betri nýtingar á landi og vatni þar sem vatnsból eru gerð. Hefst það í ársbyrjun 2008. Um 12.000 Himbar búa í Epupa kjördæmi þar sem starf ÞSSÍ fer fram. Leikskólana fjóra sækja milli 120 og 160 börn. Borað var eftir vatni á sex stöðum og gagnast þær holur 700-1.000 manns og búfénaði þeirra.
Áætluð verklok:
- Samningnum lauk á árinu 2008 og vegna efnahagsástands á Íslandi var hann ekki endurnýjaður.




Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is