Grunnskólaverkefni - Bygging skólastofa - Verkefninu lauk á árinu 2009
Heiti verkefnis – svið:
“Bygging 20 skólastofa í 9 grunnskólum á Atlantshafsströnd Níkaragva”.
Menntasvið.
Samningur og samstarfsaðilar:
Samstarfið er á milli ÞSSÍ, menntamálaráðuneytisins og sveitafélagana Bluefields og Puerto Cabezas á Atlantshafsströnd Níkaragva.
Lýsing og markmið:
Þegar ný ríkisstjórn kom til valda í Níkaragva í janúar 2006 var eitt af hennar fyrstu verkefnum að gera grunnskólann gjaldfrjálsan. Það olli aukinni skólasókn um allt land, sérstaklega á þeim svæðum þar sem skólasókn var hvað lægst fyrir, svo sem á Norður og Suður Sjálfsstjórnarsvæðum Atlantshafsstrandarinnar. Skortur var á skólastofum fyrir og enn meiri eftir.
Markmið verkefnisins er að auka framboð á skólastofum og þar með hvetja til skólasóknar í sveitarfélögunum Bluefields og Puerto Cabezas í samræmi við stefnu stjórnvalda og Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna númer tvö. Þetta markmið felur í sér viðurkenningu á því að bættar aðstæður í skólum leggi sitt af mörkum til bættra gæða bæði náms og kennslu í grunnskólum.
Úr ársskýrslu 2009:
Á árinu 2009 veitti ÞSSÍ stuðning vegna lokafrágangs á byggingu 10 skólastofa fyrir grunnskóla í samvinnu við menntamálaráðuneytið og bæjarráð sveitarfélagsins Bluefields. Síðustu skólastofurnar í Bluefields voru afhentar í apríl. Áætlað hafði verið að ljúka verkefninu fyrir árslok 2008 en það tafðist af óviðráðanlegum ástæðum.
Þetta verkefni gagnaðist um 3.700 börnum.
Framvinda:
Verkefnið var undirritað í febrúar 2008 og lauk árið 2009.



Pósthólf 5330, 125 Reykjavík Heimilisfang: Þverholt 14 Sími: 545 8980 Bréfasími: 545 8985 Netfang: iceida@iceida.is