Táknin tala - Skóli heyrnarskertra barna - Sérkennsluverkefni

Samningur og samstarfsaðilar:

Um er að ræða samstarfsverkefni milli ÞSSÍ, Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi og menntamálaráðuneytisins í Namibíu. Í upphaflegu verkefni sem hófst árið 2006 var gert er ráð fyrir að tveir íslenskir sérfræðingar (kennarar), heimsæktu Namibíu tvisvar á ári árið 2006 og tvisvar árið 2007. Þremur heimsóknum er nú lokið og eru uppi áform um stóraukna aðstoð á þessu sviði fram til ársins 2010.

Lýsing og markmið:

Markmið verkefnisins er bæta kennslu fyrir heyrnarlausa í þeim tveimur skólum sem starfa fyrir þá í Namibíu. Þjálfa á kennara, túlka, og þjálfa upp heyrnarlausa einstaklinga sem geta orðið fyrirmynd fyrir heyrnarlaus börn og aðstoðarkennarar í skólum. Ætlunin er að stuðla að því að namibískt táknmál eflist, bæði með rannsóknum, kynningu og gerð námsefnis á mörgum stigum skóla.

Unnið verður að námsskrárgerð og námsefnisgerð á táknmáli með margmiðlunartækni. Lagður er til tæknibúnaður til kennslunnar og til framleiðslu á námsefni til táknmálskennslu og ýmis konar annar stuðningur veittur. Í fyrirliggjandi verkefnislýsingu til ársloka 2010 eru greind fjölmörg samstarfsverkefni sem brýn þörf er á að koma á laggirnar með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og ekki síst samtökum heyrnarlausra.

ÞSSÍ styður einnig samtök sem nefnast CLaSH (The Association for Children with Language, Speech and Hearing) en markmið samtakanna er að vinna að sérstökum þörfum heyrnarlausra og heyrnarskertra barna og reyna að tryggja þeim nauðsynlega þjónustu eins snemma og mögulegt er og eins er reynt að tryggja þeim jafnan aðgang að menntun. Þá erreynt er að hafa upp á börnum með slíkar sér þarfir og að koma þeim í skóla og tryggja þeim kennslu við hæfi.

sjá: http://www.clash-namibia.org/main.html

Framvinda:

Unnið hefur verið að ofangreindum þáttum í þeim þremur heimsóknum sem þegar hafa farið fram. ÞSSÍ gaf skóla heyrnarlausra í Windhoek tölvur og tæki til námsefnisgerðar á táknmáli og Eluwa skólanum í norðurhluta landsins.

Í mars 2007 var haldin stór ráðstefna um stöðu heyrnarlausra að tilhlutan ÞSSÍ og ályktaði hún í 30 liðum um úrbætur sem ráðast þarf í. ÞSSÍ og menntamálaráðuneytið hafa sameiginlega unnið að verkefnislýsingu til loka árs 2010 og er stefnt að margs konar úrbótum í samstarfi þessu.

Úr ársskýrslu 2009:

Á árinu 2009 náðust nokkrir mikilvægir áfangar í táknmálsverkefninu og gekk vel að vinna að markmiðum verkefnisins. 

  • Lykilþáttur í stuðningi ÞSSÍ við menntun heyrnarlausra í Namibíu er að koma á fót Samskipta- og þróunarmiðstöð heyrnarlausra (CCDS). ÞSSÍ hefur frá upphafi litið á slíka miðstöð sem lykilstofnun í því að tryggja sjálfbærni í þeirri starfsemi sem fram fer á vegum verkefnisins. Mikilvægur árangur náðist í þessu tilliti á árinu. Gengið var frá ráðningu fyrstu fjögurra starfsmannanna, þar á meðal  forstöðumanns fyrir miðstöðina og heyrnarlauss aðstoðarkennara. Þjálfun starfsmanna hófst undir umsjón Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra (SHH) á Íslandi.  Í júní var haldinn tveggja daga vinnufundur með helstu hagsmunaaðilum. Markmiðið var að skilgreina helstu viðfangsefni Samskipta- og þróunarmiðstöðvar heyrnarlausra. Gerð var vinnuáætlun fyrir starfsemi miðstöðvarinnar. Valgerður Stefánsdóttir frá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra veitti leiðsögn á vinnufundinum.  
  • Í janúar hófst námskeið, í samvinnu við menntamálaráðuneyti Namibíu, fyrir heyrnarlausa leiðbeinendur í fullorðinsfræðslu. Þátttakendurnir tólf á þessu námskeiði höfðu áður fengið þjálfun hjá Júlíu Hreinsdóttur heyrnarlausum táknmálskennara frá Íslandi. Að þjálfun lokinni hófu heyrnarlausu leiðbeinendurnar að kenna fullorðnu heyrnarlausu fólki namibískt táknmál, sem og lestur og reikning, hver í sínu héraði. Ráðuneytið mun taka yfir launagreiðslur til leiðbeinendanna þegar ÞSSÍ dregur sig út úr starfinu.
  • Leiklistarhópur heyrnarlausra frá Íslandi, Draumasmiðjan, kom í heimsókn til Namibíu í febrúar. Markmiðið var annars vegar að styðja við menningarstarfsemi heyrnarlausra og hins vegar að auka vitund um málefni heyrnarlausra og táknmál. Átta heyrnarlausir og níu heyrandi leikarar æfðu stíft í þrjár vikur. Æfingum lauk með 10 sýningum í Þjóðleikhúsi Namibíu. Alls komu um 3000 gestir á sýningarnar þar af um 2700 namibísk skólabörn sem voru flest hver að koma í leikhús í fyrsta sinn.
  • Undir lok júnímánaðar hélt farandsýning heyrnarlausra frá Windhoek til að setja upp 18 sýningar í 10 bæjum í hinum ýmsu hlutum Namibíu. Leiklistardeild Listaskóla Namibíu sá um að samræma starfið sem ÞSSÍ fjármagnaði. Áætlað er að í það minnsta 4.500 börn hafi séð farandsýninguna.
  • ÞSSÍ hélt áfram stuðningi við framhaldsskólann Cosmos þar sem sex heyrnarlausir nemendur stunda nám í 11. og 12. bekk. Stuðningurinn er notaður til að greiða fyrir þjónustu túlka.
  • Sex fullorðnir heyrnarlausir einstaklingar stunduðu verknám við COSDEC verknámsskólann í Rundu á þessu ári með aðstoð túlka sem ÞSSÍ fjármagnaði.
  • Með stuðningi ÞSSÍ ákvað kennaraskóli Windhoek-borgar að bjóða nám í namibísku táknmáli sem aukagrein. Markmiðið er að útskrifa nýja kennara með góða þekkingu á namibísku táknmáli.  Þeir verða því vel undir það búnir að kenna heyrnarlausum börnum. ÞSSÍ greiðir um tveggja ára skeið laun lektors í namibísku táknmáli og heyrnarlauss leiðbeinanda í namibísku táknmáli. Í árslok luku 16 nemendur prófum og færðust yfir á annað ár. Nýr 16 manna hópur hefur skráð sig til náms árið 2010.
  • ÞSSÍ hefur komið á góðu samstarfi við samtökin ClaSH í Namibíu. Starfsemi á árinu 2009 var margþætt og tók m.a. til fræðslu fyrir kennara og innan skóla og leikskóla um skóla án aðgreiningar og heyrnarlaus börn, svo og til námsefnisgerðar.
  • ÞSSÍ lagði til fjármagn vegna byggingar þriggja kennslustofa við Usko Nghaamwa sérskólann í Eenhana og tveggja kennslustofa við Andreas Kandjimi grunnskólann í Rundu sem er með sérdeild fyrir heyrnarlaus börn. Báðar byggingarnar hafa verið teknar í notkun og með þeim hefur námsumhverfið verið bætt til muna auk þess sem mun fleiri heyrnarlausir nemendur hafa skráð sig til náms við skólana.
  • Tíu heyrnarlaus ungmenni fengu þjálfun, í samvinnu við barnamálaráðuneytið, sem leiðbeinendur í leikskólum. Í kjölfarið fá sum þeirra tækifæri til frekari þjálfunar í leikskóla ClaSH-samtakanna fyrir heyrnarlaus börn.
  • Kennarar frá skólanum í Khomasdal fyrir heyrnarskerta og Eluwa-sérskólanum í Ongweiva heimsóttu De la Bat skólann í Suður-Afríku. Sá skóli býr að yfir 100 ára reynslu í kennslu heyrnarlausra. Í för með kennurunum var verkefnafulltrúi táknmálsverkefnis ÞSSÍ. Í heimsókninni fengu kennararnir að kynnast margs konar nýjum aðferðum sem taka mætti upp í Namibíu.
  • Íslenskur táknmálskennari kom til Namibíu í maí til að halda áfram þjálfun túlka. Hafist var handa við þjálfun nýs hóps túlka og áfram haldið þjálfun tveggja þjálfara sem tóku á seinna hluta ársins við þjálfun nýja hópsins. Alls hafa 40 túlkar fengið þjálfun með stuðningi ÞSSÍ.
  • Hópur frá ÞSSÍ heimsótti bæinn Katima Mulilo í Caprivi-héraði, sem er um 1250 km frá Windhoek, í þeim tilgangi að koma af stað verkefnastarfi í héraðinu. Árangur af heimsókninni var góður og tveir nýir kennarar fengu þjálfun á árinu í kennslu heyrnarlausra barna við Katima-skólann og  menntamálaráðuneytinu var veittur stuðningur til að finna og skrá heyrnarlaus börn á afskekktum svæðum í héraðinu.
  • Í nóvember fengu 12 fullorðnir heyrnarlausir einstaklingar þjálfun sem táknmálskennarar. Þeir komu frá héruðum sem voru ekki hluti af fullorðinsfræðsluverkefni fyrir heyrnarlausa. Síðar munu þeir einnig fá þjálfun á vegum menntamálaráðuneytisins sem leiðbeinendur í fullorðinsfræðslu sem gerir þeim kleift að koma á fót bekkjardeildum hver í sínu héraði.   

 

Áætluð verklok:

Lok árs 2010

Áhugavert:

Myndbrot til kynningar á verkefninu (Stefán Jón Hafstein, 2007)

Trúðar og sögur herynarlausra á fjölum Þjóðleikhússins í Namibíu - grein eftir Davíð Bjarnason, vor 2009.

Tákn vonar - Sign of Hope. Heimildamynd sem gerð var árið 2008. Hægt að nálgast á aðalskrifstofu ÞSSÍ.

Unnið að uppbyggingu menntunar og þjónustu fyrir heyrnarlausa í Namibíu, grein eftir Valgerði Stefánsdóttur framkvæmdastjóra SHH, september 2009.

Enginn getur tekið frá heyrnarlausum sjálfsvirðinguna sem fylgir því að vera stoltur af táknmálinu og sjálfum sér - viðtal við Valgerði Stefánsdóttur forstöðumann SHH - apríl 2010

 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica