Benguela Community Centre, Luderitz - Félagsleg verkefni-Félagmiðstöð

Samningur og samstarfsaðilar:

Verkefnið hefur þegar staðið í nokkur ár og hefur nýlega verið undirritaður samningur út árið 2007. Verkefnið er samstarfsverkefni milli ÞSSÍ og Karas Regional Council

Lýsing og markmið:

Benguela félagsmiðstöðin var opnuð 2001 í nýju húsi sem byggt var fyrir íslenskt fé. Aðal markmið miðstöðvarinnar er að stuðla að aukinni menntun, þjálfun og nýsköpun fyrir fólk í úthverfi Luderitz. Verkefni og námskeið sem boðið er upp á eru bæði mörg og fjölbreytt, allt frá því að vera leikskóli fyrir yngstu meðlimi samfélagsins og til fullorðinsfræðslu. Verkefni í miðstöðinni taka mið af þörfum samfélagsins.

Framvinda - úr ársskýrslu 2008:

Um árabil hefur ÞSSÍ stutt við rekstur félagsmiðstöðva í Namibíu. Þeim stuðningi mun ljúka 2010 en samið hefur verið við sjóð í eigu namibíska ríkisins, COSDEF, að taka yfir rekstur félagsmiðstöðva í Swakopmund og Lúderits. COSDEF rekur verknámsstöðvar á ýmsum stöðum í landinu. Helsti markhópur COSDEF eru ungmenni sem flosnað hafa upp úr skóla. Gengið hefur verið frá málum í Swakopmund en það dróst að hefja yfirtöku á Lúderitsmiðstöðinni, einkum vegna tafa hjá sýslustjórn Karas-sýslu, sem á húsnæðið. Á fyrri hluta árs 2009 tekur COSDEF endanlega yfir stjórn á miðstöðinni í Lúderits. Árið 2007 hófst bygging félagsmiðstöðvar í Okahandja, um 70 km fyrir norðan Windhoek. Veitti ÞSSÍ fjárhagsstuðning við bygginguna en framkvæmdin var algjörlega í höndum innlendra félagasamtaka sem sjá um reksturinn. Var byggingin formlega opnuð 29. ágúst 2008.

Áætluð verkefnalok:

Samningur rennur út árið 2010.





Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica