Viðbyggingar við mæðrahús - verkefninu lauk á árinu 2009

Heiti verkefnis – svið:

“Verkefni til styrktar starfsemi mæðrahúsa”.

Heilbrigðissvið.

Samningur og samstarfsaðilar:

Samstarfið er á milli ÞSSÍ, heilbrigðisráðuneytisins og fimm sveitafélaga.

Lýsing og markmið:

Mæðrahúsin eru ætluð verðandi mæðrum sem búa fjarri heilbrigðisþjónustu og eru alltaf staðsett nálægt heilsugæslustöð eða spítala. Þær konur sem eru í áhættu á meðgöngu geta komið í mæðrahúsið tímanlega fyrir fæðingu og fengið þar nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem og fætt undir eftirliti heilbrigðismenntaðs fólks. Móðir og barn fá líka aðhlynningu eftir fæðingu þar til þau eru í stakk búin að fara aftur heim. Í mæðrahúsunum fá konur auk þess ráðgjöf um getnaðarvarnir og fræðslu um brjóstagjöf, næringu, almenna umönnun barna, heimilisofbeldi og hreinlæti svo eitthvað sé nefnt.

Mæðrahúsanetið gegnir lykilhlutverki í þeirri stefnu stjórnvalda að draga úr mæðra- og ungbarnadauða í samræmi við Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer fimm.

ÞSSÍ stóð að byggingu/viðhaldi fimm húsa árið 2007 og bættust þau við þau rúmlega fimmtíu hús sem fyrir voru.

Úr ársskýrslu 2009:

Lokið var við smíði viðbyggingar við mæðrahúsið (Casa Maternas) í Bluefields í aprílbyrjun. Viðbyggingin var byggð í samstarfi við lýðheilbrigðisdeild sjálfstjórnarsvæðis Atlantshafsstrandarinnar (SILAIS-RAAS) og er ætlað að mæta vaxandi eftirspurn eftir þjónustu mæðrahússins í Bluefields.

Framvinda: Verkefninu lauk árið 2009
 



Leita á vefnum



Þetta vefsvæði byggir á Eplica