Leikskólamál - önnur verkefni - verkefninu lauk á árinu 2009

Samningur og samstarfsaðilar

ÞSSÍ hefur styrkt uppbygginu leikskóla í samstarfi við einstaklinga og hið opinbera.

Framvinda - úr ársskýrslu 2008:

ÞSSÍ aðstoðaði barnamálaráðuneyti landsins við frágang og prentun á stefnu stjórnvalda í leikskólamálum. ÞSSÍ studdi við skipulagsfundi um þjálfun og nám leikskólaleiðbeinenda og kostaði gerð námsefnis á því sviði. Þá fjármagnaði stofnunin einnig þjálfun um þrjátíu námskeiðshaldara sem starfa fyrir barnamálaráðuneytið. Áttu þeir að gegna lykilhlutverki í þjálfun hundruða leiðbeinanda á leikskólum í hinum dreifðu byggðum. Margs konar kennslu- og fræðsluefni var útbúið og prentað sem hluti af verkefnisundirbúningi. Þetta efni mun nýtast barnamálaráðuneytinu vel. Stutt var sérstaklega við námsgagnagerð fyrir börn á tveimur tungumálum Sana. Þá voru útbúnar veglegar námsgagnaöskjur sem dreift verður til nær 700 leikskóla í sýslunum fjórum, en námsgögn eru af mjög skornum skammti í nær öllum leikskólum í dreifbýli landsins.

Verklok: Ræðst af framvindu í hverju tilviki.

Ítarefni:

Þróunarsamvinnustofnun Íslands styður við móðurmál San fólksins, eftir Davíð Bjarnason (pdf)



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica